fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Óflokkað

Hannes áfrýjar húsleit

Hannes áfrýjar húsleit

Eyjan
23.06.2009

Leikurinn er byrjaður, sá sami og í Baugsmálinu. Héðan í frá verður reynt að gera ágreining um allt sem frá ákæruvaldinu kemur, hversu smátt sem það er. Tilgangurinn er að draga málin á langinn, þar til almenningur verður leiður, dómarar þreyttir og sljóir – og allt þæfist og útvatnast smátt og smátt. Vörum okkur á Lesa meira

Excel

Excel

Eyjan
23.06.2009

Excel-fræðin eru eitt af því hættulegasta sem þekkist í rekstri fyrirtækja. Maður hnikar til nokkrum tölum og fær þá niðurstöðu sem maður vill. Í úttekt í DV stendur að Sigurjón Árnason hafi verið mikill excel-maður. Ég ætla að segja litla sögu í þessu sambandi. Fyrir nokkrum árum var ég leiður á lífinu og Íslandi. Ég Lesa meira

Úr myrkrinu í ljósið

Úr myrkrinu í ljósið

Eyjan
22.06.2009

White Tiger eftir Aravind Adiga er skáldsagan sem fékk Booker verðlaunin í fyrra. Hún er nú komin út í íslenskri þýðingu, nefnist Hvítur tígur. Vinur minn sem þekkir vel til á Indlandi skipaði mér að lesa hana, sagði að þarna kæmi fram sannleikurinn bak við glansmyndina sem segir að Indland sé á fleygiferð inn í Lesa meira

Ekki enn þá írönsk bylting

Ekki enn þá írönsk bylting

Eyjan
22.06.2009

Það væri mikil bjartsýni að halda að mótmælin í Íran muni leiða til falls klerkastjórnarinnar. Það mun taka lengri tíma. En maður getur vonað. Íran er mikið menningarland, þótt einhæfar fréttir sem berast þaðan segi annað. Þar er öflug kvikmyndagerð og bókmenntir, samfélag sem bíður þess að springa út þegar kúguninni léttir – að mörgu Lesa meira

Illugi spyr og spyr

Illugi spyr og spyr

Eyjan
22.06.2009

Minn gamli skólabróðir, vinur og nágranni, Illugi, gefur sig ekki og vill fá svar frá Björgólfi Thor um hvernig hann ætli að borga Icesave. Svarið hlýtur að vera á leiðinni.

Milli sleggjunar og steinsins

Milli sleggjunar og steinsins

Eyjan
22.06.2009

Þetta er rétt hjá Friðriki Jónssyni, það er fráleitt að ætla að ná hér hallalausum fjárlögum á þremur árum. Hreint glapræði. Ég hef reyndar áður sagt að líklegt sé að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn verði hérna lengur en árin þrjú sem ætlað er. Hins vegar er vandi okkar sá að undir eins og farið er að eyða Lesa meira

Bananalýðveldi, grein eftir Jón Baldvin

Bananalýðveldi, grein eftir Jón Baldvin

Eyjan
21.06.2009

Það er ástæða til að vekja athygli á lítilli frétt hjá RÚV í hádeginu s.l. laugardag. Fréttin er svohljóðandi: “Bandaríski milljarðamæringurinn, Allen Stanford, situr nú á bak við lás og slá, en í gær var hann ákærður fyrir stórfelld fjársvik og peningaþvætti. Segja saksóknarar, að alþjóðlegt fjármálaveldi Stanfords hafi í rauninni ekki verið annað en Lesa meira

Bréf um gjaldeyrisskil, nepótisma og FærSave

Bréf um gjaldeyrisskil, nepótisma og FærSave

Eyjan
21.06.2009

Gjaldeyrir sem ekki skilar sér Það er ekki nóg að upplýsa um nöfn þeirra fyrirtækja sem skila ekki gjaldeyri skv. skilaskyldu. Vitað er að nokkrir af fyrrum starfsmönnum bankanna hafa af því umtalsverðar tekjur að miðla gjaldeyri á milli útflytjenda og innflytjenda, auðvitað án viðkomu í SB. Um er að ræða ábatasöm viðskipti. Nokkur fyrirtækja Lesa meira

Akrópólissafnið

Akrópólissafnið

Eyjan
21.06.2009

Grikkir eru að opna afskaplega fallegt safn við Akrópólishæð. Það hýsir muni sem hafa fundist á hæðinni og voru áður í litlu og óþægilegu safni þar uppi. Byggin er einstaklega vel heppnuð og svæðið kringum safnið er mjög skemmtilegt. Þá er bara beðið eftir því að Bretar skili lágmyndum og höggmyndum sem Elgin lávarður fjarlægði Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af