fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026

Óflokkað

Skrítið samkeppniseftirlit

Skrítið samkeppniseftirlit

Eyjan
07.02.2008

Ég hefði haldið að útgáfa verka Halldórs Laxness og Íslensku orðabókarinnar væri best komin hjá stóru og öflugu forlagi. Í báðum tilvikum þarf að vinna jafnt og þétt að útgáfunni og gróðinn er ekki skjóttekinn. Samkeppniseftirlitið kýs að beita mikilli hörku gegn samruna JPV og hluta Eddu í Forlagið. Forlagið þarf að losa sig við Lesa meira

Ofurlaun

Ofurlaun

Eyjan
07.02.2008

Það eru að birtast uppgjör frá fyrirtækjum. Sum eru ekkert sérlega stór, eins og til dæmis 365 eða Spron. Laun forstjóra þessara fyrirtækja vekja athygli. Þykir núorðið eðlilegt að þeir séu með 10-15 sinnum hærri laun en meðalstarfsmenn? Eru ekki að koma kjarasamningar?

Iceland killed this town!

Iceland killed this town!

Eyjan
07.02.2008

Ýmislegt man maður úr fréttum þegar það er rifjað upp. Ég uppgötva að mér er í fersku minni þegar bresku togararnir fórust í ofsaveðrum snemma árs 1968. Ég hef verið átta ára. En þegar ég heyri nöfnin á skipunum rifjast þetta allt upp: Ross Cleveland, Notts County. Ég mundi líka nafnið á skipverjanum sem bjargaðist Lesa meira

Ljótt er

Ljótt er

Eyjan
06.02.2008

Fyrirsögn í DV: Stúlka barði snigil. Ljótt er ef satt er. Hvað gerði snigillinn henni? Var hann of hægfara? Eða of slímugur?

Sigfús, Siggi Páls og Hugleikur í Kiljunni

Sigfús, Siggi Páls og Hugleikur í Kiljunni

Eyjan
06.02.2008

Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um bækur sem hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin: Minnisbók Sigurðar Pálssonar og Ljóðhús eftir Þorstein Þorsteinsson. Síðarnefnda bókin fjallar um skáldskaps Sigfúsar Daðasonar, eins merkasta skálds á Íslandi á síðustu öld. Meðal gesta í þættinum eru Sigurður Pálsson, Pétur Gunnarsson og Hugleikur Dagsson – hann gefur okkur sýnishorn af svokölluðu ljóðaslammi Lesa meira

Skil ekki

Skil ekki

Eyjan
06.02.2008

Í Mogganum segir að sé mælt með undirvogun í ákveðnu hlutafélagi – og að bréf í öðru hlutafélagi séu undirvoguð. Ég verð að viðurkenna að þetta skil ég ekki.

Flott par

Flott par

Eyjan
06.02.2008

  Ég hef ekki mikið vit á pólítík í Bandaríkjunum. En einhvern veginn finnst manni gráupplagt að Hillary og Obama fari saman í framboð. Hún sem forseti, hann sem varaforseti. Eða öfugt. Ég veit ekki hvort þau næðu kjöri – kannski vilja Bandaríkjamenn frekar karlana úr Repúblikanaflokknum. Mér finnst þeir ekki bjóða af sér góðan Lesa meira

Erfðamál

Erfðamál

Eyjan
06.02.2008

Ég veit ekkert um fjölskylduhagi Bobbys Fischer. Hins vegar efast ég stórlega um að hann hafi átt ættingja í Ameríku sem sýndu honum ræktarsemi. Ég sá hann hins vegar ganga oft um göturnar í Reykjavík með Myoko.

Skrítnir viðskiptahættir

Skrítnir viðskiptahættir

Eyjan
06.02.2008

Þetta er ein af fáránlegustu fréttunum af hlutabréfamarkaði sem virðist vera ansi sjúkur. Stjórnendur SPRON voru í óða önn að selja hluti sína í bankanum á sama tíma og þeir voru að pranga hlutabréfunum upp á kaupendur – á verði sem reynist hafa verið fáránlega hátt. Stjórnarformaðurinn segir að fyrirtækið hefði „allt eins getað hækkað“. Lesa meira

Fleiri Laugavegshús

Fleiri Laugavegshús

Eyjan
05.02.2008

Ólafur F. segir að ekki standi til að kaupa fleiri hús við Laugaveginn. En á Laugavegi 33-35 stendur húsalengja sem er mestanpart búið að rýma – og er eiginlega alveg tilbúin til niðurrifs. Teikningar að því sem þar á að koma í staðinn eru miklu meira afgerandi en nokkuð sem stóð til að gera á Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af