fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026

Óflokkað

Utanríkisstefnan

Utanríkisstefnan

Eyjan
09.04.2008

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leggur áherslu á nýja utanríkisstefnu. Samt virðist utanríkispólitík Íslands helst miða við framboðið til Öryggisráðið. Nú er búið að planta Svavari Gestssyni niður í Afríku til að vinna að framboðinu. Þetta er náttúrlega ekki ný utanríkisstefna heldur arfur frá fyrri ríkisstjórn. Aðallega frá Halldóri Ásgrímssyni. Nú má vera að innan stjórnkerfisins sé Lesa meira

Fyrirmyndin Ísland

Fyrirmyndin Ísland

Eyjan
08.04.2008

Newsweek segir að Bandaríkjamenn geti mikið lært af Íslendingum í orkumálum. Mér heyrðist ég heyra Al Gore segja hið sama. Hitaveitur á Íslandi eru náttúrlega hrein dásemd – algjör munaður. Gufuaflsvirkjanir eru líklega eðlilegt framhald þar á. Við kyndum ekki með olíu eða kolum vegna þess að við þurfum það ekki. Flest fólk hefur hins Lesa meira

Glæpavæðing

Glæpavæðing

Eyjan
08.04.2008

Búlgaría er mikið glæpahreiður. Um það má lesa í bók Misha Glenny sem heitir McMafia – Crime Without Frontiers. Ég hef verið að líta í hana meðfram öðrum bókum. Leyniþjónustan í Búlgaríu sneri sér að miklu leyti að glæpum eftir fall kommúnismans. Gamlir lyftingamenn þóttu líka gagnlegir. Þetta var einkennileg frjálshyggjuvæðing samfélagsins. Það er ekki Lesa meira

Er heimilt að gagnrýna fræðin?

Er heimilt að gagnrýna fræðin?

Eyjan
08.04.2008

Ég sé að ég verð þess heiðurs aðnjótandi að Árni Finnsson og Hjörleifur Guttormsson skrifa um mig greinar í blöðin í dag, Árni í Fréttablaðið og Hjörleifur í Morgunblaðið. Árna mislíkar að ég skuli hafa kallað Glúm Jón Björnsson efnafræðing í viðtal vegna hingaðkomu Als Gore. Vegna þessa kemst Árni að þeirri niðurstöðu að ég Lesa meira

Vinnumiðlun

Vinnumiðlun

Eyjan
08.04.2008

Þráinn Bertelsson spyr hvort Samfylkingin sé ferðafélag? Já, líklega. En hún er líka vinnumiðlun.

Heimsslit

Heimsslit

Eyjan
08.04.2008

Hugmyndirnar um stórkostlegar hamfarir af völdum loftslagsbreytinga spretta af trúarlegri þrá – sem einnig birtist í stjórnmálahugmyndum eins og kommmúnisma og nasisma – eftir heimsslitum; atburði sem toppar alla hina. Syndaflóði. Þetta er mjög blandið djúprættri sektarkennd sem virðist vera fylgifiskur mannsins frá örófi alda. Að maðurinn sé spilltur í eðli sínu og eigi að Lesa meira

Orkuævintýrin halda áfram

Orkuævintýrin halda áfram

Eyjan
07.04.2008

Í Djíbútí er atvinnuleysi sextíu prósent, lífslíkur karla eru 42 ár, landið er stórskuldugt og getur ekki staðið í skilum með afborganir, þarna hefur geisað borgarastríð, efnahagurinn hefur verið á stöðugri niðurleið síðustu tíu árin. Þetta er smáríki, klemmt milli Sómalíu og Eritreu, en í báðum þeim löndum er stríðsástand. Nú er Össur Skarphéðinsson á Lesa meira

Ólympíueldurinn

Ólympíueldurinn

Eyjan
07.04.2008

Það var Ken Livingstone, gamli vinstrimaðurinn, nú borgarstjóri Lundúna, sem leyfði Kínverjum að setja upp Ólympíusirkusinn í borg sinni í gær. Kínverjar kalla þetta ferðalag journey of harmony – þetta er á vegum þeirra en ekki Ólympíunefndarinnar. Með ferðinni fylgjast kínverskir öryggisverðir í bláum æfingagöllum; lögreglan þurfti að hafa hemil á mótmælendum sem veifa fána Lesa meira

Kemur ekki á óvart

Kemur ekki á óvart

Eyjan
07.04.2008

Það er ýmislegt reynt. Nýjasta útspil bændaforystunnar og þingmannsins Jóns Bjarnasonar er svosem ekki óvænt: „Maturinn í útlöndum er eitraður.“ Þetta eru rökin gegn því að heimila innflutning á kjötvörum. Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, er eilítið frumlegri í grein í Morgunblaðinu í dag. Guðni segir að standa verði vörð um íslenska framleiðslu því með því Lesa meira

Peningar almennings

Peningar almennings

Eyjan
07.04.2008

Það þarf að minna stjórnmálamennina á það – því þeir vilja ekki skilja það sjálfir – að nú er kominn tími til að rifa seglin. Þeir eru að segja almenningi að gera það, en virðist ekki koma til hugar að herða sultarólina sjálfir. Nú síðast horfðum við á ellefu þingmenn leggja til óvenjulega heimskulegt frumvarp Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af