fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Pressan

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

Pressan
Mánudaginn 23. mars 2026 12:30

Fremri hluti vélarinnar var illa farinn. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir flugmenn létust og margir slösuðust þegar farþegaþota lenti í árekstri við slökkvibifreið á flugbraut LaGuardia-flugvallar í New York seint í gærkvöldi.

Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir en tilkynning um það barst klukkan 23:40 að staðartíma.

Samkvæmt upplýsingum frá talsmönnum flugyfirvalda var flugvélin, sem var á leið frá Montreal, að koma inn til lendingar þegar hún lenti á slökkvi- og björgunarbifreið sem hafði fengið heimild flugturns til að fara yfir flugbraut á vellinum.

Á hljóðupptöku úr flugturni vallarins heyrist þegar flugumferðarstjórar reyndu í örvæntingu að stöðva ökutækið rétt fyrir áreksturinn. „Bíll 1, stoppaðu, stoppaðu, stoppaðu!,” heyrist flugumferðarstjóri segja samkvæmt frétt NBC.

Eftir áreksturinn sagði flugumferðarstjórinn að hann hefði brugðist þar sem hann var að fást við annað neyðartilvik á sama tíma. „Ég klúðraði þessu,“ sagði hann.

Flugvélin sem lenti í árekstrinum er af gerðinni Bombardier CRJ-900 og starfaði fyrir hönd Air Canada í rekstri svæðisflugfélagsins Jazz Aviation. 76 farþegar og áhafnarmeðlimir voru um borð í vélinni. Auk flugmannanna tveggja sem létust var 41 fluttur á sjúkrahús með áverka af ýmsum toga.

Myndir frá vettvangi sýna að framhluti vélarinnar skemmdist verulega í árekstrinum og að slökkvibifreiðin valt á hliðina. Viðbragðsáætlanir voru virkjaðar samstundis og fjöldi sjúkra- og björgunarsveita var sendur á flugbrautina.

Bandaríska flugmálastjórnin tilkynnti í kjölfarið um tímabundið stöðvun flugferða á flugvellinum, sem leiddi til lokunar hans skömmu fyrir miðnætti. Nefnd á vegum samgönguyfirvalda hefur hafið rannsókn á slysinu og vinnur nú að því að skýra atburðarásina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Bjóða ökumönnum 25.000 evrur fyrir að leggja ökuskírteini sitt inn í 5 ár

Bjóða ökumönnum 25.000 evrur fyrir að leggja ökuskírteini sitt inn í 5 ár
Pressan
Í gær

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“
Pressan
Í gær

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas
Pressan
Í gær

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stakk sig til bana þegar hann reyndi að losa frosnar steikur í sundur

Stakk sig til bana þegar hann reyndi að losa frosnar steikur í sundur