Púðrinu eytt í ESB
EyjanÉg hef alla tíð verið frekar Evrópusinnaður. Kannski einfaldlega vegna þess að ég hef dvalið langdvölum í Evrópu og þóst skynja að Evrópusambandið virki ágætlega. Og vegna þess að ég tel ekki sjálfgefið að friður og velmegun ríki í Evrópu um aldur og ævi. Ég hef líka talið að staður okkar Íslendinga sé meðal Evrópuþjóða. Lesa meira
Fjármálaeftirlitið starfaði fyrir hákarlana
EyjanHér er ágæt grein um bandaríska fjármálakerfið úr New York Times. Höfundurinn er Michael Lewis. Fjallar meðal annars um Bernard Madoff og hvernig hann komst upp með svik sín. Hlutur bandaríska fjármálaeftirlitsins er ekki fagur. Segir að það hafi verið skapað til að vernda fjárfesta fyrir rándýrum á markaðnum. En hlutverk þess hafi snúist við Lesa meira
Hví er svo lítill áhugi á málsókn?
EyjanEinhvern veginn er maður farinn að fá á tilfinninguna að stjórnvöld hér hafi ekki áhuga á að farið verði í mál við Breta vegna aðgerða þeirra gegn íslensku bönkunum. Að þau óttist kannski að í slíkum málaferlum komi fram upplýsingar sem gætu verið neyðarlegar fyrir íslensku bankana og Ísland? Til dæmis um vafasama fjármagnsflutninga. Og Lesa meira
1 á móti 500
EyjanEinn ísraelskur hermaður er fallinn í árásinni á Gazasvæðið. Hið ömurlega slömm þar sem ein og hálf milljón Palestínumanna er lokuð inni á litlum bletti af herliði ísraelsku nýlendukúgaranna. Án einföldustu hluta sem við teljum vera sjálfsagt frelsi og mannréttindi. Og vatns og rafmagns ef kúgurunum sýnist svo. En 500 Palestínumenn hafa fallið. Apartheid- og Lesa meira
Ekki svo slæmt segir Össur
EyjanÖssur Skarphéðinsson skrifar á blogg sitt að fall þjóðartekna færi okkur aftur til 2005. Þetta sé nú ekki alvarlegra en svo. Árið 2005 voru fjárlög samþykkt með 10 milljarða króna afgangi. Sem var auðvitað alltof lítið; þenslan var þá í hámarki. Í ár er gert ráð fyrir 150 milljarða króna halla. Fyrir utan peningana sem Lesa meira
Eignarhaldsfélögin eru meinsemd
EyjanMorgunblaðið fjallar í dag um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Þetta er eitt af stóru viðfangsefnunum þennan veturinn og afskaplega mikilvægt að það sé gert með gagnsæi og réttlæti að leiðarljósi. Blaðið vitnar meðal annars í Gylfa Magnússon hagfræðing sem varar við því að stóru eignarhaldsfélögunum sé bjargað. Þau hafi verið ein af meinsemdunum í gamla hagkerfinu, Lesa meira
Ræða Einars Más
EyjanHér er ræðan sem Einar Már Guðmundsson flutti á útifundi á Lækjartorgi í gær: — — — „Fyrir fáum árum gengu öflugar flóðbylgjur á land í Asíu. Margir dóu. Samfélög lögðust í eyði. Fjölskyldur leystust upp. Þessu lýsti Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem „dásamlegu tækifæri til þess að hefja uppbyggingu og opna nýja markaði“. Nú Lesa meira
Björgólfur og fallnir milljarðamæringar
EyjanHér er listi Forbes viðskiptatímaritsins yfir billionaire blowups á síðasta ári. Milljarðamæringa sem töpuðu stórt. Björgólfur Guðmundsson er þarna í hópnum. Það er sagt að hann að auður hans hafi verið virði 1,1 milljarða dollara. En sé nú núll.
Með rökum og sanngirni
EyjanEyjunni hefur borist þetta bréf. Það er frá manni sem þekkir vel til viðskiptalífsins á Íslandi eins og sést á bréfinu. Hann vill ekki láta nafns síns getið, en bréfið er málefnalegt og á fullt erindi til lesenda. — — — Kæri Jón Ásgeir, Grein þín „Setti ég Ísland á hausinn“ sem var birt í Lesa meira
Fegrunaraðgerð í Kauphöllinni
EyjanÞetta er eiginlega átakanlegt. Kauphöllinn ætlar að fara að nota nýja vísitölu. Svokallaða OMXI6. Gildi hennar byrjar í 1000. Lítur náttúrlega miklu betur út í markaðsfréttunum en gamla vísitalan sem var búin að hrynja um 95 prósent niður í 355 stig. Annars er þetta gott dæmi um hvernig komið er fyrir Kauphöllinni. Eitt aðalfélagið þar Lesa meira
