Þrjár ræður
EyjanHér er ræða Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra FME, þar sem hann ræddi orðspors- og ímyndarkrísur. Hann er að tala á fundi hjá Viðskiptaráði, eftir að birt hefur verið skýrsla Friðriks Baldurssonar og Richard Portes þar sem því var haldið fram að allt væri í sómanum hér í bankakerfinu. Jónas var þess fullviss, líkt og Lesa meira
Skýrsla Seðlabankans, febrúar 2008
EyjanÞessi skýrsla úr Seðlabankanum frá því í febrúar 2008 er nokkurt lykilplagg. Stjórnendur Seðlabanka fara til útlanda og hitta erlenda bankamenn. Þeir segjast hafa mikla vantrú á íslenska bankakerfinu. Fulltrúar erlendu bankanna mátu stöðu Íslands sem alvarlega eða grafalvarlega. Davíð Oddsson hefur sagt að þessi skýrsla hafi verið lesin upp fyrir forystumenn ríkisstjórnarflokkanna, ráðherra og Lesa meira
Um tímabæra ákvörðun
EyjanLeiðari Morgunblaðsins hittir naglann beint á höfuðið varðandi fall SPRON og Sparisjóðabankans. Og það er rétt – til hvers að henda fé í stofnanir sem standa tæpt, eru nánast gjaldþrota, þegar ríkið á heila þrjá banka? — — — Tímabær ákvörðun Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að taka yfir rekstur SPRON og Sparisjóðabankans um helgina Lesa meira
Mogginn birtir gögn einkavæðinganefndar
EyjanMorgunblaðið er að birta mikla úttekt á einkavæðingu Búnaðarbanka og Landsbanka. Það kemur fram að blaðið hafi fengið aðgang að gögnum einkavæðingarnefndarinnar í forsætisráðuneytinu. Slíkum aðgangi hefur verið neitað þar til nú. Úttektin sannar annars hinar illu grunsemdir sem maður hefur haft um einkavæðinguna. Bönkunum var handstýrt í hendur einkavina stjórnmálaflokkanna í afar ógegnsæju og Lesa meira
Öðruvísi formannsefni
EyjanÞað má alveg til sanns vegar færa þegar Kristján Þór Júlíusson segist ekki hafa fengið frama eða völd á silfurfati. Ekki er erfitt að skilja sneiðina til hins keppinautar hans, Bjarna Benediktssonar, sem kemur af mikilli valda- og peningaætt. Kristján var stýrimaður og skipstjóri á Dalvík, þar sem hann er fæddur, en líka kennari, með Lesa meira
Huliðshjálmur
EyjanEitt vinsælasta blaðið í dag er innanhússrit ríkisskattstjóra, Tíund. Hér er leiðari nýjasta tölublaðsins, undirritaður af Skúla Eggert Þórðarsyni ríkisskattstjóra og Ingvari J. Rögnvaldssyni vararíkisskattstjóra. Segir meðal annars: Við blasir að ef eigi endurheimtast faldar tekjur og eignir úr skattaskjólum og ef á skortir að eignir hinna föllnu banka standi á móti gerðum kröfum Lesa meira
Dapurleg endalok SPRON
EyjanEndalok Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis eru dapurleg. Þetta var fyrrum stolt félag, ein af burðarstoðum bæjarlífsins í Reykjavík. Rómað fyrir gott starfsfólk og góða þjónustu. Nú blasir atvinnumissir við þessu góða fólki. Menn gerðu þá merku uppgötvun að ekki mætti neins staðar vera „fé án hirðis“. Það fór fram hatrömm barátta um þennan sparisjóð – Lesa meira
Geno
EyjanÉg hef alltaf verið veikur fyrir hljómsveitum sem hafa hornaflokk með sér. Hér er ein góð – varð reyndar aldrei jafn fræg og hún hefði verðskuldað. Dexy´s Midnight Runners frá 1980. Geno. Krafturinn í lúðrunum er ósvikinn. Þetta er af plötunni Searching for the Young Soul Rebels – snilldarpoppplötu með sálarívafi. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=__WJJgIXk6U&feature=related]
Stórkostleg matvörubúð
EyjanÉg skrifaði þennan pistil eftir að hafa farið í Whole Foods Market í New York í apríl í fyrra. Nú segir að þessi verslanakeðja ætli að hætta að „kynna“ íslenskar vörur vegna hvalveiða. Það er raunar nokkuð óljóst hvað felst í þessari hótun. — — — Whole Foods Market hér niðurfrá í Chelsea er flottasta Lesa meira
Um einkavæðingu bankanna, október 2004
EyjanMér var bent á tvo ræðubúta á vef Jóns Baldurs Lorange. Þetta er mjög forvitnilegt. Þetta er 7. október 2004. Það eru umræður í þinginu um einkavæðingu bankanna. Í fyrri ræðunni talar Sigurður Kári Kristjánsson. Í þeirri seinni Ögmundur Jónasson. Svo geta menn vegið og metið hvor ræðan eldist betur?
