Kosovo
EyjanKannski er óhjákvæmilegt að Kosovo verði sjálfstætt ríki. En ég get ekki séð að það sé neitt fagnaðarefni – ekki frekar en þegar Júgóslavía liðaðist í sundur – eða að sé nein ástæða til að vera fremst í röðinni að viðurkenna sjálfstæðið.
Guð og virkjanir
EyjanÆtli Guð hafi sömu skoðun á virkjunarmálum nú og þegar Biblían var skrifuð? Hann virtist ekki hafa miklar áhyggjur af því þó land færi vatn í þá daga. (úr athugasemdum við þessa færslu)
Hallar undan fæti hjá Mogganum
EyjanÉg ætla að gera þá játningu að mér þykir Morgunblaðið vera besta blað á Íslandi. Það er engan veginn gallalaust, en á fréttasviðinu hefur það algjöra yfirburði yfir fríblöðin og enginn keppir við hina víðfemu menningarumfjöllun í Mogganum. Hin pólitísku skrif í blaðinu eru oft hreint skemmtiefni. Hins vegar mætti það koma sér upp fleiri Lesa meira
Sub-prime
EyjanHér er ansi góð útlistun á undirmálslánakrísunni. Smellið á glærusýninguna til að skoða.
Tillaga Stefáns
EyjanGreining Stefáns Jóns Hafstein á borgarstjórninni er ekki fjarri lagi. Að þar ríki stjórnarkreppa, glundroði, kjörtímabilið sé eiginlega ónýtt. Það hafi varla verið neinn raunverulegur borgarstjóri í Reykjavík um langt árabil. Stefán telur að borgarbúar eigi betra skilið. Hann leggur til að Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og VG myndi „starfstjórn“ næstu tvö árin, leggi til hliðar ágreiningsmál Lesa meira
Kirkjan og pólitík
EyjanHér hlýt ég að vera ósammála mínum gamla vini Séra Baldri. Það er alveg óskiljanlegt hvers vegna þarf að troða pólitík inn í kirkjuna. Nóg er til af öðrum stöðum fyrir hana. Stundum finnst mér eins og prestarnir nenni ekki að tala lengur um guð og kristindóminn – jafnvel að þeir trúi ekki lengur – Lesa meira
Kostir Villa
EyjanVilhjálmur á að fá að ráða þessu sjálfur en það er greinilegt að Geir Haarde er tekinn að beita hann þrýstingi. Geir sagði í Silfrinu í dag að Vilhjálmur hefði vikufrest. En nú er spurning til hvers Vilhjálmur hefur frestinn? Hann getur auðvitað lýst því yfir að hann haldi áfram og ekkert hafi breyst. Eða: Lesa meira
Vatnsmýrarsýning
EyjanFór áðan á sýninguna á Vatnsmýrartillögunum í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu. Tillögurnar eru margvíslegar, maður vildi jafnvel geta blandað sumum þeirra saman. Sumar eru skemmtilega útópískar, aðrar praktískari eins og verðlaunatillagan sem mig grunar að hafi unnið vegna þess hversu opin og meðfærileg hún er. Athyglisverðast var samt hversu margt fólk var á sýningunni og Lesa meira
Huddersfield á leik
EyjanHuddersfield er að spila við Chelsea í ensku bikarkeppninni. Maður fylgist spenntur með.
