fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025

Óflokkað

Poppstjörnur með pabba og mömmu

Poppstjörnur með pabba og mömmu

Eyjan
06.03.2012

Hér er stórkostleg myndasíða þar sem má sjá poppstjörnur með foreldrum sínum – árið er 1971, myndirnar eru úr tímaritinu Life. Myndirnar eru gleðigjafi. Þarna eru karlar eins og David Crosby, Frank Zappa, Eric Clapton og Elton John, ægilegir töffarar, og hin æðislega Grace Slick – með mömmu og pabba. Barnið sem Slick heldur á Lesa meira

Heitur Stefán Jón

Heitur Stefán Jón

Eyjan
06.03.2012

Eins og hefur komið fram leitar hópurinn Betri valkost á Bessastaði ákaft af forsetaframbjóðanda gegn Ólafi Ragnari. Ragna Árnadóttir virðist gefa þetta nokkuð eindregið frá sér. En Stefán Jón Hafstein virkar heitur. Hann er reyndar staddur í Malawí – þar er heitt – en hann tekur ekki ólíklega í framboð á Facebook. Á einum stað Lesa meira

Myndræn útsending

Myndræn útsending

Eyjan
05.03.2012

Ég ætla að stela þessu frá Elíasi Péturssyni vini mínum: Fyrir alllöngu var haldinn fundur í Reykjavík,  myndin hér að neðan er það sem næst kemst myndrænni útsendingu… í dag voru vitnaleiðslur fyrir landsdómi og ekki ósvipað aðgengi að upplýsingum og á fundinum forðum, nema kannski að nú fá 75 (fyrstur kemur, fyrstur fær) að Lesa meira

Hörmulegur atburður

Hörmulegur atburður

Eyjan
05.03.2012

Það er mikil reiði og æsingur í íslensku samfélagi. Maður finnur þetta víða – jafnvel bara í umferðinni. Að sumu leyti er þetta nánast kæfandi. Atburðurinn sem varð í dag, þegar maður gengur inn á lögfræðistofu, og stingur starfsmann mörgum sinnum er þannig að manni bregður við. Þetta lítur út eins og morðtilraun – það Lesa meira

Um leikrit í Þjóðmenningarhúsi

Um leikrit í Þjóðmenningarhúsi

Eyjan
05.03.2012

Baldur Andrésson er höfundur þessarar greinar: — — — Haustið 2007 var kreppa í íslensku fjármálalífi skollin á, sem augljóslega hlaut að leiða til heljarhruns. 1. Óheft innstreymi á erlendu lánsfé til banka stöðvaðist. 2. Fasteignamarkaður fraus, skilaboð um verðandi verðhrun. 3. Hlutabréfamarkaður dapraðist skyndilega, en með svindli tókst um skamman tíma að halda hlutabréfaverði Lesa meira

Erlendir fjölmiðlar hafa áhuga

Erlendir fjölmiðlar hafa áhuga

Eyjan
05.03.2012

Mál Geirs Haarde er að vekja athygli víða um heim. Ég hef verið í viðtölum við fimm erlenda fjölmiðla í dag vegna þessa – tvo á Brelandseyjum, einn á Spáni og tvo  í Bandaríkjunum. Eins og oft er veruleikinn ekki alveg klipptur og skorinn þegar maður fer að skýra hann út. Ég hef allavega ekki Lesa meira

Stéttarvitund forstjóra

Stéttarvitund forstjóra

Eyjan
05.03.2012

Engir eru jafn stéttvísir og forstjórar stórfyrirtækja. Stéttavindund þeirra birtist í mjög sterkri tilheigingu þeirra til að hækka laun sín og þeirra sem eru í kringum þá. Forstjórar sitja gjarnan í stjórnum annarra fyrirtækja  – og eru þá látnir samþykkja laun annarra forstjóra. Sem síðan samþykkja launin þeirra. Með þessum hætti getur verið ótrúlegur stígandi Lesa meira

Ekki í hópnum

Ekki í hópnum

Eyjan
05.03.2012

Að gefnu tilefni ætla ég að taka það fram að ég skráði mig ekki í Facebook-hópinn sem Viðskiptablaðið kallar Frægir gegn forsetanum. Ég var settur þangað inn að mér forspurðum – og hef fjarlægt nafn mitt.

Grúppa gegn Ólafi

Grúppa gegn Ólafi

Eyjan
05.03.2012

Nú er búið að stofna á Facebook hóp sem nefnist Betri valkost á Bessastaði. Nokkur fjöldi fólks hefur gengið til liðs við hann. Markmiðið er að finna einhvern til að fara í framboð gegn Ólafi Ragnari Grímssyni. Þar fara fram vangaveltur um hvernig persóna þetta eigi að vera. Sitt sýnist hverjum, hjá sumum er eins Lesa meira

Þversögn?

Þversögn?

Eyjan
04.03.2012

Innan Samfylkingarinnar leita menn logandi ljósi að forsetaframbjóðanda sem gæti átt séns í Ólaf Ragnar Grímsson. Hann hefur ekki fundist enn, en þar binda menn mestar vonir við Rögnu Árnadóttur. Hún er reyndar nýorðin aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Ragna er talin einna líklegust til að geta sigrað Ólaf. Ekki er vitað hvort hún hafi nokkurn áhuga á Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af