Hvað eru skattahækkanirnar að fjármagna?
EyjanHafsteinn Gunnar Hauksson hagfræðinemi skrifar grein á Deigluna þar sem hann fjallar um skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Hafsteinn efast um að skattahækkanir og niðurskurður séu rétt aðferð til að lyfta þjóð upp úr kreppu, en veltir um leið fyrir sér í hvað fjármagnið sem aflað er með hærri sköttum á að fara. Hafsteinn skrifar: — — — Lesa meira
Áskorun til ritstjórna
EyjanFriðrik Þór Guðmundsson, gamalreyndur blaðamaður, setur fram þarfa áminningu á heimasíðu sinni vegna birtingar rannsóknarskýrslu Alþingis. — — — Nú er framundan skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis. Ég skora á ritstjórnir allra fjölmiðla landsins að stíga á stokk og strengja þess heit að láta eignarhaldsmál og hagsmuni einstakra ritstjóra ekki flækjast fyrir fréttanefi sínu við matreiðsluna á Lesa meira
Andri Geir: Pólitísk einkavæðing og vitlaus peningastefna
EyjanAndri Geir Arinbjarnarson bloggar aftur eftir nokkurt hlé. Í pistli sem birtist í gærkvöldi skrifar hann um einkavæðingu að hún hafi ekki verið röng í sjálfu sér, heldur hafi framkvæmdin verið hörmuleg. Og hann fjallar einnig um peningastefnu sem virkaði ekki: — — — Gylfi hefði getað gert meir úr einkavæðingu bankanna og mistökum í Lesa meira
Katynmorðin og einkaböðull Stalíns
EyjanPútín forsætisráðherra Rússlands og Tusk forsætisráðherra Póllands hittast í Katynskógi. Þar voru framin hryllileg fjöldamorð á 22 þúsund Pólverjum árið 1940, fyrir réttum sjötíu árum. Sovétmenn reyndu að ljúga því að nasistar hefðu framið morðin, en seinna kom á daginn að þarna var sovéska öryggislögreglan NKVD að verki, að fyrirskipun Stalíns. Þegar Sovétmenn lögðu undir Lesa meira
Ummæli vikunnar
Eyjan„Þessi rannsóknarskýrsla og þetta allt saman er að þvælast eitthvað fyrir okkur tímabundið.“ Ólöf Nordal, varaformannsefni í Sjálfstæðisflokknum, ÍNN.
Lög um fjármálafyrirtæki
EyjanLesandi síðunnar sendi þessar línur. — — — Í 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 segir orðrétt: Stjórn fjármálafyrirtækis skal ekki taka þátt í ákvörðunum um einstök viðskipti, nema umfang þeirra sé verulegt miðað við stærð fyrirtækisins. Einstakir stjórnarmenn skulu ekki hafa afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti. Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis skulu ekki taka þátt Lesa meira
Guðrún frá Lundi, þýðandi Jónasar og Guðmundur Andri
EyjanÍ Kiljunni í kvöld verður fjallað um Guðrúnu frá Lundi, einn vinsælasta rithöfund á Íslandi á tuttugustu öld. Guðrún var sveitakona í Skagafirði sem lagði fyrir sig ritstörf á fullorðinsárum, og skrifaði meðal annars hinn sívinsæla bókaflokk Dalalíf. Í þættinum verður rætt við Dick Ringler, en hann er bandarískur þýðandi Jónasar Hallgrímssonar. Ringler hefur skrifað Lesa meira
Stefnt fyrir Stím
EyjanÞað var í viðtali sem ég átti við Lárus Welding, bankastjóra Glitnis, skömmu fyrir hrun að Stímmálið var einna fyrst nefnt í fjölmiðlum hér. Ég spurði Lárus hvað hann gæti sagt mér um þetta mál, það var nú ekki mikið – málavextir voru reyndar mjög óljósir á þeim tíma. Nú er búið að stefna eigendum Lesa meira
Baugsmenn eiga 365, stórútgerðir eiga Moggann.
EyjanFyrir helgi skrifaði ég í pistli að fréttamenn á Stöð 2 og Fréttablaðinu ættu að leggja sig fram um að upplýsa um eignarhald á 365 miðlum, sem eigendur þess reyna að halda leyndu – annað rýrði trúverðugleika þessara miðla verulega. Og í gærkvöldi birti Stöð 2 frétt þar sem um þetta er fjallað. Þar eru Lesa meira
Umboðsmaður skattgreiðenda
EyjanLesandi sendi þessar línur: — — — Ágæti Egill Nú þegar umboðsmaður skuldara hefur litið dagsins ljós er eðlilegt og nauðsynlegt að umboðsmaður skattgreiðenda holdgerist út úr eternum. Hver ætlar annars að verja þá ? Skattgreiðendafélög starfa víða og eðilegt að framkvæmdavaldið fagni sem víðastri umfjöllun á gegnsæjan hátt um störf sín, og fjármagni svona Lesa meira