Engin gleðitíðindi
EyjanGagnrýni Bjarna Benediktssonar á ríkisreikninginn er að miklu leyti skynsamleg. Það mun seint ganga að skattleggja þjóðir út úr kreppu. Áætlun ríkisstjórnarinnar og AGS gengur út á hallalaus fjárlög árið 2013 – það er vandséð að það náist miðað við þann halla sem nú er á ríkisbúskapnum. Það var talað um að síðustu fjárlög væru Lesa meira
Stjórnarskráin – hvað næst?
EyjanStjórnlagaráð hefur samþykkt frumvarp að stjórnarskrá. Nú er spurning hvað verður gert við þetta. Verður hægt að leggja frumvarpið nokkurn veginn óbreytt fyrir Alþingi – og síðan fyrir þjóðina – eða má búast við að það verði klippt og skorið? Þarna eru ýmis atriði sem kunna að valda deilum. Það stendur til að jafna atkvæðisrétt, Lesa meira
Lengt í hengingarólinni
EyjanVinur minn Elías Pétursson er farinn að blogga. Ég veit að þar á margt merkilegt eftir að koma fram. Í fyrsta pistlinum skrifar hann um 110 prósenta leiðina.
Framtíð byggðarinnar
EyjanÉg hef margsinnis skrifað um það sama og Hilmar Þór Björnsson arkitekt, að framtíð byggðar í Reykjavík liggi úti á Álftanesi. Þetta er í raun sáraeinfalt: Brú yfir Skerjafjörðinn tengir vesturborgina við Álftanes, þá er hægt að komast úr miðbænum og þangað á fáum mínútum og þaðan er stutt að aka í Hafnarfjörð. Með þessu Lesa meira
Efnahagsstefna Osbornes í öngstræti
EyjanWill Hutton skrifar í Guardian um efnahagsstefnu ríkisstjórnar Davids Cameron sem virðist vera að bíða skipbrot. Misseri eftir misseri mælist sama og enginn hagvöxtur í Bretlandi, en ríkisstjórnin, með Cameron og George Osborne fjármálaráðherra, í fararbroddi hanga fast í plön um að ná fjárlagahalla niður á stuttum tíma með miklum niðurskurði. Á sama tíma njóta Lesa meira
Gilels leikur Schumann
EyjanHér er merkilegt myndbrot, væntanlega úr sovésku sjónvarpi. Píanóleikarinn Emil Gilels að leika hina dásamlegu Arabesku op. 18 eftir Schumann á tónleikum í Moskvu 1977. Tónlistin streymir úr hjóðfærinu eins og silfurfljót – Gilels hafði einstakan hljóm. Ég á þetta sama verk á hljómdiski með Gilels, það er safn af tónleikaupptökum á tveimur diskum – Lesa meira
Ofvaxið Apple
EyjanÉg hef notað Apple tölvur frá því ég byrjaði að nota slík tæki. Var með Apple strax á níunda áratugnum, borðtölvur og síðar fartölvu sem nú myndi þykja ansi frumstæð. Þá var þetta eins og maður væri í sérstökum klúbbi. Flestir voru með pc – það var voða margt sem ekki var hægt að fá Lesa meira
Hráskinnaleikur í Washington
EyjanÞað er nauðsyn að hækka skuldaþak bandaríska ríkisins. Annars gæti það lent í greiðsluþroti – sem gæti haft slæmar afleiðingar. Það tekst ekki að ná samkomulagi milli Demókrata og Repúblikana um þetta. Það er óhjákvæmilegt að bæta fjárhagsstöðu ríkisins, Demókratar hafa viljað auka skattheimtu á auðmenn og stórfyrirtæki. Það mega Repúblikanar ekki heyra minnst á. Lesa meira
Rugludallar
EyjanÞað er mikið af rugluðu liði í heiminum og margt af því er sífellt að hrópa á athygli okkar í gegnum internetið. Nei – þegar þjóðfélagsumræða er annars vegar er internetið ekki alltaf til bóta. Glenn Beck, útvarps- og sjónvarpsmaðurinn bandaríski, líkir sumarbúðunum á Úteyju þar sem hin skelfilegu fjöldamorð voru framin við Hitlersæskuna. En Lesa meira
Gullfiskur
EyjanHagfræðin er gullfiskur. Eða að minnsta kosti hinar viðteknu hugmyndir sem ríkja hverju sinni í hagfræðinni. Árum saman las maður að Þýskaland væri til vændræða í Evrópu – það væri jafnvel hinn „sjúki maður“ í álfunni – vegna þess að Þjóðverjar væru ekki nógu góðir neytendur, þeir eyddu ekki peningum og tækju ekki lán. Það Lesa meira