Gelt upp í rangt tré
EyjanBesta mataræði í heimi er kringum Miðjarðarhafið. Þar borðar fólk nægju sína, tvær góðar máltíðir á dag, en maturinn er ekki feitur. Mikið af grænmeti sem er matreitt á hugvitsamlegan hátt, kjötmeti og fiskur notað þannig að bragðið nýtur sín, alls kyns sósur og ídýfur, sítrónusafi og ólífuolía. Þeir sem helst keppa við þetta að Lesa meira
Leiðtogakreppa í Samfylkingu
EyjanSamfylkingarmaður sem ég ræddi við sagði að næsta mál á dagskrá hjá flokknum þegar Icesave er frá væri leiðtogavandinn í flokknum. Í Samfylkingunni eru menn farnir að gera sér grein fyrir því að Jóhanna Sigurðardóttir dugir ekki í langan tíma, hún er einangruð og hugmyndasnauð, og virðist hafa vonda ráðgjafa. Dagur B. Eggertsson taldi sig Lesa meira
Illa stödd Orkuveita
EyjanOrkubloggarinn Ketill Sigurjónsson skrifar langa og ítarlega grein um stöðu Orkuveitu Reykjavíkur og hvernig eigið fé fyrirtækisins rýrnaði á stuttum tíma. Segir meðal annars, nauðsyn er samt að lesa greinina í heild sinni: — — — „Síðasta uppgjör OR er frá septemberlokum á liðnu ári (2009). Samkvæmt því var eigið fé OR þá metið 36,5 Lesa meira
Súrrealískt
EyjanÞetta verður æ súrrealískara. Félög sem heita Stytta og Sólin skín verða gjaldþrota. Þau voru mynduð í kringum viðskipti Jóns Ásgeirs og Pálma Haraldssonar. Skuldir félaganna eru 120 milljarðar. Og engar eignir neins staðar.
Má hafa þetta aðeins vitrænna?
EyjanHér er annað dæmi, sem Teitur Atlason benti á, þar sem umfjöllun um ESB er komin út í tóma vitleysu. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=wqYTeIrZ-gE]
Saga Finns
EyjanSaga Finns Ingólfssonar er mjög sérstæð. Hann var viðskipta- og iðnaðarráðherra og barðist hart fyrir stóriðju á Íslandi. Hann var aldrei vinsæll maður en þótti duglegur og var mjög öflugur innan síns flokks og bak við tjöldin. Halldór Ásgrímsson reiddi sig mjög á hann. Finnur hættir svo óvænt í stjórnmálum og býr svo um hnútana Lesa meira
Bændur og óbreytt staða
EyjanBændasamtökin skera upp mikla herör gegn Evrópusambandsaðild. Gott og vel. Óbreytt staða í landbúnaðinum er hins vegar óhugsandi hvort sem gengið er í ESB eða ekki. Eitt af því sem framkvæmdastjórn ESB gagnrýnir einmitt í skýrslu sinni er að stjórn landbúnaðarmála á Íslandi hafi verið afhent hagsmunaðilum. Kjör bænda eru óboðleg, sem og miðstýringin í Lesa meira
Björgum lífsstílnum
EyjanÞetta grínatriði er úr kanadískum þætti sem nefnist This Hour has 22 Minutes. Einhvern veginn verður manni hugsað til viðtals við Jóhannes í Bónus sem birtist í DV þegar maður horfir á þetta. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=qDC0qcf0kzE]
Eddan
EyjanÉg er afskaplega lítið fyrir mannfagnaði núorðið. Fór beint heim af Eddunni eftir athöfnina í gær. Það er alltaf skrítin spenna á svona samkomum þar sem mikið af stórum egóum koma saman. Í gær voru menn dálítið undrandi yfir því hvað Veðramót, mynd Guðnýjar Halldórsdóttur, bar lítið úr býtum. Var það alveg réttlátt? Kompás og Lesa meira