fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026

Óflokkað

Verkin tala

Verkin tala

Eyjan
24.02.2008

„Niðurstaða Vilhjálms um að hann haldi áfram sem oddiviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna en að óákveðið sé hver verður borgarstjóri á næsta ári hefur engin áhrif á meirihlutasamstarfið í borginni, segir Ólafur F. Magnússon. Hann segir engu máli skipta hvaða borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks taki við embætti borgarstjóra. Meirihlutasamstarfið byggi á traustum málefnasamningi.“ Af ruv.is

Skipurit

Skipurit

Eyjan
24.02.2008

Það er búið að mennta mikið af fólki sem kann að búa til skipurit. Einu sinni voru í Háskólanum deildir eins og heimspekideild, læknadeild, guðfræðideild og verkfræðideild. Svo hefur þetta ekki þótt nógu gott. Það þarf að fikta í þessu, en enginn veit í rauninni til hvers. Þeir sem hafa eitthvað fram að færa í Lesa meira

Fluga á vegg

Fluga á vegg

Eyjan
24.02.2008

Konan mín er í heimsókn hjá hreinlætisóðum hjónum sem búa í stóru og glæsilegu húsi utan við London. Hún segir að væri skemmtilegt ef ég væri þarna fluga á vegg. En það er víst ekki hægt. Það væri búið að þrífa mig burt undireins.

Forystukreppa

Forystukreppa

Eyjan
24.02.2008

Niðurstaða sjálfstæðismanna er að Vilhjálmur Þ. verður áfram valdamesti maðurinn í borginni, formaður borgarráðs og maðurinn sem heldur um taumana. Fyrr í vikunni hélt ég að öruggt væri að Hanna Birna myndi taka við. Þetta bar reyndar öll merki hannaðrar atburðarásar – skoðanakönnun á réttum tíma, borgarstjóraefnið varð allt í einu sýnilegt. Svo kom bakslag. Lesa meira

Evróvisjón í Serbíu

Evróvisjón í Serbíu

Eyjan
24.02.2008

Serbarnir eru búnir að kveikja í bandaríska sendiráðinu. Það eru allar líkur á að þeir kveiki í Evróvisjón líka. Spurning að færa keppnina. En hvaða staður gæti komið til greina? Afganistan?

Tónleikar með Þursum

Tónleikar með Þursum

Eyjan
24.02.2008

Biblía Þursaflokksins var hið stórmerkilega þjóðlagasafn séra Bjarna Þorsteinssonar sem kom fyrst út upp úr aldamótunum 1900. Þursarnir tóku þetta efni mjög merkilegum tökum. Flestir þekktu það í heldur blíðlegum útsetningum, annað hvort með einsöngvurum sem sungu við píanóundirleik eða í flutningi sveita eins og Savanna tríósins. Þetta hljómaði allt öðruvísi í meðförum Þursanna. Þeir Lesa meira

Að mótmæla því sem ekki er

Að mótmæla því sem ekki er

Eyjan
23.02.2008

Þetta segir um ályktun flokkstjórnarfundar Vinstri grænna: „Í ályktun flokksráðsins segir, að áform um víðtæka einkavæðingu innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar, í menntakerfinu og á sviði samgangna séu alvarlegt tilræði við velferðarþjóðfélagið. „Ráðherrar úr báðum stjórnarflokkunum eru farnir að taka opinberlega undir með samtökum atvinnurekenda og fjármagnseigenda um einkavæðingu almannaþjónustunnar,“ segir m.a. í ályktuninni.“ Það væri Lesa meira

Sjálfstæðiskapallinn í borginni

Sjálfstæðiskapallinn í borginni

Eyjan
23.02.2008

Staðan núna er sögð vera sirkabát þessi: Vilhjálmur situr áfram. Ein meginástæðan sem verður gefin upp mun vera sú að ekki sé sátt um arftaka hans. Stuðningsmenn Villa og Guðlaugs Þórs vilja alls ekki að Hanna Birna taki við. Síðan eru uppi áform um að snemma á næsta ári verði leiðtogaprófkjör í borginni. Þar verði Lesa meira

Fjárhættuspil og Framsókn

Fjárhættuspil og Framsókn

Eyjan
22.02.2008

Í mikla pókermálinu hefur Birki Jóni náð að verða píslarvottur þeirra sem telja að fjárhættuspilarar á Íslandi séu beittir órétti. Viðbrögðin láta ekki standa á sér: Kröfur um að fjárhættuspil verði gefin frjáls í landinu. Einhvern veginn finnst manni samt meira í anda Framsóknarflokksins (og ungmennafélagahugsjónarinnar) að fara í hina áttina og banna öll fjárhættuspil. Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af