fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026

Óflokkað

Að steikja krónuna

Að steikja krónuna

Eyjan
07.01.2009

Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í fréttunum þessa dagana, nú síðast frétt í Mogganum í morgun, um félag Ólafs Ólafssonar, Kjalar að nafni, og framvirka samninga sem það gerði gegn íslensku krónunni. Gjaldeyrissamningurinn er upp á 650 milljónir evra, en Kjalar krefst þess að fá hann greiddan út á gengi evrópska seðlabankans. Þar jafngildir evran Lesa meira

Stöðvast bygging tónlistarhússins?

Stöðvast bygging tónlistarhússins?

Eyjan
07.01.2009

Nú lítur allt út fyrir að framkvæmdir við tónlistarhúsið stöðvist. Jónas Kristjánsson sagði reyndar að við ættum að varðveita bygginguna eins og hún er. Þetta yrði þá okkar Gedächtniskirche, sbr. þá sem stendur í Berlín. Ég hef reyndar haft áhyggjur af því að húsið væri fullmikið barn síns tíma. Góðærislegt glerhýsi. Líkt og svo mörg Lesa meira

Munaðarlaus tryggingafélög

Munaðarlaus tryggingafélög

Eyjan
06.01.2009

Á tíma útrásarinnar þótti best að hver meginfylking víkinga ætti sinn banka og sitt tryggingafélag. Baugs/FL-liðið átti Glitni og Tryggingamistöðina. Exista hafði Kaupþing og VÍS. Milestone átti í Glitni og Sjóvá. Nú eru þessi eignarhaldsfélög á hausnum –  og, eins og Gylfi Magnússon orðaði það, þau voru meinsemd í íslensku efnahagslífi. En enginn veit hver Lesa meira

Kvótabrask

Kvótabrask

Eyjan
06.01.2009

Þetta hefur áður verið rætt hér á vefnum. Veð í kvóta sett í skuldabréfavafninga sem síðan eru seld til útlendra banka.

Mikilvægasta verkefnið

Mikilvægasta verkefnið

Eyjan
06.01.2009

Það er ekki víst að allir geri sér grein á hvílíkum tímamótum íslenskt samfélag stendur. Hér stendur fyrir dyrum risavaxið verkefni sem er í raun útdeiling verðmætanna í samfélaginu á nýjan leik eftir skipbrot efnahagskerfisins. Og líka byrðanna. Það er stærsta spurning samtímans hvernig þetta verður gert. Miklu stærri en ESB. Manni finnst eins og Lesa meira

Við gefumst ekki upp!

Við gefumst ekki upp!

Eyjan
06.01.2009

Þessi grein birtist á hinum víðlesna vef Huffington Post og er skrifuð af Írisi Erlingsdóttur. Fyrirsögnin er Zimbawe norðursins. Upphafið er svona: „The catastrophic economic collapse of Iceland has in international news stories been described as simply another, inevitable casualty of the credit crunch. A Wall Street Journal story last week noted that Iceland was Lesa meira

Risagjaldþrot Sterling

Risagjaldþrot Sterling

Eyjan
06.01.2009

Samkvæmt þessari frétt á vefnum Standby er gjaldþrot Sterling eitt hið stærsta í Danmörku. Kröfur í þrotabúið nema 870 milljónum danskra króna – það eru næstum 20 milljarðar íslenskir. Mjög lítil verðmæti eru í þrotabúinu. Á sama tíma er eigandi Sterling kaupa ferðaskrifstofu á Íslandi – að sögn fyrir nokkur hundruð milljón krónur.

Táknrænt

Táknrænt

Eyjan
05.01.2009

Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að það óskynsamlegasta sem við getum gert sé að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Er það? Er ekki bara ágætlega táknræn aðgerð að lítil friðelskandi þjóð við ysta haf segi skoðun sína á hernaðarofbeldi með þessum hætti?

Afsökunarmenn útrásarliðsins

Afsökunarmenn útrásarliðsins

Eyjan
05.01.2009

Þeir kallast á vinirnir Björn Ingi Hrafnsson og Össur Skarphéðinsson í greinum sem þeir hafa ritað síðustu daga. Össur í grein þar sem hann taldi að Íslendingar myndu ekki færast aftur til nema svona 2005 og Björn Ingi í leiðara í Fréttablaðinu í dag. Í leiðaranum vitnar Björn Ingi í tvo menn utan Össurar. Báðir Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af