fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026

Óflokkað

Langstærsti flokkurinn

Langstærsti flokkurinn

Eyjan
03.02.2009

Samkvæmt skoðanakönnun sem birtist á Stöð 2 í dag er einn flokkur langstærstur. Óákveðnir. Þeir sem vita ekki hvaða flokk þeir eiga að kjósa. Þessi flokkur er með fjörutíu prósenta fylgi.

Kaupþing, Katar og Líbýa

Kaupþing, Katar og Líbýa

Eyjan
03.02.2009

Kaupþingsmenn flykktust til Katar ásamt fríðu föruneyti, meðal annars forsetanum og iðnaðarráðherra. Stofnað var til viðskiptatengsla við þetta ríki. Sigrún Davíðsdóttir rekur þræðina um Katar til Vincent Tschenguiz og Líbýu, Gaddafis og vopnaviðskipta.

Í hinu liðinu

Í hinu liðinu

Eyjan
03.02.2009

Um daginn sagði ég í Kastljósi að Fjármálaeftirlitið hefði spilað með „hinu liðinu“. Einhverjir hneyksluðust á þessum ummælum. En nýr viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, sagði það sama þegar hann tók við embætti. Gylfi kvaðst telja að hugmyndafræðin sem var að baki öllu eftirliti með fjármálakerfinu, ekki einungis Fjármálaeftirlitinu heldur snerti það einnig Seðlabankann, hafi í grundvallaratriðum Lesa meira

Ótrúlegir endurnýjunarhæfileikar

Ótrúlegir endurnýjunarhæfileikar

Eyjan
03.02.2009

Ég og vinur minn vorum að ræða Ólaf Ragnar um daginn. Eftir að Ólafur bauð Herði Torfasyni í kaffi á Bessastaði. Eða var það te? Við töluðum um ótrúlega endurnýjunarhæfileika Ólafs. Að nú væri hann eiginlega orðinn fremstur í flokki mótmælenda. Rétt eins og hann var áður í fararbroddi útrásarinnar.

Marklaust tal

Marklaust tal

Eyjan
03.02.2009

Það er enginn að fara að reisa álver á Bakka. Yfir okkur vofir heimskreppa. Verð á áli fer stöðugt lækkandi. Sem og hlutabréf í álfyrirtækjum sem eru að lenda í miklum vandræðum. Lánsfjármarkaðir eru lokaðir. Þessi yfirlýsing varaformanns Framsóknarflokksins er því algjörlega meiningarlaus. En ber líklega að skoða í ljósi þess að það eru að Lesa meira

Stórpólitísk tíðindi?

Stórpólitísk tíðindi?

Eyjan
03.02.2009

Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, og Steingrímur J. Sigfússon, sem nú er orðinn íslenskur starfsbróðir hennar, eru góðir vinir – og formenn systurflokka. Hún hefur komið hingað á flokksþing Vinstri grænna. Var þá meðal annars gestur í Silfri Egils. Bæði Kristin og Steingrímur eru andstæðingar Evrópusambandsins. En þessi yfirlýsing Kristinar um hugsanlegt myntsamstarf Noregs og Íslands Lesa meira

Leynivopn Ólafs Ragnars í utanríkisráðuneytið

Leynivopn Ólafs Ragnars í utanríkisráðuneytið

Eyjan
03.02.2009

Kristján Guy Burgess, hinn nýi aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar hefur rekið ráðgjafafyrirtæki sem kallast Global Center og var stofnað 2005. Það hefur starfað náið með Ólafi Ragnari Grímssyni og útrásarvíkingum. Fjármagn til starfseminnar hefur meðal annars komið úr útrásinni. Í ævisögu Ólafs Ragnars eftir Guðjón Friðriksson er fjallað um Global Center, sem þar er nefnt Alþjóðaver. Lesa meira

Hannesar jafni

Hannesar jafni

Eyjan
03.02.2009

Halldór Blöndal kvartar undan því að stjórn Seðlabankans sé lögð í einelti. Sjálfur orti hann þetta kvæði um formann bankastjórnarinnar, þar er hann sagður jafningi Hannesar Hafstein: Þjóðskörungur leiddi þjóð sína ódeigur inn í árþúsund nýrra vona, nýrra hugsjóna. Heill sé þér Davíð Hannesar jafni Minnir pínu á Norður-Kóreu.

Laukur ættarinnar

Laukur ættarinnar

Eyjan
03.02.2009

Það hefur verið sagt að Bjarni Benediktsson, formannskandídat í Sjálfstæðisflokknum sé laukur gamals ættarveldis. Þetta má til sanns vegar færa. Faðir hans er Benedikt Sveinsson. Hann var um tíma stjórnarformaður Eimskipafélagsins, áður en Kolkrabbinn leið undir lok, og reyndar var sagt að honum væri ætlað að taka við af Halldóri heitnum H. Jónssyni sem var Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af