fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026

Óflokkað

Eldflaugavarnir á Íslandi?

Eldflaugavarnir á Íslandi?

Eyjan
06.04.2008

Ég benti á það um daginn að Íslendingar hefðu engan áhuga á efni Búkarestsfundar Nató, einungis á hugsanlegum flottræfilshætti ráðherra sem fóru þangað. Það hefur sannast rækilega. Örn Arnarson skrifar merkilega fréttaskýringu um fundinn á vef Viðskiptablaðsins. Hann bendir á að á fundinum hafi Natóríkin samþykkt fyrirætlanir Bandaríkjanna um eldflaugavarnakerfi í Evrópu. Það þýðir að Lesa meira

Dapurt ferðalag ólympíukyndils

Dapurt ferðalag ólympíukyndils

Eyjan
06.04.2008

Það er glæsilegt eða hitt þó heldur að fylgjast með ólympíueldinum þar sem hann fer í gegnum London. Þetta hefur verið í beinni útsendingu á Sky nánast í allan dag. Íþróttamenn eru líklega að hlaupa með kyndilinn, en það sést ekki í þá fyrir lögreglumönnum sem hlaupa og hjóla með. Þrjátíu og fimm mótmælendur hafa Lesa meira

Skilaboð Frakka

Skilaboð Frakka

Eyjan
06.04.2008

Rama Yade er bráðung kona í ríkisstjórninni í Frakklandi, fædd 1976 í Senegal. Hún fer með mannréttindamál – en það ráðuneyti heyrir undir utanríkisráðherrann, Bernard Kouchner. Sjálf telst hún vera múslimi, menntaði sig í kaþólskum skólum en er gift manni af gyðingaættum. Það er flott. Það er gott að sjá hana flytja Kínverjum þessi skilaboð: Lesa meira

Þegar sópraninn deyr

Þegar sópraninn deyr

Eyjan
06.04.2008

Fór og hlustaði á Sálumessu Verdis í Hallgrímskirkju í gær í flutningi hljómsveitar og kórsins Vox academica. Tónleikarnir voru frábærir, einsöngvararnir Sólrún Bragadóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir, Gissur Páll Gissurarson og Kristinn Sigmundsson voru hvert öðru betra. Þetta er sálumessa, kirkjutónlist, en hún er samt ekki svo fjarri óperusmiðnum Verdi. Einsöngraddirnar hafa veigameira hlutverk en í Lesa meira

Sóðabæli

Sóðabæli

Eyjan
05.04.2008

Reykjavík er ótrúleg sóðaborg. Maður veit ekki hvað þarf að gera til að breyta þessu. Borgin er nú orðið sóðalegri en flestallar borgir sem ég þekki í Evrópu. Maður sér draslið vel þegar vorar aðeins. Kannski þarf aftur að fara í átak eins og „hrein torg – fögur borg“ hér um árið. Það skilaði miklum Lesa meira

Dershowitz, Ragnar og Þórunn í Silfrinu

Dershowitz, Ragnar og Þórunn í Silfrinu

Eyjan
05.04.2008

Eins og áður er komið fram verður hinn frægi bandaríski lögfræðingur og þjóðfélagsrýnir Alan Dershowitz  gestur í Silfri Egils á sunnudag. Ragnar Önundarson hefur skrifað merkar greinar um efnahagsmál í Morgunblaðið á umliðnum árum. Hann kemur líka í þáttinn. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og þingmennirnir Álfheiður Ingadóttir, Kristinn H. Gunnarsson og Illugi Gunnarsson sitja í pallborði.

Ísland og Evrópa

Ísland og Evrópa

Eyjan
05.04.2008

„Þá greindi Einar frá því að hann hefði mælt fyrir frumvarpi um nýja matvælalöggjöf á fimmtudag. Með því væri tekin upp matvælalöggjöf Evrópusambandsins.“ Sjá á vef Rúv.

Verkferlar í Háskóla

Verkferlar í Háskóla

Eyjan
05.04.2008

Háskólarektor segir að þurfi að endurskoða „verkferla“ innan Háskólans vegna dómsins yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Nú er það reyndar svo að háskólar hafa starfað í mörg hundruð ár áður en þessi dómur var kveðinn upp. Hefðirnar hafa verið að mótast alveg síðan í Bologna, Oxford, Cambridge, Salamanca og París en háskólarnir á þessum stöðum eru Lesa meira

Mitford systurnar

Mitford systurnar

Eyjan
04.04.2008

Þetta skilti rakst ég á í Curzon Street í London, hjá bókabúðinni sem er númer 10 við götuna, í rigningu um daginn. Minnti mig á bækur sem ég las fyrir löngu. Nancy Mitford var ein í hópi systra sem hafa orðið svo frægar að það er jafnvel talað um Mitford-iðnaðinn sem hafi skapast í kringum Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af