fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026

Óflokkað

Geðhvörf

Geðhvörf

Eyjan
20.03.2008

Ég held að margt bendi til þess að íslenska þjóðin sé haldin geðhvarfasýki. Sé maníu-depressíf. Maður hefur séð þetta birtast í vægri útgáfu í Evrovisjón keppninni. Svo í DeCode æðinu. Ástandið í efnahagslífinu hefur líka einkenni geðhvarfa. Við trúðum því í alvörunni að íslenskir fjármálamenn væru klárari en aðrir fjármálamenn; kynnu eitthvað sem aðrir kynnu Lesa meira

Fyllerí

Fyllerí

Eyjan
19.03.2008

Það er skrítið að tala um það sem „áframhaldandi fyllerí“ að byggja álver í Helguvík líkt og einn þingmanna Vinstri grænna gerir. Einhver verðmætasköpun þarf að vera í þessu landi. Við förum ekki bara að gera „eitthvað annað“ eins og sumir hafa lagt til. Ofurþenslan sem hér hefur verið er ekki stóriðjuframkvæmdum að kenna nema Lesa meira

Gjaldeyriskaup bankanna

Gjaldeyriskaup bankanna

Eyjan
19.03.2008

Þetta bréf barst utan úr bæ. Efni þess er mjög athyglisvert. Höfundurinn er í þeirri stöðu að hann vill ekki láta nafns síns getið: „Að undanförnu hefur mönnum orðið tíðrætt um stöðu krónunnar og framtíðarhorfur.  Mikið hefur verið fjallað um svokölluð krónubréf sem erlendir fjárfestar hafa gefið út í þeirri trú að krónan muni veikjast Lesa meira

Costa Blanca

Costa Blanca

Eyjan
19.03.2008

Ég er kominn niður til Spánar. Hér á Costa Blanca er ekkert frægt fólk, bara sauðsvartur almúginn eins og maður er sjálfur. Það er ekki mikils virði í útlöndum að vera þekktur sjónvarpsmaður á Íslandi. Það hefur nákvæmlega ekkert gildi. Raunar mun Bob Dylan ætla að halda tónleika hér í júlí – áður en hann Lesa meira

Einar og Evrópumálin

Einar og Evrópumálin

Eyjan
18.03.2008

Hinn ágæti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einar Kristinn Guðfinnsson, kemst að þeirri niðurstöðu á bloggi sínu að það sé offramboð á Evrópuumræðu en lítil eftirspurn eftir henni. Ég er reyndar sammála Einari um að það sé enginn sérstakur skortur á Evrópuumræðu. En það er líka brennandi áhugi á henni. Kannski vegna þess að fólk skynjar að Lesa meira

Berezovskí

Berezovskí

Eyjan
18.03.2008

Fræga fólkið er á hverju strái hér í London. Mér er skapi næst að gerast paparazzi. Í hádeginu í gær borðaði ég á veitingahúsi. Í einu horninu sat Boris Berezovskí, rússneski auðkýfingurinn sem er óvinur Pútíns númer eitt. Ég lýg því ekki að þetta var sushi-staður.

Heimsendaspámenn

Heimsendaspámenn

Eyjan
18.03.2008

Það er hægt að flytja svona fréttir í löndum þar sem fólk þekkir ekki jökla. Íslendingar þekkja þá hins vegar nokkuð vel. Ætli við myndum telja einhverjar líkur á því að Vatnajökull, Langjökull eða Hofsjökull verði horfnir eftir áratug? Nei, auðvitað ekki. Þetta er það sem kallast alarmismi. Eða jafnvel meðvituð tilraun til að magna Lesa meira

Tímabundin lausn

Tímabundin lausn

Eyjan
18.03.2008

Ríkistjórnin gæti lýst því yfir að páskafrí hefjist í dag. Þá hrynur ekkert meira fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudaginn í næstu viku.

Hávaxta hagfræði

Hávaxta hagfræði

Eyjan
17.03.2008

Krónan hrynur. Hátt vaxtastig sem samkvæmt hefðbundnum hagfræðikenningum ætti að halda uppi verði gjaldmiðilsins virkar ekki þannig lengur. Menn hafa verið hræddir við að hefja „vaxtalækkunarferli“ af ótta við að gjaldmiðillinn félli. En hann fellur nú samt. Meira en nokkurn óraði fyrir. Og heldur kannski áfram að falla. Þá kemur rödd úr Seðlabankanum: Líklega verður Lesa meira

Þarf að reka seðlabankastjóra?

Þarf að reka seðlabankastjóra?

Eyjan
17.03.2008

Það er að verða augljóst að hér hafa verið gerð stórkostleg mistök í hagstjórn. Vöxtum hefur verið haldið ofurháum meðan erlent fjármagn hefur flætt inn í landið sem lánsfé og vegna spákaupmennsku. Nú er peningamálastefnan hrunin. Ég hélt ég væri að tala óvarlega þegar ég sagði í Silfrinu í gær að evran yrði kannski komin Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af