Greinin úr Euromoney
EyjanHér má í Pdf skjali finna hina umtöluðu grein um Ísland sem birtist í Euromoney. Euromoney Magazine_failed state of iceland
Nöfn á fjallið
EyjanÁ Facebook geisar mikil umræða um nafn á fellinu sem er að myndast í eldsumbrotunum á Fimmvörðuhálsi. Það heyrast nöfn eins og Kreppa, Afleiða, Ísbjörg, Góa, Trafali, Hálsliður, Heljarhrun, Heljarþröm, Sjöttavarða, Hálsbólga, Sexan, Hálf sex – af því það er svo lítið – og Tuðtindur. Svo eru sumir sem segja að þetta eigi ekki Lesa meira
Snilld
EyjanSnilld er þess eðlis að hún kemur okkur sífellt á óvart. Ég horfði í gær á kvikmynd um Van Gogh – Kirk Douglas llék málarann – og einhvern veginn er maður gáttaður á óhamingju þessa óskabarns ógæfunnar – og einstakri sýn hans á heiminn sem hann miðlaði af öllum lífs- og sálarkröftum. Rússneskur stærðfræðisnillingur leysir Lesa meira
Sögulegur kvótafundur á Ísafirði
EyjanStjórnmálafundir á Vestfjörðum voru frægir í eina tíð. Hvergi hljóp mönnum meira kapp í kinn við pólitískar umræður en þar. Vestfirðingar hafa aldrei þótt vera sérstök dauðyfli. Fundur um fiskveiðistjórnun á Ísafirði í gærkvöldi virðist hafa verið býsna sögulegur. En það er eiginlega ráðgáta hvernig mönnum dettur í hug að halda fund um svo eldfimt Lesa meira
Euromoney: Sveitalubbamennska og mikilmennskuæði
EyjanÍris Erlingsdóttir vísar á grein sem birtist í Euromoney og nefnist The Failed State of Iceland og endursegir hluta hennar. Þetta er nokkuð kraftmikil lesning. Þarna er meðal annars fjallað um misheppnað fjármálaeftirlit, einkavæðingu banka í hendur vafasamra aðila, klíkusamfélagið Ísland, banka sem voru í tómu rugli og sjálfsuppgjör þjóðar – sem er ekki víst Lesa meira
Nauðsyn þess að setja nýja stjórnarská
EyjanElvira Mendez Pinedo, doktor í lögum og dósent við Háskóla Íslands, hefur tekið saman punkta úr viðtali í Silfri Egils um daginn. Hún heldur því fram að nú sé rétti tíminn fyrir stjórnarskrárbreytingar á Íslandi. Pistilinn má lesa hérna.
Guardian: Millistéttar femínismi
EyjanCarrie Hamilton skrifar í Guardian um femínisma millistéttarkvenna sem eru uppteknar af strippbúllum og klámi, en vantar að sjá víðari mynd af samfélaginu – að hennar áliti. Greinin ber heitið Enough Middle-Class Feminism.
Sjötíu manns ráða yfir megninu af sjávarauðlindinni
EyjanSamkvæmt fréttaskýringu á Stöð 2 eru það sjötíu einstaklingar sem ráða yfir sjötíu prósent kvótans á Íslandsmiðum. Eins og kom fram fyrr í dag er sagt að sjávarútvegurinn þurfi að fá 100 milljarða króna afskrifaða til að standa undir sér.
Annáll endurreisnar
EyjanLesandi síðunnar sem kallar sig Glaum sendi þessa samantekt, eins konar „annál“ endurreisnarinnar. — — — 1. Það verður uppreisn ef gengið verður að kröfum Breta og Hollendinga um greiðslu IceSave segir Steingrímur J. í stjórnarandstöðu. 2. Búsáhaldabyltingin og kosningaloforðin. 3. Neyðarlögin fest í sessi og mismunun sparnaðarforma þar með. Fordæmi sett fyrir IceSave. 4. Lesa meira
Dr. Feelgood
EyjanDV segir frá Feelgood áætlun Milestonemanna sem fólst í því að taka yfir Baug. Það er víst að það hefði mælst vel fyrir á ýmsum stöðum, en reyndist þó óframkvæmanlegt. Milestone var alveg jafn mikið óreiðufélag og Baugur. DV kallar þetta „Vellíðunaráætlunina“. Það er orðrétt þýðing, en segir þó ekki alla söguna. Feelgood er amerískt Lesa meira