Ennþá fleiri aðstoðarmenn
EyjanNú ganga hinir á lagið. Þeir voru ekki lengi að því. Allir þingmenn vilja aðstoðarmenn. Ekki síst þeir sem hafa hingað til viljað „báknið burt“.
Tónleikamánuður
EyjanMars verður mikill tónleikamánuður. 6. mars ætla ég að hlusta á Sigrúnu Eðvaldsdóttur flytja fiðlukonsert Albans Berg. 13. mars er Þýsk sálumessa eftir Brahms flutt á sinfóníutónleikum með söngsveitinni Fílharmóníu. Tveimur dögum síðar er það Quatuor pour la fin du temps eftir Messiaen á tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu. Allt mögnuð verk. Efnisskrá Sinfóníunnar er óvenju góð Lesa meira
Nei, helst ekki
EyjanÉg segi sem íbúi í aðflugslínu Reykjavíkurflugvallar – ég kæri mig ekki um meiri flugumferð yfir bæinn. Þarf ekki að hafa grenndarkynningu eða eitthvað svoleiðis?
Veit ekki
EyjanÉg veit ekki með þennan dóm. Því verður ekki neitað að Ómar R. Valdimarsson var talsmaður ömurlegasta fyrirtækis sem hefur skolað upp á íslenskar fjörur, fyrirtækis sem byggir á þrælastefnu og einhvers konar kerfisbundnum rasisma. Menn gera ýmislegt fyrir peninga – en þegar þeir ganga í skítverk geta þeir varla búist við fagnaðarlátum. Ég skildi Lesa meira
Þungavigtargrein Illuga og Bjarna
EyjanÞingmennirnir Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson skrifa ágæta grein í miðopnu Moggans í dag – algjöra þungavigt – mikilvægið er slíkt að blaðið slær henni upp á forsíðu. Illugi og Bjarni segja að nauðsynlegt sé að grípa strax til aðgerða vegna bankanna. Það þurfi að efla Seðlabankann og Fjármálaeftirlit, lækka skatta á fyrirtæki í 12 Lesa meira
Botn Framsóknar
EyjanStundum er talað um að hlutir finni sinn botn. Þ.e. þann stað þar sem verður ekki neðar komist. Við vitum til dæmis ekki hvort íslenski hlutabréfamarkaðurinn hafi fundið sinn botn. Hann hefur rétt pínulítið úr kútnum en gæti fallið aftur. Eins er það með Framsóknarflokkinn. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins er flokkurinn með 5,9 prósenta fylgi. Lesa meira
Aðeins meira um klæðaburð
EyjanÉg sé að einhverjir eru að kvarta undan pistli mínum um klæðaburð við veitingu blaðamannaverðlauna. Eitt í þessu sambandi: Á sjöunda áratug síðustu aldar fór klæðnaði háskólakennara mjög hnignandi. Fyrst hættu þeir að ganga með bindi, svo komu rúllukragapeysur, loks birtist Svanur Kristjánsson í háskólanum í gallabuxum, vaðstígvélum og hermannajakka. Yfirvöld hugsuðu með sér: Svona Lesa meira
Villi og Nixon
Eyjan„Ég er ekki skúrkur,“ segir Vilhjálmur Þ. í viðtali við DV í dag. Þessu er slegið upp á forsíðu blaðsins. Menn átta sig kannski ekki á því en þessi ummæli enduróma fræg orð úr stjórnmálasögunni. Það var þegar Richard Nixon sagði á blaðamannafundi 17. nóvember 1973: „I am not a crook.“ Nixon ætlaði að reyna Lesa meira
Blaðamannaverðlaunin
EyjanBlaðamannaverðlaunin eru ekki að gera sig. Þetta má glöggt sjá ef skoðuð er ljósmynd á blaðsíðu fjögur í Morgunblaðinu í dag. Þarna eru verðlaunahafarnir – sumir ágætlega að verðlaununum komnir – en enginn þeirra hefur haft fyrir því að fara í spariföt að þessu tilefni. Einungis Kristján Már Unnarsson er með bindi. Þetta ber ekki Lesa meira
