fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 07:30

Pyongyang höfuðborg Norður-Kóreu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Af óþekktum ástæðum aflýstu norðurkóresk stjórnvöld nýlega Pyongyang maraþoninu 2026. Engin skýring var gefin á þessu af hálfu stjórnvalda sem létu ferðaskrifstofum og öðrum tengdum maraþoninu það eftir að tilkynna skráðum þátttakendum um þetta.

The Independent skýrir frá þessu og hefur eftir talsmanni Koryo Tours, sem er ferðaskrifstofa í Peking í eigu Breta, að bréf hafi borist frá norðurkóreska íþróttasambandinu um að maraþoninu, sem átti að fara fram 5. apríl, hafi verið aflýst. Í bréfinu segir aðeins að maraþoninu hafi verið aflýst „af einhverjum ástæðum“.

Simon Cockerell, forstjóri fyrirtækis sem er alþjóðlegur aðili að hlaupinu, sagði í samtali við The Independent að heimsbyggðin fái líklega aldrei að vita ástæðuna fyrir því að hlaupinu var aflýst. „Því miður ganga hlutirnir þannig fyrir sig hér að raunverulegar upplýsingar eru oft ófáanlegar og oft ekki til, þannig að við verðum að sætta okkur við að fá líklega aldrei að vita ástæðuna,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?
Pressan
Í gær

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur
Pressan
Í gær

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni