fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026

Óflokkað

Bono

Bono

Eyjan
08.02.2008

Bono er á rokktónleikum með U2. Hann biður áhorfendur um að hafa hljótt. Þeir þegja, það má heyra saumnál detta. Svo byrjar hann að klappa saman höndunum og segir í hljóðnemann: „Í hvert skipti sem ég klappa saman lófunum deyr barn í Afríku.“ Þá heyrist rödd framarlega í áhorfendaskaranum: „Af hverju í andskotanum hættirðu þá Lesa meira

Meistari hljóðsnældunnar

Meistari hljóðsnældunnar

Eyjan
08.02.2008

Dr. Gunni er að gera þætti um tónlist á hljóðsnældum fyrir útvarpið. Ekki að það komi þessu mikið við en hinn mikli meistari kassettunnar er enginn annar en Ajatolla Khomeini. Khomeini var í útlegð í París, las boðskap sinn inn á hljóðsnældur sem síðan var dreift út um Íran og hinn íslamska heim. Þetta endaði Lesa meira

Danskur framburður

Danskur framburður

Eyjan
08.02.2008

Ég horfi ekki mikið á dönsku spennuþættina sem er alltaf verið að sýna í sjónvarpinu, en þeir eru víst afar góðir. En einu hef ég tekið eftir í þáttunum: Danskur framburður hefur breyst síðan ég var að læra dönsku fyrir nokkrum áratugum, hann er orðinn harðari og hvellari. Tungumálið er orðið með öllu óskiljanlegt fyrir Lesa meira

Fordómar

Fordómar

Eyjan
08.02.2008

Orðið fordómar er mjög vandmeðfarið. Stundum er það einfaldlega notað til að kveða niður skoðanaskipti. Og í fréttum er það nánast óbrúklegt. Sjáið til dæmis þessa frétt sem er frá fréttaritara RÚV í Kaupmannahöfn. Væru það fordómar ef gamlir íbúar borgarinnar Malmö væru ósáttir við að borgin yrði mestanpart íslömsk eftir nokkur ár? Eru það Lesa meira

Líklegt?

Líklegt?

Eyjan
08.02.2008

Björgvin Valur greinir þetta svona: Vilhjálmur Þ. er á leiðinni út. Sjálfstæðismenn slíta samstarfi við Ólaf F. Það verður myndaður meirihluti Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Líklegt? Ja, allavega ekki fjarstæðukennt.

Stýrihópur

Stýrihópur

Eyjan
08.02.2008

Orðið „stýrihópur“ er nokkuð framandlegt. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt það fyrr en í REI-málinu. Maður er vanari að heyra til dæmis orðið „rannsóknarnefnd“. Hlutverk rannsóknarnefnda er að komast að sannleikanum. En hlutverk stýrihópa er greinilega að komast að málamiðlun.

Kjarninn

Kjarninn

Eyjan
07.02.2008

Pólitískir fulltrúar sem tóku þátt í atburðarásinni rannsaka sjálfa sig og komast að sameiginlegri niðurstöðu. Og lýsa því svo yfir að þetta sé stórkostlegt hjá sér – tímamót í íslenskum stjórnmálum. Er þetta ekki kjarni málsins um REI-skýrsluna?

Erkibiskup vill sharíalög

Erkibiskup vill sharíalög

Eyjan
07.02.2008

Erkibiskupinn af Kantaraborg horfir upp á stöðugan straum fólks úr ensku biskupakirkjunni. Það er kannski ekki furða. Hugmyndir hans eru í meira lagi skrítnar. Nú leggur hann til að að sumum sviðum gildi sharíalög fyrir múslima á Bretlandi. Hann telur það reyndar óumflýjanlegt. Sumir þegnar landsins „tengi“ ekki við lögin í landinu. Eiga söfnuðir kristinna Lesa meira

Latibær og Winston

Latibær og Winston

Eyjan
07.02.2008

Magnús Scheving er að kynna latabæjarhugmyndafræðina fyrir David Cameron og breska Íhaldsflokknum. Í baksýn er stytta af mesta leiðtoga flokksins, Winston Churchill. Hann borðaði þungar kjötmáltíðir á hverjum degi, drakk vín með matnum, var líka sagður hafa stútað heilli koníaksflösku á dag, reykti vindla án afláts. Og varð 90 ára.

Mest lesið

Ekki missa af