fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Óflokkað

Blame it on the Boogie

Blame it on the Boogie

Eyjan
26.06.2009

Það gleymist vonandi ekki hvað Michael Jackson var ótrúlega frábær poppstjarna, svona áður en hann varð skrítnasti maður í heimi, blessaður drengurinn. Glataður snillingur. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=vjW1iq4IO2k]

Ekki kreppa, eða hvað?

Ekki kreppa, eða hvað?

Eyjan
25.06.2009

Ég man ekki til þess að neinn hafi líkt kreppunni á Íslandi við hryllinginn í gettóum Austur-Evrópu á nasistatímanum eins og Vilhjálmur Vilhjálmsson skrifar. En það er kreppa á Íslandi. Alvöru kreppa. Við erum með hruninn gjaldmiðil, gjaldeyrishöft, atvinnuleysi sem hefur margfaldast, landflótta, skuldir sem hrúgast upp og mikinn samdrátt í kaupmætti og þjóðarframleiðslu. Það Lesa meira

Ómenguð nýlendustefna

Ómenguð nýlendustefna

Eyjan
25.06.2009

Sagnfræðingurinn Tony Judt skrifar afar upplýsandi grein í New York Times um byggðir landtökumanna í Palestínu, lygina og hræsnina í kringum þær, sem enn er reynt að fegra með tilvísun í gömlu kibbutzim. Hið hið hátæknivædda kjarnorkuveldi Ísrael er komið býsna langt frá hugmyndum kibbutzhreyfingarinnar með sínar vinnuskyrtur, stuttbuxur og sósíalisma. Byggðir landtökumanna eru hátt Lesa meira

Hvítflibbabrot

Hvítflibbabrot

Eyjan
24.06.2009

Hjá ýmsum sem skrifa á netið kemur fram ótti um að eigi að taka réttarríkið úr sambandi vegna bankahrunsins – og hið sama má lesa úr fremur heimskulegri ályktun Lögmannafélagsins. Staðreyndin er hins vegar sú að það þarf að efla ákæruvaldið þannig að það geti betur tekið á efnahagsglæpum, brotum sem gjarnan eru framin af Lesa meira

Ekki fyrsta ályktun Lögmannafélagsins

Ekki fyrsta ályktun Lögmannafélagsins

Eyjan
24.06.2009

Það var ekki í fyrsta sinn í gær að Lögmannafélagið ályktaði um rannsókn (svokallaðs) bankahruns. 11. desember síðastliðinn ályktaði (svokölluð) laganefnd félagsins og hafði þá mestar áhyggjur af starfi rannsóknarnefndarinnar sem starfar á vegum Alþingis. Þá var líka sagt að mannréttindum væri stefnt í hættu.

Bíódella

Bíódella

Eyjan
24.06.2009

Einu sinni var ég með mikla bíódellu. Eitt árið taldist mér til að ég hefði farið 155 sinnum í bíó. Ég var semsagt í kvikmyndahúsi næstum annan hvern dag. Samkvæmt núverandi verðlagi myndi kostnaðurinn við þetta líklega vera í kringum 150 þúsund. Þetta hefði getað orðið mun dýrara ef ég hefði til dæmis verið svo Lesa meira

Svokallað hrun

Svokallað hrun

Eyjan
24.06.2009

Í ályktun Lögmannafélagsins sem fjallað er um í síðustu færslu er talað um „hið svokallaða bankahrun“. Svokallaða. Allir bankarnir lenda í höndum ríkisins á einni viku og fljótlega fylgja aðrar bankastofnanir í kjölfarið. Svokallað. Það eru bara spakvitrir menn sem skrifa svona. Ætli sé hugsanlegt að í huga þeirra sé þeir sem tala um hrun Lesa meira

Jafnir fyrir lögunum

Jafnir fyrir lögunum

Eyjan
23.06.2009

Það er ástæða til að rifja upp að þegar auglýst var staða sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins sótti enginn úr hinni íslensku lögmannastétt um. Enginn. Það var nú allur þorstinn eftir réttlæti. Og þá má líka rifja upp orð Evu Joly sem segir að erfitt sé að sakfella ríkt og valdamikið fólk. Í orði kveðnu eru Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af