fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Pressan

Netáskorun talin hafa orðið 9 ára stúlku að bana

Pressan
Mánudaginn 23. mars 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Foreldrar níu ára stúlku í Stephenville í Texas í Bandaríkjunum hafa stigið fram opinberlega eftir að dóttir þeirra lést í slysi sem talið er tengjast hættulegri áskorun á samfélagsmiðlum. Vilja foreldrarnir með þessu vekja athygli á þeirri hættu sem getur mætt börnum og unglingum á netinu. Þá kalla þau eftir aukinni ábyrgð þeirra fyrirtækja sem reka samfélagsmiðla.

Stúlkan, JackLynn Blackwell, var samkvæmt frásögn foreldra sinna lífsglöð og náin fjölskyldu sinni. Hún hafði mikinn áhuga á tónlist og söng, naut þess að taka þátt í karaoke með foreldrum sínum og dreymdi um að verða stjarna. Fjölskyldan lýsir því að þau þrjú hafi verið afar samrýnd og gert flest saman, allt frá ferðalögum til notalegra samverustunda heima fyrir.

Eins og mörg börn á hennar aldri átti JackLynn snjallsíma og eyddi hún töluverðum tíma í að horfa á myndbönd á netinu. Foreldrarnir segja að hún hafi haft gaman af svokölluðum áskorunum sem gengu manna á milli á samfélagsmiðlum og að slíkt hafi lengi virst saklaust. Sú sýn breyttist hins vegar skyndilega fyrir um mánuði síðan.

Tók eftir óvenjulegri þögn

Að morgni dagsins sem slysið varð var allt með hefðbundnum hætti. JackLynn fór út í bakgarð heimilis fjölskyldunnar að leika sér eins og hún gerði oft áður. Þegar faðir hennar, Curtis Blackwell, tók eftir óvenjulegri þögn fór hann að gá að henni og fann hana skammt frá bílskýli við húsið. Hún var þá meðvitundarlaus með snúru vafða um hálsinn.

„Ég mun aldrei gleyma þessum degi. Þetta mun spilast aftur í hausnum á mér það sem ég á eftir ólifað,“ segir Curtis um augnablikið þegar hann kom að dóttur sinni.

Hann reyndi þegar í stað að bjarga henni, losaði snúruna og hóf endurlífgun þar til viðbragðsaðilar komu á vettvang. Þrátt fyrir skjót viðbrögð tókst ekki að endurlífga stúlkuna og hún var úrskurðuð látin síðar sama dag.

Í kjölfar harmleiksins hafa foreldrar hennar reynt að átta sig á hvað gerðist. Þeir telja líklegt að stúlkan hafi verið að herma eftir hættulegri netáskorun sem felst í því að þrengja að öndunarvegi sínum tímabundið til að framkalla tímabundna vellíðunartilfinningu eða svima. Ákorunin, sem gjarnan kallast blackout-áskoruninin, hefur verið í dreifingu á neitnu um árabil að því er fram kemur í frétt CBS News.

Tugir barna látist í svipuðum atvikum

Samkvæmt upplýsingum bandarísku sóttvarnastofnunarinnar, CDC, sem CBS vitnar til, hafa tugir barna og unglinga látist í tengslum við sambærilegar áskoranir. Foreldrar JackLynn benda á að börn á aldrinum níu til fjórtán ára séu sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum frá netinu þar sem heilinn er enn í mótun.

Þau benda jafnframt á að efni sem virðist barnvænt geti fljótt vikið fyrir hættulegri og óviðeigandi myndböndum vegna þess hvernig samfélagsmiðlar stýra því sem notendum er sýnt. Þrátt fyrir að sumir miðlar hafi gripið til ráðstafana, svo sem að birta viðvaranir eða takmarka leitir að slíkum áskorunum, telja foreldrarnir að meira þurfi til.

Aðeins mánuði eftir andlátið segjast þau staðráðin í að nýta reynslu sína til að vekja athygli á málinu og stuðla að breytingum. Þau kalla eftir skýrari reglum, auknu eftirliti og meiri ábyrgð tæknifyrirtækja svo draga megi úr líkum á að sambærileg slys endurtaki sig.

Foreldrarnir segja að þrátt fyrir mikla og djúpa sorg vilji þau leggja sitt af mörkum til að vernda önnur börn. Að þeirra mati getur aukin vitund meðal foreldra, skóla og samfélagsins í heild skipt sköpum þegar kemur að öryggi barna á netinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi
Pressan
Í gær

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“
Pressan
Í gær

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf
Pressan
Í gær

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur
Pressan
Í gær

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um