fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026

Óflokkað

Líka þetta

Líka þetta

Eyjan
01.04.2008

Dagur vildi Hringbrautina. Hann beitti sér fyrir háskólaferlíkinu með öllum bílastæðunum í Nauthólsvík. Hann hefur stutt hinar tröllauknu spítalabyggingar neðst í Skólavörðuholtinu. Og nú styður hann samgöngumiðstöðina. Í hinu orðinu heldur hann svo samkeppni um framtíð Vatnsmýrar. Annað heilahvelið veit ekki hvað hitt gerir.

Góð staða

Góð staða

Eyjan
01.04.2008

Ég sé að Íslensk málnefnd og Blaðamannafélagið eru að efna til þings þar sem verður spurt um stöðu íslenskunnar í fjölmiðlum. Við því er einfalt svar. Hún er mjög góð.

Skúrkurinn

Skúrkurinn

Eyjan
01.04.2008

Þarna er maðurinn sem sagðist ætla setja Ísland á hausinn. Og þetta er heimasíða fyrirtækis hans. Ég efast satt að segja um að Hugh Hendry hafi haft bolmagn til þessa einn og sér. En það er mikið af ógeðfelldum týpum sem fjármálamarkaðurinn hefur hóstað upp síðustu árin.

Kjördæmapólitíkus

Kjördæmapólitíkus

Eyjan
01.04.2008

Kjósendur Kristjáns Möllers samgönguráðherra eru ekki í Reykjavík. Þeir eru norður í landi. Þess vegna er Kristjáni hjartanlega sama um hvað fólki í Reykjavík finnst. Hann getur setið til eilífðarnóns á Alþingi meðan hann skaffar fyrir sitt kjördæmi. Þess vegna beitti hann sér fyrir Héðinsfjarðargöngum – óhagkvæmustu vegaframkvæmd í Íslandssögunni. Þess vegna ætlar hann að Lesa meira

Gátan ráðin

Gátan ráðin

Eyjan
31.03.2008

Í viðtali við sjónvarpið í kvöld var borgarstjórinn ekki í vafa um hver bæri ábyrgð á ófremdarástandinu í miðbæ Reykjavíkur: Framsóknarflokkurinn!

Ólafur F og Kristján Möller ná saman

Ólafur F og Kristján Möller ná saman

Eyjan
31.03.2008

Þessi samgöngumiðstöð er ekki boðleg meðan óvissa ríkir um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Það er líka fals að kalla það samgöngumiðstöð: Þarna verður aldrei miðstöð fyrir strætisvagna og það er heldur ekkert vit í því að stefna langferðabílum á þennan stað. Þetta er auðvitað ekki annað en flugstöð. Hví að byggja flugstöð fyrir flugvöll sem kannski verður Lesa meira

Kjúklingar og kindur

Kjúklingar og kindur

Eyjan
31.03.2008

Verði á kjúklingum er haldið uppi á Íslandi til að verja framleiðslu á kindakjöti. Þetta kann að horfa einkennilega við. Sauðfé fer um fjöll á sumrin og bítur gras. Kjúklingar alast upp í óhugnarlegum verksmiðjum. Ég var á Spáni um daginn og sá að kílóið af kjúklingabringum kostar víðast 3-4 evrur. Innan við fimm hundruð Lesa meira

Þegar Rod var snillingur

Þegar Rod var snillingur

Eyjan
31.03.2008

Ég las í blaði að söngvarinn Daníel Ágúst Haraldsson væri farinn að skarta hárgreiðslu eins og Rod Stewart var með upp úr 1970. Í mínu ungdæmi prófuðu ýmsir svona hárgreiðslu. Daníel sagðist líka vera að hlusta á plötur með Rod frá þessu tímabili. Margir hafa sopið hveljur þegar ég hef sagt þeim að Rod Stewart Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af