fbpx
Föstudagur 27.júní 2025

Innlent

Stjórnarandstaðan í „ruslflokki“

Stjórnarandstaðan í „ruslflokki“

Eyjan
07.06.2017

Stjórnarþingmaðurinn Brynjar Níelsson er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum. Hann viðurkennir að skiptar skoðanir séu á ágæti ríkisstjórnarinnar og meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisn og Bjartrar framtíðar en að flestir séu sammála um eitt, „að stjórnarandstaðan sé í ruslflokki“ þessa dagana. Þetta kemur fram í pistli á Facebook síðu Brynjars en að hans mati Lesa meira

„Laun sjómanna lækkað um 50% á tveimur árum!“

„Laun sjómanna lækkað um 50% á tveimur árum!“

Eyjan
07.06.2017

Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um allt land næstkomandi sunnudag. Af því tilefni hefur Verkalýðsfélag Akraness birti greiningu á launamálum sjómanna og þróun þeirra undanfarin ár á vefsíðu sinni með yfirskriftinni „Laun sjómanna lækkað um 50% á tveimur árum!“ og eru þau að mati félagsins „í frjálsu falli“. Formaður VLFA, Vilhjálmur Birgisson hefur að sögn kannað Lesa meira

Viðreisn, Björt framtíð og Samfylkingin í eina sæng?

Viðreisn, Björt framtíð og Samfylkingin í eina sæng?

Eyjan
07.06.2017

Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag gerir höfundur skipun Árna Páls Árnasonar, fyrrum formanns Samfylkingarinnar í starf stjórnarformanns Tryggingastofnunnar af hendi Þorsteins Víglundssonar, félags og jafnréttismálaráðherra. Þetta sé augljóslega pólítísk skipun sem bendir að mati höfunda Staksteina til þess að breytingar séu í vændum í landslagi íslenskra stjórnmálaflokka? Þessi skipan hefur ekki vakið þá athygli, sem Lesa meira

„Miklar hamfarir hafa gengið yfir atvinnulíf okkar Skagamanna“

„Miklar hamfarir hafa gengið yfir atvinnulíf okkar Skagamanna“

Eyjan
06.06.2017

Í dag var greint frá því að sjávarútvegsfyrirtæki HB Grandi, sem tilkynnt hefur um lokun botnfiskvinnslu fyrirtækisins á Akranesi, að boðið verði upp á rútuferðir frá Akranesi til Reykjavíkur þar sem vinnslan verður staðsett fyrir það starfsfólk sem ætlar halda áfram að starfa við vinnsluna en búa áfram uppi á Skaga. Þetta er Vilhjálmi Birgissyni, Lesa meira

„Þið ástundið bara ömurlega pólitík og eruð mestmegnis á móti öllu“ – Borgarfulltrúi Vinstri grænna um minnihlutann

„Þið ástundið bara ömurlega pólitík og eruð mestmegnis á móti öllu“ – Borgarfulltrúi Vinstri grænna um minnihlutann

Eyjan
06.06.2017

Fyrir helgi var tilkynnt um aðgerðir í fjórtán liðum til að takast á við vandann í húsnæðismálum með svokölluðum húsnæðissáttmála. Sáttmálinn er unninn í samstarfi ríkisstjórnarinnar og fulltrúa sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Á borgarstjórnarfundi fyrr í dag voru atkvæði greidd um húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar til 2020 og greiddu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina atkvæði gegn henni. Lesa meira

Ásta Guðrún: Frétt Eiríks er bull – Orðrómurinn þessari mynd að kenna?

Ásta Guðrún: Frétt Eiríks er bull – Orðrómurinn þessari mynd að kenna?

Eyjan
06.06.2017

„Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrum þingflokksformaður Pírata, er á leið úr flokknum og yfir í Samfylkinguna. Þetta verður tilkynnt á allra næstu dögum.“ Þannig hljómaði frétt eftir Eirík Jónsson á síðu hans eirikurjonsson.is. Þar sagði enn fremur að Ásta Guðrún hefði ekki verið velkomin á þingflokksfundi Pírata. Segir Eiríkur að henni hafi þannig verið stillt upp Lesa meira

Kári segir Óttarr Proppé hafa verið líkt og í kannabisvímu á þingi

Kári segir Óttarr Proppé hafa verið líkt og í kannabisvímu á þingi

Eyjan
06.06.2017

Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Kári Stefánsson er ekki þekktur fyrir annað en að tala tæpitungulaust. Hann gerir upp nýlokið þing í grein ber titilinn „Heppin þjóð“ og sparar þar ekki stóru orðin. Greinilegt er að hann er lítt ánægður með störf þingsins, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu. Segir hann þingmenn hafa „yfirleitt hljómað eins og hann hafi Lesa meira

Skúli Mogensen: Hættum þessu endalausa neikvæðis röfli

Skúli Mogensen: Hættum þessu endalausa neikvæðis röfli

Fókus
05.06.2017

Skúli Mogensen forstjóri WOWair birti mynd af sér á sjúkrarúmi, nýkominn úr aðgerð. Í stuttri hugvekju sendir hann skilaboð til þjóðarinnar. Um leið og hann bendir Íslendingum á að þeir séu heppnir að búa hér á landi hvetur hann fólk til að vera jákvætt og hrósa hvort öðru. Skúli segir: „Við Íslendingar erum heppin þjóð Lesa meira

José endaði peningalaus á Akureyri og svalt í fjóra daga: „Ég hef aldrei verið jafn svangur á ævinni“

José endaði peningalaus á Akureyri og svalt í fjóra daga: „Ég hef aldrei verið jafn svangur á ævinni“

Fókus
05.06.2017

„Ég fékk mína vinnudaga, sem voru kanski þrír eða fjórir í viku. Hina dagana var ég bara heima. Ég reyndi að borða eins mikið og ég gat þegar ég var í vinnunni og svo ekkert inni á milli,“ segir José Garcia veitingamaður sem oftast er kenndur við Caruso. Jose kom til Íslands sem skiptinemi á Lesa meira

Ætla bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins að tryggja Degi B. og hans fólki áframhaldandi völd?

Ætla bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins að tryggja Degi B. og hans fólki áframhaldandi völd?

Eyjan
05.06.2017

Halldór Jónsson, verkfræðingur og áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi til áratuga, hefur sagt skilið við flokkinn. Hann segist ekki sjá að flokkurinn þarfnist sín lengur. Halldór er ósáttur við framgöngu Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra sem hefur gert samkomulag um undirbúning svonefndrar borgarlínu, sem á að vera hágæða almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu. Hann er raunar ekki aðeins ósáttur Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af