Eigendur sem grafa undan fjölmiðlum sínum
EyjanEigendur Fréttablaðsins og Stöðvar 2 – Jón Ásgeir, Ingibjörg, Ari Edwald og co – vilja ekki gefa upp hvaðan nýtt hlutafé í fjölmiðla þeirra kemur. „Þér kemur það ekki við,“ sagði Jón Ásgeir um hlutafjáraukninguna við blaðamann Viðskiptablaðsins. En fjölmiðlar sem við vitum ekki hverjir eiga eru eiginlega óhugsandi. Hlutverk fjölmiðla er einmitt að leita Lesa meira
Eldfjallatúrismi
EyjanGuardian birtir fallegan myndaflokk um eldfjallatúrisma á Íslandi. Er ekki stundum talað um góða landkynningu?
Enn einn naglinn
EyjanJóhann Hauksson skrifar að úthutun Jóns Bjarnasonar á makrílkvóta sé enn einn naglinn í líkkistu ríkisstjórnarinnar. Þetta virðist vera allt annar ráðherra en úthlutaði skötuselskvótanum hér um daginn: Jóhann skrifar: „Jón skapar enga sátt. Hann fer gegn stefnumiðum um inköllun kvótans. Hann gerir það á þann grófasta hátt sem hann getur með því að úthluta Lesa meira
Kynbundið ofbeldi og bindindishugsjónin
EyjanÞegar ég var lítill drengur og kom fyrst til Danmerkur var farið með mig á veitingahús sem kallaðist Kvindernes almennyttige restaurant. Þetta var, minnir mig, staður sem var stofnaður af dönskum konum sem áttu þá hugsjón að karlar hættu að drekka áfengi. Líklega voru reknar fleiri restaurasjónir undir þessu heiti. Á þessum stöðum var ekki Lesa meira
Ómissandi menn
EyjanBræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir eru mjög sérstakir viðskiptamenn. Með biluðum viðskiptaævintýrum sínum tókst þeim að sökkva íslenska sparisjóðakerfinu að stórum hluta – og lífeyrissjóðir á Íslandi hafa tapað stórfé á viðskiptagjörningum bræðranna. Skuldasúpan sem þeir skilja eftir nemur mörg hundruð milljörðum króna. Það má einfaldlega segja, og þarf ekki að flækja máin umfram það, Lesa meira
Eru konur beittar meira ofbeldi hér en á Norðurlöndunum?
EyjanÞað þarf að fá skýringar á því hvers vegna fleiri konur leita til neyðarmóttöku á Íslandi en á Norðurlöndunum líkt og kemur fram í þessari frétt á Eyjunni. Þetta bendir til að nauðganir og ofbeldi gagnvart konum sé algengara hér en á Norðurlöndunum. Hver er þá skýringin? Er þetta eitthvað menningarbundið? Varla er hægt að Lesa meira
Sendiherrann, sérstaka sambandið og fangaflugið
EyjanAlbert Jónsson var einn úr fjölmennum hópi manna sem voru dubbaðir upp sem sendiherrar á stuttri tíð Davíðs Oddssonar í utanríkisráðuneytinu. Margir þessara manna naga blýanta á alltof fjölmennum skrifstofum ráðuneytisins, en Albert var gerður að sendiherra í Bandaríkjunum. Það þykir almennt fínasta staðan í bransanum. Ingibjörg Sólrún vildi niðurlægja Albert þegar hún komst í Lesa meira
Stjórnarsamstarfið: Þrjú ár í viðbót?
EyjanEftir flokksráðsfund VG er sagt að stjórnarsamstarfið sé ekki í hættu. Það eru greinilega ekki allir í VG sem móðgast yfir þeim orðum Jóhönnu að samstarfið sé eins og að smala köttum. Jóhanna er ekki orðhög kona. Þetta eru hérumbil fleygustu orð sem hafa heyrst úr munni hennar – og skal ekki gera lítið úr Lesa meira
Farið ránshendi um sjóði Glitnis
EyjanHeimildir herma að ef félagarnir Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson verði nappaðir fyrir eitthvað, þá sé það helst meðferðin á bankanum sem höfðu tök á og nefndist Glitnir. Halldór Baldursson túlkar þetta ágætlega í tekningu í Morgganum í morgun.
Þýðing þjóðaratkvæðagreiðslu
EyjanÞað eru liðnar rúmar þrjár vikur frá þjóðaratvæðagreiðslunni um Icesave. Undarlega hljótt hefur verið um málið síðan þá. En hver voru raunveruleg áhrif atvæðagreiðslunnar, hver var þýðing hennar? Um það eru menn varla farnir að ræða. Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, segir í pistli að myndin sem blasi við sé allt önnur en þjóðinni var Lesa meira