fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026

Óflokkað

Auðvaldið gleypir allt

Auðvaldið gleypir allt

Eyjan
16.02.2008

Kapítalismanum er ekki fisjað saman. Hann bryður allt í sig, líka það sem á að heita andsnúið honum og gerir loks að sínu. Þannig er Che Guevara löngu orðinn verslunarvara sem og öll mótmælatónlist 68 kynslóðarinnar, pönkið, ádeilukvikmyndir og ádeilubókmenntir. Kapítalisminn nærist á öllu þessu með bestu lyst. Og nú líka þessum texti Ólafs Hauks Lesa meira

Geir í Silfrinu

Geir í Silfrinu

Eyjan
16.02.2008

Geir H. Haarde forsætisráðherra verður gestur í Silfri Egils á morgun. Af öðrum gestum sem eru væntanlegir í þáttinn má nefna Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúa sem nú starfar í Afríku.

Erfitt val

Erfitt val

Eyjan
15.02.2008

Það er alveg ljóst að notkun pyntinga veikir dómsmálið gegn manni eins og Khalid Sheik Mohammed. Pyntingar eru forkastanlegar. En það geta komið upp tilfelli þar sem menn standa frammi fyrir hryllilegu vali í baráttu við óvin sem virðir engar leikreglur og hefur sagt siðmenningunni stríð á hendur. Nú er kvartað hástöfum yfir því að Lesa meira

Ólympíuleikar 2008

Ólympíuleikar 2008

Eyjan
15.02.2008

Þetta er rétt hjá Simon Jenkins í Guardian. Hitler er hinn raunverulegi verndardýrlingur Ólympíuleikanna – það er starfað í anda leikanna 1936.

Réttmætar spurningar

Réttmætar spurningar

Eyjan
15.02.2008

Ég hef enga trú á að málarekstur fjölskyldu Jónínu Bjartmarz gegn Kastljósinu skili árangri. Spurningarnar sem var varpað fram í Kastljósinu voru fyllilega réttmætar; það fengust heldur aldrei nein almennileg svör við því hvers vegna þessi tiltekna unga kona fékk sérmeðferð. Staðreyndin er að margir þekkja dæmi eins og þetta – og voru því tortryggnir Lesa meira

Annað kosningapróf

Annað kosningapróf

Eyjan
15.02.2008

Hér er annað kosningapróf sem hægt er að leika sér í. http://electoralcompass.com/  Samkvæmt því er ég mest sammála Hillary Clinton en mest ósammála Mick Huckabee.

Útitaflið

Útitaflið

Eyjan
14.02.2008

Ég gekk framhjá útitaflinu í rigningunni áðan. Hugsaði: „Menn eru að vesenast með greftrunarstað Fischers. En væri ekki ráð að finna honum legstað undir útitaflinu?“

Sjálfstæðishúsið

Sjálfstæðishúsið

Eyjan
14.02.2008

Fyrsta skrefið í verndun hússins við norðvesturhorn Austurvallar er að hætta að kalla það Nasa. Nasa er nafn á bandarísku geimferðastofnuninni. Þetta hús hét lengi Sjálfstæðishúsið og svo var það kallað Sigtún. Það gekk reyndar í gegnum niðurlægingarskeið, þá var það múrhúðað og í því var mötuneyti Landsímans. Áður hafði starfað þarna skemmtistaður en reksturinn Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af