fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026

Óflokkað

Alþjóðavæðing

Alþjóðavæðing

Eyjan
03.03.2008

Það var hópur af pólskum rónum í bænum í dag, á hinum hefðbundna rónastað við Útvegsbankann gamla. Það er nýbreytni að því. Svona er alþjóðavæðing á mörgum sviðum.

Gegn ESB

Gegn ESB

Eyjan
03.03.2008

Þessa mynd fann ég á heimasíðu ungs andstæðings Evrópusambandsins. Baráttan gæti orðið ansi hörð ef marka má þetta. Minnir reyndar ansi mikið á myndmál herstöðvabaráttunnar. Sama skírskotunini í þjóðernið, útlendingar sem læsa klóm í landið, fjallkonan – sem þarna er reyndar komin með sverð en talaði frekar í ljóðum á tíma baráttunnar gegn bandarískum her.

Klofningur

Klofningur

Eyjan
03.03.2008

Björn Bjarnason sagði í eftirminnilegu viðtali hjá mér snemma í febrúar að Evrópusambandsaðild gæti klofið flokka. Þar átti hann auðvitað ekki síst við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta vissi Davíð og þetta veit Geir Haarde þannig að það er ekki furða að sá síðarnefndi stígi varlega til jarðar í umræðunni um ESB. En eftir því sem gjaldmiðillinn okkar Lesa meira

Í heimsókn hjá Bush

Í heimsókn hjá Bush

Eyjan
03.03.2008

Gordon Brown komst í gegnum síðustu ferð til bústaðar Bandaríkjaforseta með því að setja upp þjáningarsvip þegar hann þurfti að fara upp í golfkerruna. Þessi svipur var það eina rétta í stöðunni. Anders Fogh Rasmusen gerir þetta öðruvísi. Hann gengst upp í blíðuhótum forsetans. Kallar hann friðarsinna og mikinn umhverfisverndarmann. Hann hlýtur samt að vita Lesa meira

Matvælaöryggi og ógnarmat

Matvælaöryggi og ógnarmat

Eyjan
02.03.2008

Þegar Ólafur Ragnar talar um matvælaöryggi – er hann þá að spá í þann möguleika að flutningar til Íslands leggist af, að ástandið í heiminum verði slíkt að við getum ekki orðið okkur út um matvæli nema með því að afla þeirra sjálf, veiða eða rækta? Að við verðum þá komin á svipaðan stað og Lesa meira

Fínir kallar

Fínir kallar

Eyjan
02.03.2008

Ég var lítill strákur á hjóli úti á flugvelli þegar Gullfaxi kom til landsins. Ég les að það hafi verið 22. júní 1967. Þá veit ég hvað ég var að gera þann dag. Ég man að þarna var fyrirfólk, karlar með hatta eins og þá tíðkaðist – maður þekkti Ingólf Jónsson sem var samgönguráðherra. Ingólfur Lesa meira

Dómsdagur í nánd

Dómsdagur í nánd

Eyjan
02.03.2008

Jónas Kristjánsson er með magnaða útleggingu á þessu viðtali við James Lovelock úr The Guardian. Manni svelgist á morgunkaffinu. Áttatíu prósent mannkynsins þurrkast út, það verður stanslaust óveður. Eða er þetta bara geggjaður gamall karl?

Frjálslyndir og landráðin

Frjálslyndir og landráðin

Eyjan
01.03.2008

Ungliðahreyfing Frjálslynda flokksins ályktar um að þeir sem vilji að Ísland gangi í ESB séu landráðamenn. Þessi söfnuður fólks verður æ skrítnari. Sjálfur get ég borið vitni um að Jón Magnússon hefur komið í þætti hjá mér með með merki Evrópusambandsins í jakkaboðungnum.

Guðlaugur Þór í Silfrinu

Guðlaugur Þór í Silfrinu

Eyjan
01.03.2008

Heilbrigðisráðherrann Guðlaugur Þór Þórðarson verður gestur í Silfri Egils á morgun. Af öðrum gestum í þættinum má nefna Steingrím J. Sigfússon, Einar Kr. Guðfinnsson, Sæunni Stefánsdóttur og hagfræðingana Ólaf Ísleifsson og Ársæl Valfells.

Hann líka

Hann líka

Eyjan
01.03.2008

„Við ætlum að láta verkin tala.“ Gísli Marteinn Baldursson í kvöldfréttum Sjónvarps.

Mest lesið

Ekki missa af