fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025

Óflokkað

Ákært í Al-Thani máli

Ákært í Al-Thani máli

Eyjan
22.02.2012

Það eru viss tímamót þegar sérstakur saksóknari birtir ákæru í jafn viðamiklu máli og hinum meintu fjársvikum stjórnenda Kaupþings. Það er hægt að lesa ákæruna á vef Ríkisútvarpsins – það er mjög athyglisvert hvernig fjármunum er beint úr bankanum til skúffufyrirtækja í útlöndum og þeir svo notaðir til að kaupa aftur hlutabréf í bankanum, þá Lesa meira

Áhugaverðar skírskotanir

Áhugaverðar skírskotanir

Eyjan
22.02.2012

Horfði í gærkvöldi á merkilega mynd eftir Robert Redford sem er komin út á diski. Hún nefnist The Conspirator. Myndin fjallar um réttarhöldin yfir samsærismönnum sem stóðu að tilræðinu við Abraham Lincoln forseta 1865. Sjónum er einkum beint að konunni Mary Surrat, en hún rak gistiheimili í Washington þar sem samsærismenn voru gestir. Mary Surrat Lesa meira

Stórtækir skuldarar fá góða þjónustu

Stórtækir skuldarar fá góða þjónustu

Eyjan
22.02.2012

Sjónvarpið flutti sérlega áhugaverða frétt um skuldaniðurfærslu í kvöld. Þar kom meðal annars fram að niðurfærsla vegna 110 prósenta leiðarinnar er 43,6 milljarðar króna. En svo koma nokkrir stórtækir skuldarar sem hafa fengið sérstaka þjónustu í kerfinu og meira niðurfellt en öll heimilin í landinu samanlagt, hvort sem eiga í hlut ólöglegu gengislánin eða verðtryggð Lesa meira

Ísland og Írland – samanburður

Ísland og Írland – samanburður

Eyjan
21.02.2012

Richard Barley skrifar í Wall Street Journal og veltir upp þeirri spurningu hvort landið hafi komið betur út úr kreppunni, Írland eða Ísland. Hann segir að margir myndu segja Ísland, til skamms tíma litið. Lánshæfismat Íslands var hækkað hjá Fitch á föstudag meðan Írland er enn í ruslflokki. Hagkerfi beggja landanna féllu vegna þess að Lesa meira

Sandi Toksvig, bókverk Dieters og Öreigarnir í Lodz

Sandi Toksvig, bókverk Dieters og Öreigarnir í Lodz

Eyjan
21.02.2012

Gestur í Kiljunni annað kvöld verður Sandi Toksvig. Hún er enskur rithöfundur, grínisti, útvarpskona- og sjónvarpskona – af dönskum ættum. Toksvig hefur mjög verið viðriðin hin virtu Orange-bókmenntaverðlaun, en þau eru veitt til kvenna. Hún kom hingað til Íslands til að afhenda Fjöruverðlaunin. Við fjöllum um bækur – eða bókverk Dieters Roth. Hann var geysilega Lesa meira

Vandinn við þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárdrög

Vandinn við þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárdrög

Eyjan
21.02.2012

Nú er rætt um hvort eigi að greiða atkvæði um drög að stjórnarskrá – samkvæmt tillögum Stjórnlagaráðs – jafnhliða forsetakosningum í sumar. Skúli Magnússon, dósent við HÍ og ritari EFTA dómstólsins, telur þetta of flókið – nokkrir fulltrúar úr Stjórnlagaráði hafa brugðist illa við því. Vandinn er eiginlega tvíþættur: Er hægt að greiða atkvæði um Lesa meira

Langvarandi pólitísk blinda

Langvarandi pólitísk blinda

Eyjan
20.02.2012

Rithöfundurinn Apostolos Doxiades skrifar sérlega glögga og hreinskilna grein um vandræðin í Grikklandi í Guardian. Hann bendir á að það sé aðeins fámennur hópur sem kveiki í húsum og hendi eldsprengjum í lögreglu og að þeir sem mæti í mótmælaaðgerðir séu yfirleitt ekki nema lítil hluti flokka eða verkalýðsfélaga sem boða þær. Flestir Grikkir séu Lesa meira

Bolludagur og feiti þriðjudagurinn

Bolludagur og feiti þriðjudagurinn

Eyjan
20.02.2012

Á frönsku heitir kjötkveðjuhátið mardi gras. Þetta þýðir einfaldlega feiti þriðjudagurinn. Sbr. sprengidagur á íslensku – það er síðasti dagurinn sem má borða kjöt fyrir lönguföstu. Við höfum líka orðið karnival. Það hefur verið íslenskað sem kjötkveðjuhátíð – sem er giska nákvæm þýðing á latneska orðinu carnevale. Carne – kjöt. Vale – kveðja. Svo höfum Lesa meira

Gengistryggðu lánin – lögbrot sem allir vissu um

Gengistryggðu lánin – lögbrot sem allir vissu um

Eyjan
20.02.2012

Lögfróður lesandi síðunnar sendi eftirfarandi greinarkorn: — — — Aldrei er fjallað um hvernig öll þessi ólöglegu gengistryggðu lán voru látinn viðgangast öll þessi ár? Hvar í ósköpunum var t.d. Seðlabanki Íslands, vörsluaðili ISK? Ath. ISK var látinn fljóta árið 2001, og auðvitað átti ISK að vera sjálfstæð og ekki bundin erlendum gjaldmiðlum við lánveitingar. Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af