Karl Olgeirsson gefur út Mitt bláa hjarta – „Það voru örlög mín að verða tónlistarmaður“
FókusTónlistarmaðurinn Karl Olgeirsson gefur föstudaginn 14. september út Mitt bláa hjarta, 14 nýja jazzsöngva í nótnabók og heldur sama kvöld útgáfutónleika í Hannesarholti, þar sem hann syngur lögin upp úr bókinni og segir sögur tengdar þeim. Í lok október kemur síðan út tvöföld vínylplata og geisladiskur sem Karl er að safna fyrir á hópfjármögnunarvefnum Karolina Lesa meira
Norræn hönnunarkeppni um sjálfbæra stóla, nýja eða gamla
FókusHleypt hefur verið af stokkunum norrænni hönnunarkeppni með áherslu á hönnun sjálfbærra stóla. Þeir sem komast í úrslit og sigurvegarar keppninnar verða kynntir í norræna skálanum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi í desember. Norræna ráðherranefndin kallar eftir tillögum frá húsgagnahönnuðum og húsgagnaframleiðendum á Norðurlöndum, sem eru hvattir til að líta yfir verk sín Lesa meira
Heimsþekkta norska tónskáldið Trond Kverno gestur í sunnudagsmessu Hallgrímskirkju
FókusHátíðarmessa verður í Hallgrímskirkju kl. 11 með tónlist norska tónskáldsins Trond Kverno. Norska tónskáldið Trond Kverno er gestur árlegrar Organistastefnu, sem haldin er fyrir organista á vegum Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar í Skálholti um helgina. Trond Kverno, sem er með þekktustu og virtustu tónskáldum Norðurlandanna hefur samið mjög mikið af kirkjutónlist, bæði stór kórverk og sálma. Sálmalög hans þykja sérlega falleg og grípandi og Lesa meira
Styrmir Örn Guðmundsson framkvæmir Líffæraflutning
FókusÁ morgun, sunnudaginn 9. september kl. 15, fremur Styrmir Örn Guðmundsson gjörning sem ber nafnið: Líffæraflutningur á Gerðasafni í Kópavogi. Í verkinu hefur Styrmir mótað seríu leirskúlptúra sem hver og einn sækir form sitt í lögun líffæra. Styrmir valdi líffærin út frá forminu því hér gegna þau hlutverki hljóðfæra. Maginn er Udu tromma, lifrin er Lesa meira
Ragnheiður Káradóttir opnar Utan svæðis í dag
FókusÍ dag kl. 17 opnar Ragnheiður Káradóttir sýninguna Utan svæðis í Harbinger. Sýningin stendur til 29. september næstkomandi. Moppuhaus vinnur verk sín streitulaust. Rottur koma og fara. Með myrkvuðum pollum á milli staða. Beinahjasl á víð og dreif. Mitt á meðal. Utan svæða. Innsetning Ragnheiðar í Harbinger er áframhald af því sem hún hefur verið Lesa meira
Stjörnu-Sævar og himingeimurinn
FókusSævar Helgi Bragason, stundum betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, mun heimsækja Borgarbókasafnið í Kringlunni í dag kl. 13.30 og fræða okkur um himingeiminn. Hvað sjást margar stjörnur á himninum? Gæti verið líf á öðrum hnöttum? Hvað eru svarthol? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum verður (kannski) svarað. Stjörnuhiminninn fyrir ofan okkur verður skoðaður, við finnum út af hverju tunglið Lesa meira
Fjölskylduleiðsögn um Einskismannsland
FókusListasafn Reykjavíkur býður upp á fjölskylduleiðangur í dag kl. 11 um hálendisverk listamanna á sýningunni Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? Skemmtileg og fjölskyldumiðuð leiðsögn þar sem börnin fá áhugaverð verkefni og tækifæri til að tjá upplifun sína á margvíslegan hátt. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Frítt Lesa meira
BSÍ gefur út sína fyrstu plötu og lag – Ekki á leið
FókusÍ dag, föstudaginn 7. september, kemur út fyrsta EP-plata hljómsveitarinnar BSÍ. Platan er fáanleg sem 7” vínyll en er einnig fáanleg á Itunes, Spotify og Bandcamp. DIY útgáfufyrirtækið Tomatenplatten (Berlín) sér um útgáfuna í samstarfi við Why Not? Plötur (Reykjavík). Einnig var að koma út myndband af umferðagjörningi og fyrsta lagi hljómsveitarinnar. BSÍ eru Sigurlaug Lesa meira
Styttist í stórtónleika Helga – Eldhress á æfingu
FókusHelgi Björns varð 60 ára þann 10. júlí og af því tilefni blæs hann til glæsilegra stórtónleika í Laugardalshöllinni á morgun, laugardaginn 8. september. Það er einvala lið sem verður Helga til halds og trausts á sviðinu, en sérstakir gestir eru: Emmsjé Gauti, Högni og Ragga Gísla. Helgi hefur átt gifturíkan feril sem söngvari, leikari Lesa meira
Bókasafnsdagurinn er haldinn hátíðlegur í dag – Þemað í ár er vísindi
FókusTilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í nútímasamfélagi og einnig er hann hátíðardagur starfsfólks bókasafna. Dagurinn er haldinn á hverju ári og er slagorð dagsins í ár, Lestur er bestur – fyrir vísindin. Sá hluti slagorðsins sem er á eftir „Lestur er bestur“ er ávallt tengdur þema dagins og í ár er Lesa meira
