fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Pressan

„Þetta voru tveir ungir menn rétt að hefja starfsferil sinn“

Pressan
Þriðjudaginn 24. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir flugmenn létust þegar farþegaþota frá Air Canada lenti í árekstri við slökkvibíl á flugbraut LaGuardia-flugvallar í New York á sunnudagskvöld. Rannsókn á atvikinu stendur yfir en grunur leikur á að mistök í flugturni flugvallarins hafi orsakað slysið.

Annar flugmannanna var hinn þrítugi Antoine Forest frá Coteau-du-Lac í Quebec. Að sögn ættingja hans hafði hann brennandi áhuga á flugi frá unga aldri.

„Hann flaug sinni fyrstu flugvél þegar hann var 16 ára,“ sagði frænka hans, Jeannette Gagnier, í samtali við Toronto Star. „Hann var alltaf að taka námskeið og fljúga. Hann hætti aldrei.“

Hún bætti við að gærdagurinn hefði verið henni afar þungbær. „Þetta er mjög slæmur dagur fyrir mig,“ bætti hún við.

Forest starfaði sem aðstoðarflugmaður hjá Jazz Aviation, sem sá um rekstur flugsins fyrir Air Canada Express. Samkvæmt upplýsingum frá ættingjum hafði hann lagt hart að sér við að læra ensku á framhaldsskólaárum sínum til að bæta möguleika sína á að starfa sem flugmaður.

Hinn flugmaðurinn sem lést hefur enn ekki verið nafngreindur opinberlega.

Greint var frá því í gær að slysið hafi orðið þegar slökkvibíll frá hafnaryfirvöldum ók yfir flugbraut til að veita annarri flugvél aðstoð á sama tíma og farþegaþotunni hafði verið veitt leyfi til lendingar.

„Þetta voru tveir ungir menn rétt að hefja starfsferil sinn, svo þetta er algjör harmleikur að við sitjum hér og syrgjum missi þeirra,“ sagði Bryan Bedford, yfirmaður bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA), á blaðamannafundi síðdegis í gær.

Um 40 af þeim 70 farþegum og áhafnarmeðlimum sem lifðu slysið af voru fluttir á sjúkrahús, en flestir hlutu aðeins minniháttar meiðsli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Öryggismálasérfræðingur segir að heimsbyggðin þurfi að búa sig undir óhugsandi martröð

Öryggismálasérfræðingur segir að heimsbyggðin þurfi að búa sig undir óhugsandi martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Evrópa er nú stærsti vopnainnflytjandi heims

Evrópa er nú stærsti vopnainnflytjandi heims
Pressan
Fyrir 2 dögum

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur