fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026

Óflokkað

Þingmaður í stuði

Þingmaður í stuði

Eyjan
15.07.2009

Þór Saari tók enska orðið subrogate sem dæmi um hversu mikið ofbeldi íslenskir samningamenn voru beittir í Icesave samningunum. Að svona orð skyldu notuð á þá! Ef orðið er googlað koma um 37 þúsund færslur. Efst er mjög ítarleg færsla úr Wikipedia með mörgum tenglum og tilvísunum.

Örlagaríkir dagar í Bretlandi

Örlagaríkir dagar í Bretlandi

Eyjan
15.07.2009

26. júní flutti stjörnublaðamaðurinn Sigrún Davíðsdóttir gagnmerkan pistil í Speglinum. Pistilinn sagði frá samskiptum breska fjármálaeftirlitsins, FSA, við Landsbanka og Kaupþing, dagana fyrir hrunið. Samkvæmt pistlinum hefur sú saga ekki verið sögð almennilega. Kjarni hennar er að FSA virðist hafa lagt hald á innlánsfé bankanna mörgum dögum áður en þeir voru teknir yfir af breskum Lesa meira

Vondir eigendur?

Vondir eigendur?

Eyjan
14.07.2009

Andri Geir Arinbjarnarson, fyrrverandi ráðgjafi hjá McKinsey, segir varasamt ef Kaupþing kemst í hendurnar á bandarískum vogunarsjóðum. Betri eigendur væru evrópskir bankar.

Jóns Sigurðssonar trompið

Jóns Sigurðssonar trompið

Eyjan
14.07.2009

  Það er merkilegt hvað menn eru duglegir við að draga fram Jón Sigurðsson og reyna að gera hann að samherja sínum. Í dag gerði Dalamaðurinn Ásmundur Einar Daðason þetta í þinginu; hann telur greinilega að Jón sé í sínu liði. Þetta hefur Jón Valur Jensson líka gert; Jón Valur telur nánast að hann sé Lesa meira

Skuldafen

Skuldafen

Eyjan
14.07.2009

Hingað hafa frá tíma hrunsins streymt erlendir blaðamenn. Þeir hafa sumir búist við að sjá neyð, en verða fyrir vonbrigðum þegar þeir finna hana ekki. Maður reynir að skýra út fyrir þeim að þeir sem eigi í mestum vanda séu þeir sem eru sokknir í skuldafen. Þetta er gjarnan fólk sem spennti bogann mjög hátt, Lesa meira

Skrítinn fréttaflutningur

Skrítinn fréttaflutningur

Eyjan
14.07.2009

Í fréttum síðan í gær hefur verið talað um lögfræðinga Seðlabankans. Eins og þeir hafi ekki nöfn? Hvað heita þessir menn, hver er bakgrunnur þeirra, hver er menntun þeirra og trúverðugleiki? Það er skrítinn fréttaflutningur þar sem málsaðilar eru nafn- og andlitslausir.

Skrítnar kröfur bankamanna

Skrítnar kröfur bankamanna

Eyjan
14.07.2009

Það er sjálfsagt að greiða lögboðinn og umsaminn uppsagnarfrest. En það er afskaplega erfitt að láta starfsmenn í bönkum frá „árangurstengdar greiðslur“. Því árangurinn er satt að segja miklu verri en enginn. Og maður hlýtur að spyrja sig hvort hér sé um að ræða árangur við að smala sparifjáreigendum inn í peningamarkaðssjóði eða við að Lesa meira

Nýtt tugthús?

Nýtt tugthús?

Eyjan
14.07.2009

Það er stundum sagt að í kreppu sé nauðsynlegt að efna til opinberra framkvæmda. Eftir því sem birtast fleiri fréttir um framferði íslenskra fjármálastofnana vakna spurningar um hvort nægt fangelsisrými sé í landinu? Eða hvort efna þurfi til þjóðarátaks til að reisa nýtt tukthús? Í alvörunni.

Upprifjun

Upprifjun

Eyjan
14.07.2009

Árið 2003 birtist grein í tímaritinu Euromoney um einkavæðingu Landsbankans og feðgana Björgólf Guðmundsson og Björgólf Thor Björgólfsson. Þar var spurt hvernig íslensk stjórnvöld hefðu komist að þeirri niðurstöðu að þessir menn – með enga reynslu af bankarekstri, dularfulla fortíð í áfengisbisness í Sankti Pétursborg og gjaldþrot á bakinu – væru hæfir til að eignast Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af