fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026

Óflokkað

Ástandið í Sjálfstæðisflokknum

Ástandið í Sjálfstæðisflokknum

Eyjan
22.02.2008

Það ríkir skrítið ástand í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er ekkert endilega á þeim buxunum að víkja. Hanna Birna Kristjánsdóttir rær að því öllum árum að verða oddviti í borgarstjórn – það er ekki trúverðugt þegar hún segist ekki hafa vitað af skoðanakönnun sem óvænt dúkkaði upp. Heimildir mínar herma að stallsystur Hönnu Lesa meira

Þursar

Þursar

Eyjan
22.02.2008

  Ég var að fá í hendurnar safn fimm hljómdiska með Hinum íslenska þursaflokki. Það er rétt sem ég las einhvers staðar. Þetta setur ný viðmið í svona útgáfu á Íslandi. Safnið er óvenju glæsilegt. Þursaflokkurinn var eins og opinberun þegar hann kom fyrst fram stuttu áður en ég varð tvítugur. Það var einstakt hvernig Lesa meira

Völdin á heimilinu

Völdin á heimilinu

Eyjan
22.02.2008

Mamma hans Kára ætlar að fara til London yfir helgina. Kári: Pabbi, það er gott að mamma er að fara til London því þá færð þú að ráða. Egill: Ha, ég hélt að það væru pabbarnir sem réðu? Kári: Nei, mamma ræður. En þú mátt ráða þegar hún er ekki.

Íslamd

Íslamd

Eyjan
21.02.2008

Það hafa verið skrifaðar bækur sem heita Londonistan og Eurabia. Þegar íslamófóbían hefur endanlega náð tökum á mér get ég skrifað bókina Íslamd.

Samsæriskenningar

Samsæriskenningar

Eyjan
21.02.2008

Trúa þeir sem álíta að Bush og co. (New American Century & Mossad & fl.) hafi sprengt tvíburaturnana því líka að MI6 hafi drepið Díönu prinsessu? Eða þarf þetta ekki að fara saman?

Leiðindamál

Leiðindamál

Eyjan
21.02.2008

Það er alveg sérstaklega leiðinlegt þegar pólitíkin fer að snúast um mál eins og meint framhjáhald McCains. Hann getur því miður ekki sagt eins og Mitterrand: Et alors? Og hvað með það? Svoleiðis er leikurinn ekki í BNA.

Loðnuveiðibann

Loðnuveiðibann

Eyjan
21.02.2008

Þetta er ansi athyglisverður texti eftir sævíkinginn að vestan. Ef marka má Níels hefðum við aldrei átt að veiða loðnu í svo miklu magni: „Vonandi að ríkistjórn auðnist að taka löngu tímabæra ákvörðun um að stöðva loðnuveiðar í eitt skipti fyrir öll eins og gert hefur verið í nánast öllum siðmentuðum löndum þar sem ábyrg Lesa meira

Sýningin í Hafnarhúsi

Sýningin í Hafnarhúsi

Eyjan
21.02.2008

Það er vont til þess að hugsa að Vatnsmýrarsýningunni í Hafnarhúsinu eigi að ljúka í kvöld. Þessi sýning hefur verið geysilega vel sótt – og skapað lifandi umræður um viðfangsefnið. Borgaryfirvöld ættu að sjá sóma sinn í því að láta sýninguna standa lengur, helst nokkrar vikur í viðbót. Þetta á hvort eð er ekki að Lesa meira

Sósíalistaforingi tekur íslamista til bæna

Sósíalistaforingi tekur íslamista til bæna

Eyjan
20.02.2008

„Hættið að leika fórnarlömb, komið út úr miðöldum,“ skrifar Villy Sövndal, formaður Sosialistisk folkeparti í Danmörku, á bloggi sínu um íslamska ofsatrúarmenn. SF er systurflokkur Vinstri grænna í Danmörku. Sövndal segir að venjulegir Danir séu þreyttir á fjarstæðukenndum hugarórum samtakanna Hizb-ut-tahrir og geðveikislegum mótmælaaðgerðum þeirra. Hann sé einn þeirra. „Formyrkvuð heimska ykkar á ekkert erindi,“ Lesa meira

Póker

Póker

Eyjan
20.02.2008

Það getur verið að það sé ekki ólöglegt að spila póker. En plebbalegt er það.

Mest lesið

Ekki missa af