Íslenskar kvikmyndir á CNN
EyjanÞessi frétt um kvikmyndagerð á Íslandi birtist í þættinum The Screening Room sem sýndur er á CNN og á kvikmyndastöðinni TCM. Þarna er meðal annars rætt við Baltasar Kormák, Laufeyju Guðjónsdóttur og regnblautan Friðrik Þór Friðriksson.
Fríríki á Vellinum?
EyjanJónína Bjartmarz skrifar athyglisverða grein hér á Eyjuna og spyr hvort gamla varnarsvæðið sé fríríki. Segir meðal annars í greininni: — — — „Markmið þáverandi stjórnvalda var að koma eignunum sem fyrst í „skipuleg hagfelld borgaraleg not með það að markmiði að jákvæð samfélagsleg áhrif verði sem mest og neikvæðum áhrifum á nærsamfélagið verði haldið Lesa meira
Spákaupmenn gegn evrunni
EyjanHeimur spákaupmennskunnar er nánast óskiljanlegur venjulegu fólki. Nú er sagt að forystumenn helstu vogunarsjóða á Wall Street hafi komið saman undir forystu George Soros hafi komið saman og ætli að fella evruna. Það var Soros sem felldi breska pundið árið 1992 og græddi þá ógurlega peninga.
Kraftmeira en blogg
EyjanLesandi sendi þessar línur: — — — Það er ekkert nýtt að þeir snauðu hnýta í auðvaldið. Ég er viss um að vel ort vísa var sárari fleinn í hold en blogg og athugasemdir netsins í dag. Bólu-Hjálmar (1796-1875) orti: Er það gleði andskotans, umboðslaun og gróði, fémunir þá fátæks manns fúna í ríkra sjóði. Lesa meira
Afskrifa þarf lánin…
EyjanLesandi síðunnar sendi þennan pistil. — — — „Fimm lántakendanna starfa nú hjá Íslandsbanka og þar af þrír sem framkvæmdastjórar innan bankans… Ljóst þykir hins vegar að starfsmannalánin voru veitt þannig að þeir sem þau fengu áttu ekki að geta tapað á þeim, aðeins grætt.“ Samanber þessa frétt í DV. Þetta er allt saman kannski Lesa meira
Demókratar og repúblikanar í Sjálfstæðisflokknum
EyjanÞað er nokkuð handhægt að skipta sjálfstæðismönnum í repúblikana og demókrata eins og staðan í flokknum er núna. Óskoraður leiðtogi repúblikananna er Davíð Oddsson sem notar Morgunblaðið til að ná aftur tökum á flokknum. Aftur er þess farið að gæta að sjálfstæðismenn séu hræddir við að tala opinskátt af ótta við hann. Í demókrataarminum eru Lesa meira
Dapurt umsóknarferli
EyjanÞað er merkilegt að fylgjast með því hversu illa er staðið að málum varðandi aðildarumsóknina að ESB. Kynning málsins er öll í skötulíki, og það er makalaust hvernig það hefur náð að þvælast saman við Icesave. Ríkisstjórnin virðist ekki hafa á einum einasta stjórnmálamanni að skipa sem getur skýrt almennilega út hvers vegna Íslendingar ættu Lesa meira
Eintómt píp
EyjanÞað er merkilegt að fylgjast með því hversu mikið af orðum er að gengisfella í meðförum alþingismanna sem nota þau af léttúð – eða skilja kannski ekki hvað þau þýða. Þingmaður Framsóknarflokksins af Norðurlandi sakar Ríkisútvarpið um „kynþáttahyggju og aðskilnaðarstefnu“. Vegna þess að verið er að breyta fyrirkomulagi svæðisbundinna útsendinga. Það er ákvörðun sem örugglega Lesa meira
Lífeyrissjóðir og samfélagsleg ábyrgð
EyjanSigrún Davíðsdóttir fjallar um lífeyrissjóðina, samfélagslega ábygð og flókna hagsmuni sem þeir gæta. Í pistinum segir meðal annars um samkrull lífeyrissjóða, Kaupþings og Exista: — — — „Lítum á kaup þriggja stærstu lífeyrissjóðanna í einni blokk viðskiptalífsins sem var: Kaupþingi, Existu og Bakkavör – nátengd fyrirtæki. Sjóðirnir þrír auka hlut sinn í Kaupþingi milli áranna Lesa meira
Frumvarp um dráttarvexti
EyjanDráttarvextir eru skelfilega háir á Íslandi, í raun algjört rán, og hafa haldist það, kannski vegna þess að þeir sem eru í skuldabasli eiga fáa málsvara. Fólk getur kannski að einhverju leyti kennt sjálfu sér um, en það er ekki þar með sagt að þeir sem skulda eigi ekki að hafa neinn rétt. Þeir sem Lesa meira