Sjálfstæð utanríkisstefna, ha?
EyjanHin sjálfstæða utanríkisstefna Íslendinga er að flestu leyti á huldu. Við erum í félagi við herafla Nató í Afganistan. Það er kannski nauðsynlegt, en samt hefur maður á tilfinningunni að allur sá herleiðangur sé misheppnaður. Íslenskir ráðamenn forðast eins og þeir geta að styggja hið vaxandi heimsveldi Kína. Forsetinn fer í heimsókn þangað og segir Lesa meira
Ysta hægrið og ysta vinstrið gegn ESB
EyjanHeitustu andstæðingar Evrópusambandsins í álfunni hafa verið þeir sem eru lengst til vinstri og þeir sem eru lengst til vinstri. Hér á landi virðist þetta fylgja sama munstri. Áköfustu andstæðingarnir eru annars vegar úr röðum Vinstri grænna og hins vegar af repúblikanavæng Sjálfstæðisflokksins. Formaður samtakanna Heimssýn, sem berjast gegn ESB aðild, er gamli sósíalistinn Ragnar Lesa meira
Vanessa
EyjanVanessa Redgrave stóð fyrir utan Heathrow áðan og reykti sígarettu. Í rauðri flíspeysu og með slitna rauða húfu. Mér sýndust ekki margir þekkja hana.
Styrmir vill einangra Samfylkinguna
EyjanKarl Th. Birgisson skrifar mikla grein um Styrmi Gunnarsson í nýtt hefti Herðubreiðar. Þar kennir ýmissa grasa. Ég vildi gjarnan fá staðfestingu á sögunni sem þarna er rakinn um að Þorsteinn Pálsson hafi setið og hlustað á símtal milli Styrmis og Kristins Björnssonar þar sem þeir eiga að hafa hlakkað yfir væntanlegum óförum Baugsmanna? Er Lesa meira
Ólafur F. og umhverfismálin
EyjanÓlafur F. Magnússon er algjörlega áhugalaus um lestasamgöngur. Hann reynir meira að segja að kæfa tillögu um að þessi samgöngumáti verði kannaður nánar – sem nota bene kemur frá Sjálfstæðisflokknum í borgarstjórn. Var Ólafur að villa á sér heimildir þegar hann þóttist vera umhverfisverndarsinni? Snerist það kannski bara allt um hann sjálfan eins og Björn Lesa meira
Hraðaspurningar
EyjanMér heyrðist að væri nóg að kunna bara tvö eða þrjú svör í hraðaspurningunum í Gettu betur. Mjög óljóst: „Braappp. Gvapp. Vaaabb.“ Eða svona hljómaði þetta í eyrum mér. Efast samt ekki um að svörin voru rétt.
Fuglasveimur
EyjanÞað var skrítinn fuglasveimur yfir Miðbænum í ljósaskiptunum í kvöld. Barst fram og aftur um himininn, einkennilega samtaka. Þúsundir fugla. Svo allt í einu þyrptust þeir inn í limgerðið sem hangir utan á Eymundssonar húsinu. Fleiri og fleiri. Þangað til það var allt iðandi. Skrítin sjón.
Frjálst Tíbet
EyjanÞetta þarf ekki að vera flókið. Frjálst Tíbet! Eða Kínverjum verður tjáð að ekki kjaftur láti sjá sig á Ólympíuleikunum í sumar.
Norræn króna
EyjanSteingrímur J. og Katrín Jakobsdóttir leggja til í langri opnugrein í Morgunblaðinu að Íslendingar beiti sér fyrir því að tekin verði upp „norræn króna“. Er það raunsætt? Finnar nota evru, Danir og Svíar eru í ESB og hafa tengingu við evruna, Norðmenn hafa sínar olíukrónur. Ef þetta gengur ekki upp leggja Vinstri grænir til að Lesa meira
