Valdatafl í Valhöll
EyjanÉg hef ekki alltaf lagt trúnað á sögur um klofning í Sjálfstæðisflokki – þessum stóra stjórnmálaflokki hefur gengið furðu vel að standa saman í gegnum tíðina, að minnsta kosti allar götur síðan Davíð tók við. Það hefur eiginlega verið aðdaáunarvert á sinn hátt. En nú er svo komið að eina skýringin á atburðarásinni innan Lesa meira
Borgarstjórastóllinn
EyjanÞað er ekki fínt að vera fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík. Það er heldur ekki fínt lengur að vera núverandi borgarstjóri í Reykjavík. En verst er þó að vera væntanlegur borgastjóri í Reykjavík.
Villi ætlar að verða borgarstjóri
EyjanVilhjálmur segist ætla að sitja áfram. Hann ætlar að verða borgarstjóri eftir eitt ár og einn mánuð. Eða það skilst mér. Þetta er samt eitthvað óljóst. Er þetta góð niðurstaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn? Það væri kannski ekki úr vegi að fá skoðanakönnun.
Villi talar við Davíð
EyjanÝmsum ber saman um að það séu stjórnunarhættir í stíl Davíðs Oddssonar sem hafi fellt Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Morgunblaðið skrifaði meira að segja Reykjavíkurbréf um þetta í gær – að tími einráðra borgarstjóra væri liðinn. Villi kemst einfaldlega ekki upp með það sem Davíð gat. Skýringin er fyrst og fremst breyttur tíðarandi, en líka eins Lesa meira
Miðbærinn
EyjanÍ Morgunblaðinu í dag kemur fram að mikil uppbygging er í atvinnuhúsnæði í miðborginni og í grennd við hana. Þetta er þvert á háværar raddir sem segja að miðborgin sé úrelt og úrleiðis. Þvert á móti hefur hún mikið seiðmagn fyrir fólk, fyrirtæki og fjárfesta. Miðbær snýst ekki endilega um miðpunkt. Það er í fleiri Lesa meira
Svandís og Valgerður í Silfri
EyjanSvandís Svavarsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir Dagur B. Eggertsson og Vilhjálmur Bjarnason eru meðal gesta í Silfri Egils á morgun. Náttúrlega verður mest fjallað um REI málið og ýmsar hliðar þess, en Vilhjálmur kemur í þáttinn til að fjalla um ofurlaun og kaupréttarsamninga forstjóra.
Hefndaraðgerðir
EyjanÞað er illa komið fram við Skagamenn. Reykvíkingarnir sem stjórna Orkuveitunni vilja ekkert við Akurnesinga tala. Svo þegar þeir kvarta þá er skrúfað fyrir heita vatnið hjá þeim.
Erkifífl
EyjanErkibiskupinn af Kantaraborg sagði óhjákvæmilegt að sharialög myndu gilda í Englandi. Fjölmiðlar í Bretlandi loga vegna þessa, kirkja biskupsins hefur risið upp á móti honum. Kannski á að þakka manninum fyrir hreinskilnina, en mörgum finnst hann samt vera kjáni. Erkifífl. Aðalatriðið er að það skulu gilda ein lög í landi: Það er ekki hægt að Lesa meira
Trúartákn
EyjanÞað er trúfrelsi. En það þýðir ekki að við þurfum að vera hrifin af öllum trúarbrögðum eða bera sérstaka virðingu fyrir þeim. Í þessari frétt sem kemur frá fréttamanni RÚV í Kaupmannahöfn segir að konur sem gangi með slæður fyrir andlitinu séu síður ráðnar í vinnu í Danmörku en aðrar konur. Er það furða? Ef Lesa meira
