Er þeim treystandi fyrir fjölmiðlafyrirtæki?
EyjanBjarni Brynjólfsson, fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Séð & heyrt, skrifar þessa grein. — — — Það fer um mann að sjá í hvaða stöðu fjölmiðlar landsins eru komnir. Allir skuldsettir upp í rjáfur og varla til leigubílapeningar á Mogganum og spurning hvenær verður lokað fyrir símann þar á bæ. Í vikunni birtist frétt um að Jón Lesa meira
Gunnar Páll í stéttabaráttu
EyjanGunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, spáir því í viðtali við Morgunblaðið að harðari stéttabarátta sé framundan. Maður er ekki vanur að heyra verkalýðsleiðtoga nota þetta orð. En svo er spurningin hvoru megin línunnar Gunnar ætlar að vera í stéttabaráttunni?
Vill kaupa kröfur á félög með miklum afslætti
EyjanVill einhver með viðskiptavit segja okkur hvað þetta þýðir? Þetta er svona dæmigerð íslensk viðskiptafrétt, engin tilraun gerð til að skýra málið út fyrir venjulegu fólki. Kröfukaupahópurinn svonefndur vill kaupa kröfur á Haga, Exista, Bónus og Aðföng með miklum afslætti.
Laus við undirhyggju
EyjanFréttaskýringavefurinn AMX skrifar um Kolbúnu vinkonu mína Bergþórsdóttur og pistil sem birtist eftir hana í Mogganum. „Smáfuglarnir hvísla að með þessum skrifum, sem eru í skjóli Ólafs Stephensens ritstjóra, sé verið að senda skilaboð til þeirra sem Kolbrún kallar með svo smekklegum hætti „harðlínuklíku“ um að þeir skuli halda sig á mottunni. Ef ekki, þá Lesa meira
Krónan átti ekki séns
EyjanExista segist ekki hafa stundað spákaupmennsku. En samt kemur fram í Morgunblaðinu að kröfur Exista á íslensku bankana vegna gjaldeyrisskiptasamninga séu 120 til 140 milljarðar króna. Kröfur Kjalar vegna slíkra samninga eru 190 milljarðar króna. Þetta eru helstu eigendur Kaupþings sem svona fóru að. Krónan átti ekki séns.
Nafnleysi og virtir fjölmiðlar
EyjanÞað er talsvert verið að fárast út af nafnlausum kommentum á netinu – og hér á Eyjunni. Í því sambandi má benda á að nákvæmlega sama fyrirkomulag er í ýmsum erlendum fjölmiðlum, til dæmis á einum virtasta og fjölsóttasta fréttavef heims, sjálfum Guardian. Hér er til dæmis grein um Ísrael í Guardian eftir Naomi Klein Lesa meira
Norræni íhaldsflokkurinn
EyjanÞetta er athyglisvert. Heimasíða Íhaldsflokksins sem sagður er eiga verða borgaralegur hægriflokkur að norrænni fyrirmynd. Evrópusinnaður. Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið mikið mið af breska Íhaldsflokknum. Thatcherismanum þar og andúð stórs hluta flokksmanna á Evrópusambandinu. Davíð Oddsson er mikill áhugamaður um stjórnmál í Bretlandi. Þetta vekur spurningar um að hvort partur af hugmyndalegri endurnýjun Sjálfstæðisflokksins gæti verið Lesa meira
Hvar ertu?
EyjanÞetta er kröftugur pistill hjá Láru Hönnu. Hefst með svofelldum orðum: Hvar ertu? Hvar eruð þið, sem skrifið svo fjálglega um ástandið og spillinguna? Hvar eruð þið, sem ræðið um byltingu í heitu pottunum og á kaffistofunum? Hvar eruð þið, sem fordæmið bankamenn og útrásarauðmenn? Hvar eruð þið, sem skammið ríkisstjórn, alþingismenn og embættismenn? Lesa meira
Vanhæft kerfi úthlutar verðmætum til vina og gæðinga
EyjanHér er geysilega forvitnileg grein um íslenska efnahagshrunið, skrifuð á ensku af Georg Brynjarssyni sem stundar háskólanám í Kaliforníu. Þess má geta að Georg hefur verið mjög virkur í starfi innan Sjálfstæðisflokksins. Georg rekur hrunið meðal annars til óheilbrigðs sambands milli stjórnmála og viðskipta á Íslandi, gallaðs stjórnmálakerfis, úthlutunar fiskveiðikvóta, einkavæðingar banka í hendur vildarvina Lesa meira
Hjálpum rannsóknarnefndinni!
EyjanEins og ég hef sagt eigum við að styðja rannsóknarnefndina sem kynnti störf sín í dag. Og fylgjast af áhuga með störfum hennar. Hún biður um ábendingar á þetta netfang. Það er um að gera að verða við þeirri beiðni.
