Nýju fötin keisarans
EyjanÞetta er stórkostleg grein, í erlendu glamúrblaði, um forseta sem ferðaðist á fyrsta farrými í með fjárglæframönnum í útrásinni, en nú heima að þrasa við konuna sína um hverjum sé um að kenna að allt fór á versta veg. Dorrit má eiga það að hún er hreinskilin.
Jóhanna á hálum ís
EyjanEkki ætlar Jóhanna að fara að sogast niður með Davíð Oddssyni? Hann er þegar búinn að taka Geir Haarde með sér í fallinu. Ég ímynda mér að sá kunni honum litla þökk fyrir; Geir verður í sögunni hinn eilífi varaformaður. Jóhanna segir að ekkert sé að athuga við störf Ingimundar Friðrikssonar og Eiríks Guðnasonar. Samt Lesa meira
Ribbaldakapítalismi
Eyjan12. nóvember 2005 birtist eftirfarandi grein í Morgunblaðinu og vakti nokkra athygli. Höfundar hennar voru tveir sómamenn, Jóhann J. Ólafsson stórkaupmaður og Jónas H. Haralz fyrrverandi bankastjóri. Ég skáletra kafla sem mér þykja sérlega athyglisverðir í greininni. Þarna er vissulega viðvörun – sem ekki var tekið mark á. Það var helst að þáverandi ritstjóri Lesa meira
Sess hinnar almennu lýðræðislegu umræðu
EyjanHildur Jónsdóttir sendi mér þessa grein. — — — Sæll Egill – langar að koma eftirfarandi athugasemd – hugleiðingu – á framfæri og vona að þú birtir hana á vef þínum. Meðal þess merkilegasta sem gerst hefur í íslensku samfélagi síðan bankahrunið varð er að mínu mati tvennt. Annars vegar það að fjöldi manna – Lesa meira
Gunnar á Youtube
EyjanFyrir þá sem hafa áhuga: Viðtalið við Gunnar Tómasson í Silfrinu fyrir viku er komið á Youtube.
Hvað finnst Fidel?
EyjanNágrannakona mín ein þekkir vel til á Kúbu, er spænskumælandi og hefur dvalið þar. Ég hitti hana um kvöldmatarleytið í gær. Hún sagði að það væri svo merkilegt að á Kúbu enduðu allar umræður á Fidel. „Hvað hugsar Fidel?“ „Hvað myndi Fidel gera?“ „Hvað finnst Fidel?“ segir fólkið. Og lýkur þá vitrænni umræðu.
Getum við borgað?
EyjanElías Pétursson framkvæmdastjóri var gestur í Silfri Egils í dag. Hann hefur tekið saman athyglisvert efni um stöðu þjóðarbúsins. Samkvæmt þessu er fátt hér framundan nema blóðugur niðurskurður – og þýðir varla að ræða annað en hvernig við ætlum að fara að því. Tekjurnar sem koma í ríkiskassann verða afar litlar miðað við það sem Lesa meira
Leifar spillingarkerfis
EyjanÞað er rétt að halda því til haga þegar Davíð Oddsson talar um aðför að embættismönnum að hann situr í Seðlabankanum í skjóli samtryggingar- og spillingarkerfis stjórnmálaflokka sem hafa iðkað að raða afdönkuðum stjórnmálamönnum á garðann í bankanum. Og að meðal forvera hans í starfi eru Finnur Ingólfsson, Steingrímur Hermannsson, Tómas Árnason og Birgir Ísleifur Lesa meira
Þarf ekki að ná í þessa peninga?
EyjanÞetta er athyglisverð frétt. Glitnir þarf að afskrifa meira en 120 milljarða vegna eignarhaldsfélaga. Meirihluti þeirra er skráður erlendis. En eru þar ekki einhverjir fjármunir sem hægt er að nálgast? Og óþarfi að gefa upp á bátinn þó þeir kunni að vera geymdir á fjarlægum eyjum.
Rétt fyrir hrun
EyjanÞað er svona sætbeiskur hrunkeimur af ýmsu sem er að koma fram um íslensku ólígarkana. Eins og þessari ferð á vegum Baugs til Mónakó þar sem Tina Turner skemmti gestum. Og svo sérstakri leiksýningu sem var sett upp í Þjóðleikhúsinu til að heiðra Björgólf Guðmundsson á brúðkaupsafmæli hans.
