Andri tekur á sig syndirnar
EyjanAndri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir af sér á föstudaginn langa þrátt fyrir að hann segist ekki hafa komið nálægt styrkjum til flokksins frá stórfyrirtækjum. Dagsetningin virkar táknræn. Er Andri að taka á sig syndir hinna?
Langhlaupari sem ætlar að verja Byr
EyjanÉg vek athygli á þessari bloggsíðu Sveins Margeirssonar. Hann boðaði til opins fundar um málefni Byrs í dag. Hugrakkur maður og einbeittur. Einn besti langhlaupari Íslands. Á síðunni skrifar hann um stóreinkennileg viðskipti stjórnarmanna í félaginu.
SjálfstæðisFLokkurinn
EyjanStyrkir FL–group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins eru ef til vill stærsta stjórnmálahneyksli Íslandssögunnar. Það hefur ekki mátt opna bókhald stjórnmálaflokkanna. Við áttum bara að treysta þeim fyrir þessu. Svo opnast glufa og þá blasir þetta við. Ótrúlega miklar leynilegar greiðslur frá stórfyrirtækjum. Peningar sem mátti ekki segja frá. Óhreinir peningar. Maður á eiginlega ekki orð Lesa meira
Páskafrí
EyjanÉg er kominn í frí fram yfir páska. Ég skrifa líklega grein og grein hérna á vefinn, en uppfærslur verða ekki jafn tíðar og endranær. Silfur Egils er næst á dagskrá sunnudaginn eftir páska og Kiljan á miðvikudaginn eftir páska. Báðir þættirnir eru semsagt í hvíld í næstu viku. Silfrið 19. apríl telst eins konar Lesa meira
Samanburður
EyjanLesið saman þennan bút út úr viðtali við William Black, fyrrverandi yfirmann í fjármálaeftirliti í Bandaríkjunum: „Well, the way that you do it is to make really bad loans, because they pay better. Then you grow extremely rapidly, in other words, you’re a Ponzi-like scheme. And the third thing you do is we call it Lesa meira
Ísland: Saklaust fórnarlamb eða sjálfskaparvíti?
EyjanJón Baldvin Hannibalsson sendi þessi viðbrögð á þáttinn í gær. — — — Það voru góðir gestir í Silfri Egils 5. april. Michael Hudson og John Perkins lýstu af mælsku og eldmóði hættum frumskógarins í alþjóðlegum kapítalisma sem nú hafa lagt litla Ísland í einelti. Áður hafði Jón Helgi Egilsson sýnt fram á það með Lesa meira
Klassísk forsíða
EyjanNú eru Norður-Kóreumenn farnir að færa sig út í geiminn. Þar óma nú norður-kóreskir leiðtogasöngvar. Og þá rifjast upp hin klassíska forsíða Economist frá því í júní 2000.
Hvað verður um rannsóknagögn Decode?
EyjanÞað væri kannski verðugt umfjöllunarefni að komast einhvern tíma að því hversu margir Íslendingar töpuðu peningum á Decode og hversu miklar fjárhæðir það voru. Hér var sett upp sérkennileg mylla, byggð á væntingum, ofurbjartsýni og vanþekkingu, stjórnmálamenn og fjölmiðlar tóku þátt – um tíma var það svo að menn voru álitnir heimskir ef þeir voru Lesa meira
John Perkins og Michael Hudson í Silfrinu
EyjanTveir merkir erlendir gestir koma í Silfur Egils í dag. Annars vegar er það John Perkins sem frægastur er fyrir bókina Confessions of an Economic Hit Man. Og hins vegar hagfræðingurinn Michael Hudson en áður hefur verið vitnað í hann hér á vefnum.
Varðhundar gelta smá
EyjanRíkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar réð mann ofan af Akranesi til að rannsaka bankahrunið, ágætan mann sjálfsagt, en með enga reynslu af efnahagsbrotum. Fjárveitingin sem honum var ætluð voru 50 milljón krónur. Hann réð til sín örfáa starfsmen og svo sátu þeir og biðu eftir upplýsingum. Þær komu ekki, enginn gaf sig fram – Fjármálaeftirlitið vildi Lesa meira
