Pest
EyjanÞetta er dagurinn sem fer í súginn í pest og leiðindum. Verst þegar maður getur eiginlega ekki einbeitt sér að neinu – ekki lestri, ekki glápi, ekki skrifum. Helltist allt í einu yfir og rauk upp í meira en 39. Maður getur ekki hugsað heila hugsun.
Skelfileg útreið Alþingis
EyjanÞessi mynd er af vef Capacent og sýnir nýja mælingu á trausti til stofnana á Íslandi. Þjóðkirkjan hefur lækkað mikið, en mér finnst athyglisverðast að staldra við Alþingi. Traustið á því fer enn minnkandi. Í fyrra var það 12 prósent í sömu mælingu, í hittifyrra var það 13 prósent – nú er það 10 prósent. Lesa meira
Femínismi, kreddufesta og jafnrétti
EyjanZoe Williams skrifar í Guardian og segir að femínistar verði að leggja áherslu á fjölbreytileika, en ekki eina kreddu. Kreddufesta sé vandamál í kvennahreyfingunni í dag. Femínisminn eigi að rúma margs konar viðhorf – sem sum væru nánast kölluð trúvilla í dag. Williams, sem sjálf er femínisti, segir að mitt í öllu talinu um vændi, Lesa meira
Jóhanna, völd forsetans og andúðin í garð hans
EyjanJóhanna Sigurðardóttir talaði um forseta lýðveldisins í dag. Hún segir að hann sé að færa sig lengra út á svið stjórnmálanna. Það má ekki gleyma því að mestallur flokkur Jóhönnu klappaði þegar Ólafur Ragnar steig stærsta skrefið í þá átt, þegar hann neitaði að undirrita fjölmiðlalögin 2004. Þá máttu flokksfélaga Jóhönnu ekki til þess hugsa Lesa meira
Með kynlíf á heilanum
EyjanFrjálslyndu fólki er yfirleitt sama þótt aðrir séu að stunda kynlíf. Og jafnvel þótt þeir séu að stunda einhverja tegund af kynlífi sem það myndi ekki iðka sjálft. En svo eru þeir sem geta varla sofið á nóttinni vegna kynlífs annarra. Eins og til dæmis páfinn í Róm og Rick Santorum og Rush Limbaugh. Engir Lesa meira
Lítil ræma
EyjanLitla teiknimyndasagan Calvin & Hobbs er oft býsna sniðugt. Þessi litla ræma segir meira en mörg orð um mál sem eru í gangi hér á Fróni. „It couldn’t be avoided“
Grein Jóns á ensku
EyjanEyjan vitnar í umsögn Jóns Daníelssonar, hagfræðings við London School of Economics, um landsdómsmálið. Rétt er að benda á að grein Jóns um málið er að finna á ensku á vef hans undir heitinu I did not know, I could not do, it´s their fault. Greinin er nokkuð ítarlegri en hin íslenska endursögn.
Kirkjan og aðskilnaðurinn
EyjanÉg læt mig ekki miklu varða hver verður biskup yfir Íslandi, þarna er ágætt fólk innanum í framboði. En um daginn spurði dagblað eitt – ég man ekki hvaða – biskupsefnin nokkurra spurninga. Það sem vakti mesta athygli var spurning hvort þeir vildu taka þátt í gleðigöngu samkynhneigðra. En það var önnur spurning sem mér Lesa meira
Að sprengja forsætisráðherra
EyjanMaður spyr stundum hvar mörkin liggja í samfélagi okkar – og hvort þau hafi verið að færast mikið til. Í DV í morgun er viðtal við mann sem kom með sprengju að Stjórnarráðinu í byrjun árs. En í viðtalinu segist hann hafa ætlað að fara með sprengjuna að heimili forsætirsáðherra. En svo vissi hann ekki Lesa meira
Blikkið
EyjanÉg var alinn upp í grennd við Melavöllinn, hann var eitt aðal leiksvæðið þegar ég var strákur. Oft var maður að þvælast þar í æsku, príla yfir girðingar eða undir þær, safna flöskum eða fylgjast með íþróttamönnum við æfingar. Svo voru þar kappleikir og mót – maður borgaði sig kannski ekki alltaf inn, því það Lesa meira