fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026

Óflokkað

Betra ástand í Írak

Betra ástand í Írak

Eyjan
24.03.2008

Eins og lesa má í þessari grein Olivers Kamm sem birtist á vef Guardian hefur ástandið í Írak farið stórbatnandi. Dauðsföllum meðal óbreyttra borgara hefur fækkað um meira en sjötíu af hundraði. Það er að færast líf í borgir Íraks – líka stað eins og Fallujah. Samkvæmt skoðanakönnunum telur meirihluti Íraka að hlutirnir séu að Lesa meira

Helvíti er Bergman mynd

Helvíti er Bergman mynd

Eyjan
23.03.2008

Norrænir prestar vilja leggja áherslu á að helvíti sé andlegt frekar en líkamlegt, að það sé einmanakennd og sú tilfinning að lífið sé einskisvert. Við brennum semsagt ekki í eilífum eldi heldur verðum við stödd í mynd eftir Ingmar Bergman. Eða viljum við frekar þessa gömlu vítisvist, í anda Hieronymusar Bosch?

Að tala eða gera

Að tala eða gera

Eyjan
22.03.2008

Björn Bjarnason flokkar stjórnmálamenn niður í doers and talkers. Ég held reyndar að draumastjórnmálamenn séu hvort tveggja. Það má til dæmis fullyrða að Davíð Oddsson hafi talað of lítið – tuddast áfram án þess að væri búið að ræða mál – en Jón Baldvin Hannibalsson hafi stundum talað of mikið. Þegar þeir unnu saman í Lesa meira

Samgöngumiðstöð er lélegt grín

Samgöngumiðstöð er lélegt grín

Eyjan
22.03.2008

Það er ljóst að stór hluti borgarfulltrúa – og líka borgarbúa – er á móti þessari samgöngumiðstöð sem og öllum stórframkvæmdum við Reykjavíkurflugvöll. Samt halda sveitarstjórnarmenn úti á landi áfram að frekjast. Skilja þeir ekki að málið verður ekki leyst nema í samráði við íbúa svæðisins? Þessu verður ekki troðið ofan í kokið á okkur. Lesa meira

Ferð til Barbados

Ferð til Barbados

Eyjan
22.03.2008

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er mjög dugleg kona. Og hún hefur um sig hóp duglegs fólks sem ábyggilega vill láta gott af sér leiða. En er ekki hægt að beina kröftunum í einhverja skynsamlegri átt en að vera á útopnu vegna þessa framboðs til Öryggisráðsins? Sem vísustu menn segja að sé vonlaust. Ég sé ekki betur Lesa meira

Skissur frá Spáni

Skissur frá Spáni

Eyjan
21.03.2008

Þessi blómabreiða var fyrir utan húsið þegar við lögðum af stað í bíltúr í morgun. Það er vor, jafndægur á vori. Hér sölnar allt þegar kemur sumar, en nú eru alls staðar blóm. Í gær var hellirigning. Í dag er sól en hitinn rétt skríður yfir tuttugu stig á daginn, á kvöldin er kalt. Í Lesa meira

Leikarnir í Peking

Leikarnir í Peking

Eyjan
21.03.2008

Ólympíuleikar snúast um þjóðernisrembing, peninga og pólitík. Ekki síst þegar þeir eru haldnir í landi eins og Kína. Formaður Ólympíusambandsins á Íslandi er algjörlega ómarktækur þegar hann segir að þetta snúist bara um íþróttir. Hann væri til í að segja hvað sem er til að forðast að lenda í vandræðum með leikana. Ólympíuhreyfingin er líka Lesa meira

It´s the economy

It´s the economy

Eyjan
20.03.2008

It´s the economy, stupid! var frasi sem var mikið notaður í kosningunum 1992 þegar Bill Clinton sigraði George Herbert Bush, föður núverandi Bandaríkjaforseta. Þá var stutt samdráttarskeið í efnahagslífinu. Á tíma Clintons var síðan mikill uppgangur. Margir Bandaríkjamenn minnast þeiss tíma sem einhvers konar gullaldar. Á tíma Bush yngri hefur efnahagur Bandaríkjanna verið keyrður svo Lesa meira

Skopmyndir

Skopmyndir

Eyjan
20.03.2008

Ég mundi aldrei bera saman Osama bin Laden og Salman Tamimi. En þeir bulla báðir þegar þeir tala um skopmyndir.

Mest lesið

Ekki missa af