Dapurt
EyjanÁ Vísi má lesa um mismunandi afstöðu fyrrverandi formanna Sjálfstæðisflokksins, Þorsteins Pálssonar og Davíðs Oddssonar, til hrunsins. Það kann að vera áhugavert. En það sem er í rauninni daprast í þessu er að hið fyrrum frjálslynda þjóðardagblað, Morgunblaðið, gangi nú nánast út á það eitt að verja arfleifð stjórnmálamanns sem var í besta falli mistækur. Lesa meira
Kína, Ísland og ESB
EyjanÞað er einkennileg hugmynd að heimsókn kínversks forsætisráðherra til Íslands myndi senda einhver sérstök skilaboð til Evrópusambandsins – eða að framtíð Íslands liggi einhvern veginn í nánu sambandi við herskálakapítalistana eystra. Evrópusambandið á í miklum samskiptum við Kína – og þau eru svosem ekki að öllu leyti jákvæð. Kína framleiðir ókjör af ódýrum varningi sem Lesa meira
Skuldaafskriftir
EyjanStuttu eftir hrun kom ungur maður, Árni Guðmundsson, í Silfur Egils. Hann var með hugmyndir um hvernig væri hægt að standa að skuldafskriftum vegna fyrirtækja sem eru í vandræðum. Ég hef birt þetta nokkrum sinnum áður, en nú virðist ærið tilefni til. — — – Hugmynd: Gagnagrunnur um skuldaafskriftir Ástæða hugmyndar: Verja jafnræði og endurvekja Lesa meira
Málið gegn Strauss-Kahn að hrynja?
EyjanÞað er merkilegt að lesa að málið gegn Dominique Strauss-Kahn sé að hrynja. Konan sem ásakar hann er sögð hafa logið síendurtekið. Strauss-Kahn hefur verið niðurlægður – málið gegn honum var rekið í fjölmiðlum frá fyrsta degi. Hann var leiddur fram fyrir blaðaljósmyndara og kvikmyndatökumenn eins og hann væri glæpamaður. Hann þurfti að borga 6 Lesa meira
Norðmenn verða áfram vellauðugir
EyjanEkkert bendir til annars en að Noregur verði áfram eitt allraríkasta land í heimi. Magnús Þór Hafsteinsson skrifar greinargóða grein um það hér á Eyjuna hvernig Norðmenn og Rússar eru að skipta á milli sín Barentshafinu. Þar er mikið af gasi og olíu sem mun áfram stuðla að hinum feiknargóðu lífskjörum í Noregi. Norðmenn þurfa Lesa meira
Pyrrosarsigur
EyjanÞað er talað um að gríska stjórnin hafi í dag unnið Pyyrrosarsigur. Það er búið að samþykkja neyðarlögin sem ganga út á niðurskurð, skattahækkanir og sölu ríkisfyrirtækja. Grikkland getur þá fengið frekari efnahagsaðstoð frá ESB og IMF. Það er semsagt búið að bjarga málum fyrir horn – í bili. Í raun hefur vandanum eingöngu verið Lesa meira
Þrjár konur gegn Sarkozy
EyjanEva Joly færðist í gær skrefi nær því að verða frambjóðandi í forsetakosningunum frönsku. Þá voru greidd atkvæði milli þeirra sem sækjast eftir útnefningu hjá flokki græningja. Eva Joly hlaut næstum hreinan meirihluta í fyrri umferð. Hún hlaut 48,7 prósent atkvæða, en sjónvarpsstjarnan Nicholas Hulot hlaut 40,2 prósent. Kosið verður á milli þeirra 12. júlí. Lesa meira
Skilja dómarar ekki?
EyjanEva Joly varaði við því á sínum tíma að dómarar skildu ekki efnahagsglæpi. Þeir væru vanari að fást við smáþjófa. Þeim þætti líka erfitt að dæma menn sem þeir litu á sem eins konar jafningja sína. Þess vegna þyrfti málatilbúnaðurinn að vera þannig að einfaldasti dómari skildi hann. Dómurinn í Exetermálinu vekur furðu margra. Málið Lesa meira
Öfugmæli
EyjanÞetta eru öfugmæli. Í því samfélagi nepótisma og klíkuskapar sem við búum í gjalda menn nú sjaldnast fyrir hverra manna þeir eru, hvar í flokki þeir standa eða hverjir eru vinir þeirra. Hæfasti maðurinn í þessu umsóknaferli þurfti að gjalda fyrir að vera ekki sonur fyrrverandi ráðherra. Annars er það skrítið með Sjálfstæðisflokkinn: Tveir valinkunnir Lesa meira
Landakot
EyjanÞví fjölgar enn fólkinu sem stígur fram og segir sögur af framferði stjórnenda Landakotsskóla á árum áður. Ég er alinn upp í Vesturbænum, gekk í Vesturbæjarskólann sem þá var á Öldugötu – var þá yfirleitt kallaður Öldugötuskóli. Það var sérlega indæll skóli. Við krakkarnir þar vorkenndum börnunum í Landakotsskóla. Börn eru býsna nösk. Maður fann Lesa meira