Hvað er Sjálfstæðisflokkurinn?
EyjanHér er grein eftir mann, ég geri ráð fyrir því að hann sé ungur, sem telur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fyrr á árum verið afskaplega hægrisinnaður. Við sem erum komin á miðjan aldur vitum að svo er ekki. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í gegnum tíðina fyrst og fremst verið valdaflokkur Íslands. Svo hefur það verið frá tíma Ólafs Lesa meira
Kjötkveðjuhátíð
EyjanÞað stendur að það verði kalt og hvasst til föstudags. Maður er að verða pínu leiður á vetrarríkinu. Ég þvælist milli vefsíða ferðaskrifstofa og flugfélaga og læt mig dreyma. Spánn um páskana, New York um hvítasunnu, Grikkland í sumar? Í Ríó er kjötkveðjuhátíð með tilheyrandi fjöri. Svo er reyndar líka í öðrum kaþólskum löndum. Þýska Lesa meira
Aðförin að Ólafi
EyjanÞað er merkilegt að þrátt fyrir allt þvargið um aðför að Ólafi F. Magnússyni hefur engum tekist að benda á neitt í fjölmiðlunum sem telst hafa farið yfir strikið – nema ef til vill Spaugstofuna. Grínþátt. Skop. Skrumskælingu. Annars ekkert sem svokallaðir „fjölmiðlamenn“ hafa staðið fyrir. Það hefur hvergi verið fjallað um einkalíf Ólafs þannig Lesa meira
Hvar er meðalhófið?
EyjanEr ekki til eitthvað sem heitir meðalhófsregla? Það er víst að henni er alls ekki beitt þegar reykingamenn eiga í hlut. Ríkið selur sígarettur, en er smátt og smátt að banna fólki að reykja þær. Auðvitað væri miklu hreinlegra að leggja einfaldlega bann við innflutningi og sölu efnisins. Sú hugmynd að reka tóbaksnotendur út af Lesa meira
Björn í Silfrinu
EyjanSérstakur gestur í Silfri Egils í dag er Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Af öðrum gestum í þættinum má nefna Magnús Thoroddsen hæstaréttarlögmann, Gunnar Smára Egilsson og Ólaf Þ. Stephensen.
Sarko giftir sig
EyjanSarkozy var maðurinn sem átti að færa Frökkum sjálfstraust og þor eftir deyfð Chiractímans. Hingað til hefur forsetadómur hans aðallega snúist um einkalífið, fyrst skilnaðinn við Ceciliu og svo sambandið við Cörlu. Frakkar eru smátt og smátt að missa trúna á þessum einstaklega sjálfhverfa stjórnmálamanni eins og lesa má í grein eftir Simon Jenkins í Lesa meira
Hryllingur
EyjanÞetta er eitthvað það ömurlegasta sem maður hefur lesið. Tilræðiskonur voru þroskaheftar. Viðurstyggileg mannvonska.
Arkitektar koma og fara
EyjanÞegar ég var í tíu eða ellefu ára bekk var vinsælasta platan Bridge Over Troubled Water með Simon & Garfunkel. Meistaraverk í þjóðlagapoppi. Enn, líkt og þá, finnst mér flottasta lagið á plötunni vera So Long Frank Lloyd Wright. Á þeim árum fattaði ég ekki hvað lagið fjallaði um. Seinna vissi ég að Lloyd Wright Lesa meira
Ólíkar kannanir
EyjanFréttablaðið birti könnun á fylgi flokkanna á fimmtudaginn. Þar stóð að Sjálfstæðisflokkurinn væri með 36,8 prósenta fylgi, Samfylkingin 34,8. Sagði að það væri ekki marktækur munur á fylgi flokkanna. Svo kom Gallupkönnun í gær. Þar voru allt aðrar niðurstöður. Sjálfstæðisflokkur með 41 prósent, Samfylking með 31 prósent. Gallup er með miklu stærra úrtak svo maður Lesa meira
Borgarstjórinn og flugvöllurinn
EyjanGísli Marteinn kemur með útspil sitt um 20 þúsund manna byggð í Vatnsmýri. Ólafur borgarstjóri svarar með því að segjast ætla að „festa flugvöllinn í sessi“. Ég sem hélt að samkomulagið í nýja meirihlutanum gengi aðallega út á að aðhafast ekki neitt í flugvallarmálinu. Á næstunni verða birtar verðlaunatillögur úr hinni miklu Vatnsmýrarsamkeppni. Ólafur segir Lesa meira
