Framhald á deilunum úr Alþýðubandalaginu?
EyjanEinhver leiðinlegasti og langvinnasti kafli í íslenskri stjórnmálasögu eru deilurnar sem geisuðu lengi í Alþýðubandalaginu. Þessi átök fengu mikið pláss í fjölmiðlum um langt skeið – deilendur voru líka mjög sannfærðir um mikilvægi þeirra. Þær gengu í stuttu máli út á að þarna var fólk saman í flokki sem hvorki gat það eða vildi í Lesa meira
Sígildur vandi vinstri flokka
EyjanKristin Halvorsen, formaður Sósíalíska vinstriflokksins í Noregi, ætlar að láta af embætti á næsta landsfundi flokksins. SV tapaði fylgi í sveitarstjórnarkosningunum í Noregi um helgina. Halvorsen hefur verið formaður flokksins síðan 1997 og 2005 myndaði hún ríkisstjórn með Verkamannaflokknum. Það var í fyrsta sinn að SV var með í ríkisstjórn. Síðan hefur hún setið í Lesa meira
Langtum fremra
EyjanEr ekki tími til að menn hætti ósmekklegum samlíkingum milli þess sem fer fram á Alþingi og í leikskólum landsins? Maður sér ekki betur en að stórlega sé hallað á leikskólana með slíku tali. Það starf sem fer fram í leikskólum er langtum fremra því sem fer fram á Alþingi.
Ekki þarflaust
EyjanÞað á enginn embætti forseta Íslands. Þótt sá skilningur hafi virðist hafa verið ríkjandi lengi. Það hefur þótt goðgá að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta – og með algjörum ólíkindum að alvöru framboð hafi aldrei komið fram gegn forseta sem situr í embætti. Það er í raun fjarska ólýðræðislegt. En þegar líður að kosningum Lesa meira
Samþykkt samhljóða
EyjanAf gefnu tilefni má minna á eftirfarandi ályktun Alþingis vegna skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem birtist í apríl 2010. Ályktunin var samþykkt samhljóða af öllum þingheimi: Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé vitnisburður um þróun íslensks efnahagslífs og samfélags undangenginna ára og telur mikilvægt að skýrslan verði höfð að leiðarljósi í framtíðinni. Alþingi ályktar að brýnt Lesa meira
Fyrir tíu árum
EyjanÍ dag er dagurinn þegar allir muna hvar þeir voru fyrir tíu árum. 11. september 2001. Sjálfur var ég á Marbella á Spáni. Lá á strönd, konan mín var á hótelherbergi og hóf að senda mér símskilaboð í gríð og erg um furðulega atburði sem sáust í sjónvarpinu. Fyrst vissu menn ekki hvort þetta var Lesa meira
Tilgáta um tvær danskar nýlendur
EyjanValur Gunnarsson skrifar um bæinn Sólvang í Kaliforníu, brot af Danmörku á norður-amerískri grund. Ég kom þarna fyrr á þessu ári. Það sem sló mig mest var að bakkelsið í bakaríunum var eins og á Íslandi. Íslensk bakarí eru reyndar mjög íhaldssöm – úrvalið frekar staðnað og einsleitt. Búseta Dana á Sólvangi hófst 1911 – Lesa meira
Rétti tíminn fyrir Hönnu Birnu?
EyjanTímasetning er fyrir öllu í pólitík. Það var frægt árið 2007 þegar Gordon Brown var kominn að því að boða til kosninga, en hætti við á síðustu stundu. Nokkru síðar fjaraði undan honum og tap í kosningum blasti við. Orðrómur getur líka öðlast sjálfstætt líf. Það var farið að hvísla um formannsframboð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur Lesa meira
Þvottur
EyjanHalldór Baldursson er með þetta eins og endranær. Myndin birtist í Fréttablaðinu í gær.
Líf á Bókmenntahátíð
EyjanÉg fór í Norræna húsið á Bókmenntahátíð. Heillaðist af mexíkóska ljóðskáldinu Alberto Blanco. Svo kom Nawal El Sadaawi og fyllti húsið. Það er hörkukona. Herta Müller sat að snæðingi í matstofunni – hún er smávaxin og fíngerð kona, en andlitið er markað af lífsreynslu. Eftir að hafa lesið bók hennar sem nefnist Andarsláttur á íslensku Lesa meira