fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026

Óflokkað

Almenningur fékk að blæða

Almenningur fékk að blæða

Eyjan
27.01.2009

Sigurður Einarsson talar í bréfi um atlögu sem hafi fellt íslenska kerfið. Á sama tíma birtast upplýsingar um geðveikisleg lán Kaupþings til vildarvina. Um ótrúlega fjármagnsflutninga úr bankanum. Um furðulegar – og líklega ólöglegar – æfingar við að halda uppi gengi á bréfum í bankanum. Ekki mátti gengið lækka, því þá var hætta á að Lesa meira

Klíkusamfélagið

Klíkusamfélagið

Eyjan
27.01.2009

Þetta er ansi harðorð grein á vef Times í London. En margt athyglisvert sem í henni sem sagt er um vina- og klíkusamfélagið á Íslandi: This interplay between government ministers and central bankers is at the heart of every national economic crisis. From the Baltic to the Balkans, this relationship has become tangled, the institutional Lesa meira

Fyrirlestur Ólafs Ragnars um útrásina

Fyrirlestur Ólafs Ragnars um útrásina

Eyjan
27.01.2009

10. janúar 2006 flutti Ólafur Ragnar Grímsson erindi um útrásina hjá Sagnfræðingafélagi Íslands. Í erindinu sýndi hann meðal annars fram á hliðstæðu Íslands útrásarinnar við Aþenu til forna og Flórens endurreisnartímans. Það er smurt þykkt á í þessu erindi sem má lesa í heild sinni hér. — — — Allt á þetta erindi í umræður Lesa meira

Ráðherrar utan þings

Ráðherrar utan þings

Eyjan
27.01.2009

Það er sagt að í umræðunni sé að fá utanaðkomandi fólk í ríkisstjórnina sem nú er verið að mynda – að einhverju leyti. Semsagt fólk sem ekki situr á þingi. Ég held að það muni mælast vel fyrir. Nú er ekki tíminn fyrir metnaðargjarna þingmenn að láta ráðherradrauma sína rætast. Í umræðum um utanþingsstjórn eða Lesa meira

Cameron vill refsa fjárglæframönnum

Cameron vill refsa fjárglæframönnum

Eyjan
27.01.2009

Þarna er einn sem er farinn að skilja hvað málið snýst um. David Cameron, formaður Íhaldsflokksins breska, vill draga gíruga bankastjórnendur fyrir dómstóla. Kvartar undan því að viðbrögð stjórnvalda við saknæmu atferli þeirra séu lítil. Er þetta ekki einmitt sama ástand og hér – og eitt af því sem varð ríkisstjórninni að fjörtjóni? Nefnilega hvað Lesa meira

Skilyrði Ólafs Ragnars

Skilyrði Ólafs Ragnars

Eyjan
27.01.2009

Þegar Ólafur Ragnar stígur fram á sviðið með þeim hætti sem hann gerði í gær fer allt í loft upp vegna óþols ákveðins arms Sjálfstæðisflokksins gagnvart honum. Reyndar held ég að mörgum sé farið eins og mér að finnast öll sú togstreita mjög leiðigjörn. Þetta er stef í íslenskum stjórnmálum sem er orðið mjög þreytt. Lesa meira

Hver var forsætisráðherra?

Hver var forsætisráðherra?

Eyjan
26.01.2009

Það bendir flest til þess að stjórnin sem tekur við starfi ekki nema nokkra mánuði, fram að kosningum í apríl eða byrjun maí. Reyndar er ekkert sem segir að þurfi að boða til kosninga þá – að því tilskildu að mynduð verði starfhæf stjórn. Nú munu hefjast vangaveltur um hverjir fái sæti í stjórninni; svo Lesa meira

Kannski ekki einu sinni áhugavert?

Kannski ekki einu sinni áhugavert?

Eyjan
26.01.2009

Nú hefur það gerst sem sjaldan verður – mér er eiginlega orðs vant. Kannski finnst mér sá pólitíski hráskinnsleikur sem nú fer fram ekki einu sinni áhugaverður? Það hringdi í mig blaðamaður frá frægu erlendu riti. Ég sagði við hann að fögnuðurinn yfir falli stjórnarinnar væri muted. Þetta væri engin bylting með tilheyrandi gleðilátum. Ég Lesa meira

Lítill tími fyrir flokkapólitík

Lítill tími fyrir flokkapólitík

Eyjan
26.01.2009

Það ríkir gríðarleg óvissa í stjórnmálunum. Traustið á stjórnmálaforingjunum og flokkunum er afar lítið. Allt virðist stefna í kosningar í vor. Geir Haarde nefndi 9. maí. Maður efast samt um að Íslendingar hafi í raun tíma til að eyða mikilli orku í þras um flokkana eða ríkisstjórnir sem þeir kunna að mynda. Hér bíða stór Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af