fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026

Óflokkað

Bretland: Líkindi með Íslandi

Bretland: Líkindi með Íslandi

Eyjan
21.01.2009

Fer Bretland sömu leið og Ísland. Hér er grein eftir Ambrose Evans Pritchard úr The Daily Telegraph. Hann talar um að Bretar geti ekki gert eins og Íslendingar og skilið skuldir eftir í gömlum bönkum. Það er reyndar merkilegt að Royal Bank of Scotland sem þarna er talað um var uppáhaldsbanki íslensku útrásarvíkinganna í Bretlandi. Lesa meira

Þorsteinn frá Hamri, Vilhjálmur og Poe í Kiljunni

Þorsteinn frá Hamri, Vilhjálmur og Poe í Kiljunni

Eyjan
21.01.2009

  Þorsteinn frá Hamri skáld og Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki, verða gestir í Kiljunni í kvöld. Þorsteinn segir frá skáldskap sínum og ljóðabókinni Hvert orð er atvik, en hún kom út nú fyrir jólin. Vilhjálmur ræðir bókina Farsælt líf, réttlátt samfélag, hún fjallar um ýmsar meginkenningar siðfræðinnar og er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Fjallað Lesa meira

Jólatrjám forðað

Jólatrjám forðað

Eyjan
21.01.2009

Ég sé að í þessum orðum er flokkur borgarstarfsmanna að taka niður jólatréð sem enn stendur á Lækjartorgi. Líklega telst það vera fyrirbyggjandi aðgerð.

“Ef vér slítum í sundur lögin, slítum við og friðinn”

“Ef vér slítum í sundur lögin, slítum við og friðinn”

Eyjan
21.01.2009

Friðrik Erlingsson sendi mér þessa grein. — — — Forseti Alþingis barði sér á brjóst og bað um að “elsta löggjafarsamkunda heimsins” fengi vinnufrið fyrir mótmælendum. Dag eftir dag tala ráðamenn niður til þjóðarinnar, svona líkt og þegar Jón Loftsson í Odda býsnaðist yfir því að “skillitlir menn” væru að drepa höfðingja. Þá var honum Lesa meira

Catch 22

Catch 22

Eyjan
21.01.2009

Þetta er eiginlega svona catch 22 hjá Sigurði Einarssyni og félögum í Kaupþingi. Annað hvort játa þeir að hafa dælt peningum út úr bankanum til vildarvina og sjálfra sín – eða – ef þeir neita því  – þá eru þeir í raun að játa stórfellda markaðsmisnotkun. Að hafa haldið uppi verði á hlutabréfum með blekkingum. Lesa meira

Alþingi í dag

Alþingi í dag

Eyjan
20.01.2009

  Einhvern veginn er þessi ljósmynd sem Matthías Ásgeirsson tók af Kristjáni Möller samgönguráðherra dæmigerð fyrir stöðu Alþingis og ríkisstjórnar á þessum degi. Myndin er tekin inn um glugga þingsins; það er búið að henda snjóbolta í gluggann. Þingmenn héldu að það gæti orðið business as usual. Að þeir gætu bara haldið áfram eins og Lesa meira

Ísland í dag í kvöld

Ísland í dag í kvöld

Eyjan
20.01.2009

Nærmynd – eða glansmynd – af Bjarna Benediktssyni í Íslandi í dag. Í kvöld. Kemur fram að hann sé latur við heimilisstörfin. En áður hafa Ólafur Ólafsson og Róbert Wessman fengið fengið slíka glansmeðferð í þættinum. Er ekki allt í lagi? Fyrir þetta ráku þeir Sölva Tryggvason. En láta þennan halda uppi þjóðfélagsumræðunni í staðinn. Lesa meira

Obama

Obama

Eyjan
20.01.2009

  Ég ætla að leyfa mér að binda miklar vonir við Barack Obama. Hann nær að hrífa fólk með sér – vonandi til góðra verka. Og það er vonandi tímanna tákn að gamla glæponinum Dick Cheney er rúllað burt í hjólastól.

Hvar er virðing þingsins?

Hvar er virðing þingsins?

Eyjan
20.01.2009

1. Óundirbúinn fyrirspurnatími. 2. Vátryggingastarfsemi (heildarlög, EES-reglur) 225. mál, lagafrumvarp viðskiptaráðherra. 1. umræða. 3. Greiðslur til líffæragjafa (heildarlög) 259. mál, lagafrumvarp félags- og tryggingamálaráðherra. 1. umræða. 4. Sala áfengis og tóbaks (sala léttvíns og bjórs) 37. mál, lagafrumvarp SKK. 1. umræða. 5. Olíugjald og kílómetragjald (endurgreiðsla gjalds) 40. mál, lagafrumvarp HöskÞ. 1. umræða. 6. Andstaða Lesa meira

Ekki svalur

Ekki svalur

Eyjan
20.01.2009

Væri hægt að fá Keith Richards til að hringja í sýslumanninn á Selfossi – svona til að segja honum að hann sé ekki cool? Annars gæti hugsast að Ólafur sé maðurinn sem vantar í Fjármálaeftirlitið. Hann gæti jafnvel verið svalur þar?

Mest lesið

Ekki missa af