fbpx
Mánudagur 30.júní 2025

Innlent

„Engin dæmi um að ríkisstjórn sé komin niður í þriðjungs fylgi eftir hálft ár“

„Engin dæmi um að ríkisstjórn sé komin niður í þriðjungs fylgi eftir hálft ár“

Eyjan
23.06.2017

Í nýjustu skoðanakönnun MMR mælist ríkisstjórnin með 30,3% fylgi. Stjórnin var mynduð um miðjan janúar og hefur því nú starfað í rúmt hálft ár. Sjálfstæðisflokkur Bjarna Benediktssonar mælist sem fyrr stærsti flokkur landsins en ef kosið yrði í dag yrði mjög tvísýnt hvort Viðreisn Benedikts Jóhannessonar og Björt Framtíð Óttars Proppé næðu inn á þing. Lesa meira

Fannst ég aldrei sitja í valdamiklu starfi

Fannst ég aldrei sitja í valdamiklu starfi

Fókus
23.06.2017

Styrmir Gunnarsson var í 36 ár ritstjóri Morgunblaðsins og afar áhrifamikill í því starfi, þótt sjálfur vilji hann ekki gera mikið úr þeim áhrifum. Hann lét af starfi ritstjóra árið 2008 en lætur sig þjóðfélagsmál enn miklu varða. Kolbrún Bergþórsdóttir hitti Styrmi og ræddi við hann um hrunið, stjórnmálin, Morgunblaðið, þroskandi lífsreynslu og ævi forfeðranna. Lesa meira

Bónus og Krónan eru íslenskum neytendum mikilvægari en Costco

Bónus og Krónan eru íslenskum neytendum mikilvægari en Costco

Eyjan
23.06.2017

Í dag er einn mánuður liðinn frá opnun verslunar Costco í Kauptúni. Costco hefur vægast sagt fengið góð viðbrögð hjá íslenskum neytendum en nýleg könnun MMR leiddi í ljós að nærri helmingur landsmanna 18 og eldri væri búinn að fara í Costco. Síðasta sumar kom út skýrsla ráðgjafarfyrirtækisins Zenter sem sagði að Costco myndi hafa Lesa meira

Bjarni óþekkjanlegur: „Litaði hann í öll þessi ár?“

Bjarni óþekkjanlegur: „Litaði hann í öll þessi ár?“

Fókus
23.06.2017

„Þetta er rosalegt. Game changer. Ég veit að það er rosalega 2001 að velta sér upp úr útliti stjórnmálafólks, en þetta er bara svo mikið. Svo mikið í einu. Litaði hann í öll þessi ár?,“ spyr Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og pistlahöfundur á Kjarnanum, á Facebook-síðu sinni. Með færslunni deilir Hrafn mynd af Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra Lesa meira

Umburðarlynda þjóðin

Umburðarlynda þjóðin

Eyjan
23.06.2017

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Samkvæmt samantekt stofnunarinnar Social Progress Imperative eru Íslendingar umburðarlyndasta þjóð í heimi. Umburðarlynt samfélag er gott samfélag og því er þessi niðurstaða staðfesting á því að okkur hefur tekist að skapa fyrirtaks samfélag. Vitaskuld er þar ekki allt fullkomið. Misrétti fyrirfinnst vissulega. Hagsmunaöfl láta stöðugt á sér kræla. Grátkór útgerðarinnar þagnar til Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af