fbpx
Laugardagur 07.júní 2025

Óflokkað

Sagan endurskrifuð – með rugli

Sagan endurskrifuð – með rugli

Eyjan
28.02.2012

Þegar mótmælin miklu voru í byrjun október 2010 vissu stjórnarliðar ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Þeir töluðu sig upp í það að þetta væri Ríkisútvarpinu að kenna, að Ríkisútvarpið hefði æst til mótmælanna. Þetta varð útbreidd skoðun innan Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Og nú er sömuleiðis verið að dreifa þeirri skoðun að Ríkisútvarpið hafi Lesa meira

Silfrið: Ólafur Margeirsson

Silfrið: Ólafur Margeirsson

Eyjan
27.02.2012

Hér er viðtal um umdeilt efni úr Silfri gærdagsins. Ólafur Margeirsson hagfræðingur um aðferðir til að létta á skuldabyrði. Það væri gaman að fá málefnalega umræðu um þetta, ekki bara upphrópanir. Þökk sé Láru Hönnu sem bjó svona um efnið.  

Ólafur Ragnar og ákvörðunin

Ólafur Ragnar og ákvörðunin

Eyjan
27.02.2012

Ólafur Ragnar taldi sig hafa talað skýrt í áramótaávarpinu. En áleit svo að það væri vanvirðing að hann væri að skýra orð sín nánar. (Við hvern?) Síðan eru liðnir tveir mánuðir. Og nú ætlar hann að hugsa sig um þessa viku og kannski fram í þá næstu. Atburðarásin er þannig að hann verður að íhuga Lesa meira

Uppáhaldsleikari kvikmyndaskálda

Uppáhaldsleikari kvikmyndaskálda

Eyjan
27.02.2012

Erland Josephson var þannig leikari að ef maður sá hann einu sinni var andlitið hans eins og greipt í vitund manns. Maður man aðallega eftir honum í myndum Bergmans, Senum úr hjónabandi og Fanný og Alexander, en hann lék líka hjá Tarkovskí, í Nostalgíu og Fórninni – og hjá Angelopoulos. Þetta var stórkoslega gáfaður og Lesa meira

Ekki í framboð

Ekki í framboð

Eyjan
27.02.2012

Ólafur Ragnar Grímsson hefur boðað til blaðamannafundar í dag. Þar mun hann væntanlega svara vangaveltum um að hann kunni að fara enn einu sinni í forsetaframboð – og áskorunum þar um. Ég ætla að spá því að Ólafur tilkynni að hann ætli ekki í framboð. Þannig skildi ég áramótaræðu hans og sá skilningur hefur ekki Lesa meira

Stjórnarmyndun á tíma Búsáhaldabyltingar

Stjórnarmyndun á tíma Búsáhaldabyltingar

Eyjan
27.02.2012

Menn eru að velta fyrir sér Búsáhaldabyltingunni. Ég skrifaði fyrr í kvöld að líklega hefði stjórn Geirs Haarde verið fallin fyrir hana. Reyndar má segja að hún hafi fengið náðarhöggið kvöldið sem mótmælendur þustu upp í Þjóðleikhúskjallara og umkringdu fund hjá Samfylkingarfélaginu í Reykjavík. Samfylkingarfólk hefur brugðist illa við því orðalagi að mótmælendurnir hafi tekið Lesa meira

Ekki bylting, ekki skipulagt af stjórnmálaflokkum

Ekki bylting, ekki skipulagt af stjórnmálaflokkum

Eyjan
26.02.2012

Það er eitt sem kannski ætti að liggja ljóst fyrir núorðið: Búsáhaldabyltingin var ekki bylting. Ríkistjórn Geirs Haarde féll vegna þess að Samfylkingin vildi ekki eða treysti sér ekki til að starfa í henni lengur. Vendipunkturinn var þegar mótmælendur stormuðu upp í Þjóðleikhús og tóku yfir fund Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Það spilaði inn í að Lesa meira

Erfið staða VG

Erfið staða VG

Eyjan
26.02.2012

Það hefur lengi legið fyrir að ekki yrði hægt að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið fyrir kosningar sem á að halda í apríl 2012 – hvað þá að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn. En Vinstri grænir eru mjög farnir að ókyrrast eins og heyra má á tali þeirra beggja, fjandvinanna Steingríms og Ögmundar. Þeir sjá fram Lesa meira

Olíulindir og stefna í loftslagsmálum

Olíulindir og stefna í loftslagsmálum

Eyjan
25.02.2012

Guðni Elísson bókmenntafræðingur birti í vetur grein um loftslagsmál í Tímariti Máls og menningar. Guðni hefur fjallað mikið um þessi mál í gegnum árin, en hér beinir hann sjónum sínum meðal annars að olíufundi á Drekasvæðinu og viðbrögðunum við því þegar Kolbrún Halldórsdóttir, þá umhverfisráðherra og þingmaður Vinstri grænna, sagði – „olíuvinnsla samrýmist hvorki stefnu Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af