fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026

Óflokkað

Fjármálahneyksli

Fjármálahneyksli

Eyjan
28.01.2009

Í dag talaði ég við blaðamann frá frægum og virtum erlendum fjölmiðli. Hann hafði verið að kynna sér ástandið á Íslandi. Var standandi hissa. Hafði að orði að það sem hér hefði gerst væri hugsanlega stærsta fjármálahneyksli í Evrópusögunni.

Falskaupmenn

Falskaupmenn

Eyjan
28.01.2009

Þetta eru ágætar útskýringar hjá Þorsteini Helga Steinarssyni. Á gangverki svindlsins. Hann er heldur ekki trúaður á það, fremur en margir, að svo miklar eignir fáist upp í Icesave/Edge reikningana að tjón íslenskra skattgreiðenda verði „aðeins“ 150 milljarðar króna.

Krónan styrkist

Krónan styrkist

Eyjan
28.01.2009

Krónan hefur verið að styrkjast síðustu dagana – sem er eðilegt miðað við gjaldeyrishöftin Margir furðuðu sig á því að hún skyldi ekki hækka fyrr. Getur verið að gjaldeyrir sé að skila sé betur nú en áður? Sagan segir að Straumur sé hættur að vinna gegn styrkingu krónunnar með því að kaupa gjaldeyri á yfirverði.

Sagan hans Ara

Sagan hans Ara

Eyjan
28.01.2009

Hérna er sagan sem Ari Matthíasson sagði í síðasta Silfri. Hún lýsir ágætlega undirbúningnum að íslenska fjármálaævintýrinu. — — — Þannig var…um lok síðasta árþúnds var ég enn drykkfelldur leikari og þóttist hafa vit á ýmsu. Pabbi vinar míns hafði þá innleyst umtalsverða fjármuni á kvótasölu, en þar sem hann var fatlaður að nokkru eftir Lesa meira

Rimbaud, Helgi og Viltu vinna milljarð í Kiljunni

Rimbaud, Helgi og Viltu vinna milljarð í Kiljunni

Eyjan
28.01.2009

  Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um hið dularfulla franska skáld Arthur Rimbaud og þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar á bók hans, Árstíð í víti. Rimbaud er ein af ráðgátum bókmenntasögunnar. Hann orti kvæði sín fyrir tvítugt, lét sig svo hverfa og gerðist vopnakaupmaður og hugsanlega þrælasali í Afríku. Fjallað verður um einn af risum Lesa meira

Kosningar fólksins eða flokkanna

Kosningar fólksins eða flokkanna

Eyjan
28.01.2009

Þessi pistill er eftir Friðrik Erlingsson. — — — Í bókinni “The Irony of Democracy” (Belmont, 1975) fullyrða Thomas R. Dye og L. Harmon Ziegler eftirfarandi: “Elites, not masses, govern America. In an industrial, scientific, and nuclear age, life in a democracy, just as in a totaliterian society, is shaped by a handful of men. Lesa meira

Starfslok seðlabankastjóra

Starfslok seðlabankastjóra

Eyjan
28.01.2009

Það er talað um að uppsögn þriggja bankastjóra Seðlabankans kunni að kosta ríkið 300 milljónir króna. Og þar af muni Davíð Oddsson eiga rétt á 78 milljónum. En það er líka talað um að Davíð snúi aftur í stjórnmálin með einhverjum hætti. Þar myndi hann ekki eiga séns ef hann sækti það fast að fá Lesa meira

Ef kemur vinstri stjórn…

Ef kemur vinstri stjórn…

Eyjan
28.01.2009

…þá verður: Gengishrun. Hlutabréfamarkaðurinn fellur. Bankarnir eiga ekki lífsvon. Peningar verða fluttir úr landi. Fólk missir sparifé sitt. Verðbólgan fer úr böndunum. Ríkið þenst út. Það verða skattahækkanir. (Úbbs, þetta er allt búið að gerast!)

Mest lesið

Ekki missa af