fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026

Óflokkað

Ofbeldi gegn Uighurum

Ofbeldi gegn Uighurum

Eyjan
08.07.2009

Fréttir herma að fjögur hundruð manns hafi fallið í átökum í borginni Urumqui síðustu daga. Stjórnin í Peking hefur beitt Uighura stórfelldri kúgun og ofbeldi í gegnum árin. Mesta ofbeldið felst í að flytja fjölda Kínverja inn á svæði Uighura í Xinjang (sem er kínverskt nafn fyrir svæðið sem er líka kallað Austur-Turkestan) og í Lesa meira

Icesave

Icesave

Eyjan
08.07.2009

Þessi samantekt Ólafs Hannibalssonar um Icesave birtist í Morgunblaðinu 6. júlí. — — —   Komu Landsbankinn, fjármálaeftirlitið og önnur íslensk stjórnvöld í veg fyrir að Icesave-reikningarnir færðust á ábyrgð breskra og hollenskra yfirvalda?   Á undanförnum mánuðum hafa lögspekingar skrifað hverja greinina af annarri með nokkuð sannfærandi rökstuðningi fyrir því að íslenska ríkið hefði Lesa meira

Um smjörklípukenninguna og seðlabankastjórann

Um smjörklípukenninguna og seðlabankastjórann

Eyjan
07.07.2009

Jón Baldvin Hannibalsson skrifar þessa grein. — — — UM SMJÖRKLÍPUKENNINGUNA OG SEÐLABANKASTJÓRANN Drottningarviðtal Agnesar við Davíð í Sunnudagsmogga (5. júlí) gefur tilefni til að rifja upp söguna af ömmu Davíðs og kettinum hennar. Í Hvítbók Einars skálds Más er að þessu vikið (sjá bls. 104). Þannig var að kötturinn hennar ömmu vildi stundum ráðast Lesa meira

Einkavinavæðing með endemum

Einkavinavæðing með endemum

Eyjan
07.07.2009

Alltaf var manni sagt að Bjöggar hefðu staðgreitt Landsbankann vegna hins skjóta ríkidæmis síns í Rússlandi, en Ólafur Ólafsson og Finnur hefðu þurft að slá lán fyrir Búnaðarbankanum í Landsbankanum. En svo kemur í ljós að Bjöggar fengu lánað í Kaupþingi fyrir Landsbankanum. Alltaf kemur betur og betur í ljós að einkavæðingin sem Davíð Oddsson Lesa meira

Bótasjóðir

Bótasjóðir

Eyjan
07.07.2009

Í dag var gerð húsleit hjá Sjóvá, gömlu fyrirtæki sem komst í hendur óvandaðra manna. Í færslu hér á vefnum 17. nóvember síðastliðinn var minnst á bótasjóði tryggingafélaganna. Þeir voru þá ekki enn komnir í umræðuna. Þar stóð: „Það vantaði alveg í upptalninguna hjá þér í þættinum í dag um það sem ætti að skoða sérstaklega Lesa meira

Stórkostleg vanræksla

Stórkostleg vanræksla

Eyjan
06.07.2009

Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið gerðu sér grein fyrir því snemma árs 2008 að Icesave stofnaði íslensku þjóðinni í stórhættu. Maður spyr: Af hverju í ósköpunum gerðu þessir aðilar ekki neitt?

Aðstoð að utan

Aðstoð að utan

Eyjan
03.07.2009

 Samkvæmt Morgunblaðinu eru þetta menn sem Eva Joly hefur fengið til að aðstoða við rannsókn hrunsins. Það er ljóst að það er algjörlega nauðsynlegt að nota erlenda sérfræðinga í þessu risavaxna máli.  „Berg er menntaður lögfræðingur og löggiltur endurskoðandi og hefur unnið við nokkur stærstu skatta- og efnahagsbrotamál í Noregi undanfarin ár auk rannsóknar á Lesa meira

Ekki kreppuklám?

Ekki kreppuklám?

Eyjan
02.07.2009

Í febrúar talaði hagfræðingurinn Tryggvi Þór Herbertsson um kreppuklám þegar rætt var um skuldastöðu íslenska ríkisins. Hann sagði að skuldirnar væru vel viðráðanlegar, það væri ekki verið að hneppa Ísland í skuldaklafa. Nú eru í umræðunni allsvakalegar tölur um skuldastöðu þjóðarinnar. Það er talað um að erlendar skuldir nemi 250 prósent af landsframleiðslu. Hvað er Lesa meira

Greiðsluþrot?

Greiðsluþrot?

Eyjan
02.07.2009

Í fjölmiðlum í gær og í morgun var mikið vitnað í Gunnar Tómasson, hagfræðing í Bandaríkjunum. Gunnar telur að yfirvofandi sé greiðslufall ríkissjóðs. Gunnar hefur lagt margt gott til umræðunnar síðustu misserin – og nú vil ég endilega fá að heyra í ráðamönnum, jú og öðrum hagfræðingum, til að heyra hvort þetta á við rök Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af