fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026

Óflokkað

Uppreisn í aðsigi?

Uppreisn í aðsigi?

Eyjan
28.02.2008

Ég er að velta því fyrir mér hvers vegna gagnrýni Andrésar Magnússonar læknis á íslenska bankakerfið hefur fengið svo mikinn hljómgrunn. Er það ekki vegna þess að almenningur í þessu landi er búinn að fá sig gjörsamlega fullsaddann af vaxtaokrinu, óhófinu og matadorspilamennskunni í bankakerfinu? Og líka vegna þess að fólk treystir ekki hagfræðingum fyrir Lesa meira

Útrásargrúpía

Útrásargrúpía

Eyjan
28.02.2008

Hér talar ein af grúpíum útrásarinnar. Fyrrum ritstjóri Markaðarins, viðskiptaútgáfu Fréttablaðsins, sem flutti halleljújafréttir af íslenskum viðskiptasnillingum. Aldrei örlaði á gagnrýnni hugsun í Markaðnum. Þeir sem gagnrýndu óhóf útrásarvíkinganna fengu þá einkunn að þeir væru hallærislegir og öfundsjúkir. Það væri þeirra mál hvernig þeir eyddu peningunum sínum. Það var ekki alvarlegt mál þegar gengi fyrirtækja Lesa meira

Aðildarumsókn

Aðildarumsókn

Eyjan
28.02.2008

Það er sagt að evra og ESB sé ekki lausn á þeim vanda sem steðjar að íslensku hagkerfi. Skammtímavandanum. En er það alveg víst? Má ekki alveg eins gera því skóna að yfirlýsing um að Ísland hyggist sækja um aðild myndi hafa mikil áhrif á stöðuna – að aðildarumsóknin ein sér myndi að einhverju leyti Lesa meira

Stjórnmálaskóli VG

Stjórnmálaskóli VG

Eyjan
28.02.2008

Þetta er eiginlega alveg prýðilegt. Stjórnmálaskóli VG haldinn á Akureyri um helgina – fyrir unga fólkið. Og ein námsgreinin er: Fundir og mótmæli.

Rangur staður fyrir Evróvision

Rangur staður fyrir Evróvision

Eyjan
28.02.2008

Evróvision er hugsanlega mesta hommahátíð í heimi. Keppnin er gegnsýrð af menningu samkynhneigðra – sérstakri tegund af kitsi. Þeir keppendur sem ekki eru samkynheigðir líta allavega út fyrir að vera það. Svo les maður að íbúar Belgrad ofsæki samkynhneigt fólk. Ja, þá er borgin augljóslega ekki rétti staðurinn fyrir þessa samkomu. Reykjavík með sína fjölmennu Lesa meira

Meiri iðnvæðing framundan

Meiri iðnvæðing framundan

Eyjan
27.02.2008

Ég held að það sé víst að hér munu eiga sér stað miklar iðnaðarframkvæmdir á næstu árum. Það verður reist álver á Bakka við Húsavík og í Helguvík. Svo mun vonandi rísa netþjónabú á Miðnesheiði – það er orkufrek starfsemi. Orkan mun meðal annars koma af Hellisheiði og úr nýrri virkjun í Þjórsá. Ég hygg Lesa meira

Bókstafstrúarmenn

Bókstafstrúarmenn

Eyjan
27.02.2008

Það eru víða menn með geggjaðar hugmyndir. Ég lenti á sjónvarpsstöðinni Omega og þar sat maður með ísraelskan fána og gyðingastjörnu um hálsinn, sagði að víst væru gyðingar guðs útvalda þjóð og taldi að stofnun Ísraelsríkis væri undanfari að því að Jesús sneri aftur til jarðarinnar – gott ef hann átti ekki að tylla sér Lesa meira

Kleppur, kirkjuvald og Stephen King

Kleppur, kirkjuvald og Stephen King

Eyjan
27.02.2008

Í Kiljunni í kvöld verður umfjöllun um bók Óttars Guðmundssonar þar sem skráð er saga Kleppsspítala. Það er Héðinn Unnsteinsson, merkilegur sérfræðingur í geðheilbrigðismálum sem segir skoðun sína á bókinni. Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur kemur í þáttinn og segir frá bók sinni sem nefnist Bannfæring og kirkjuvald á Íslandi 1275-1550. Barnabókahöfundurinn Lani Yamamoto býr í Vesturbænum Lesa meira

Bunuel og trúarbrögðin

Bunuel og trúarbrögðin

Eyjan
27.02.2008

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=lcasqBRzeeA] Merkilegt að heyra fólk segja að ekki megi ráðast á trúarbrögðin; hið öfuga er eiginlega satt, það á að ráðast á trúarbrögðin, hæða þau og spotta, til að þau hverfi inn á það svið þar sem þau eiga heima – á hinu einkalega – andlega – sviði, en séu ekki að þvælast á hinu Lesa meira

Djók

Djók

Eyjan
27.02.2008

Tók einhver eftir því að í dómnum í máli Ómars Valdimarssonar og Gauks Úlfarssonar er sérstaklega tekið til þess að Ómar sé ræðismaður El Salvador? Dómarinn virðist taka sérstakt tillit til þess – það má semsagt síður móðga konsúl El Salvador en einhvern Jón úti í bæ.

Mest lesið

Ekki missa af